Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
18. nóvember 2009 — 273. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Líf á Café Loka
Boðið var upp á rúg-
brauðslist og handstúku-
hönnun á Lokastíg í gær.
ATHAFNAVIKA 12
Athafnavika
BORGAR GUÐJÓNSSON
Upplifði ekta ítalska
stemningu og gestrisni
• á ferðinni • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
HAMINGJU-HÁDEGI eru haldin í Guðríðarkirkju í
Grafarholti alla miðvikudaga klukkan 12.10. Í dag halda
Óperu-ídívurnar Davíð og Stefán tónleika með söng og
glens. Í næstu viku er stílað inn á hláturjóga og félags-
vist og 2. desember verður karlakórinn Voces Mascul-
um með tónleika ásamt landsþekktum einsöngvurum.
„Það er ótrúleg upplifun að búa hjá
alvöru ítalskri fjölskyldu,“ segir
Borgar Guðjónsson, starfsmað-
ur hjá Emmessís. Borgar dvaldi í
Ventimiglia, 20.000 manna þorpi á
Ítalíu, skammt frá frönsku landa-
mærunum, í tvær vikur fyrir ára-
tug.
Ferðalagið kom þannig til að
þáverandi samstarfsmaður Borg-
ars hjá Sól-Víking, hinn ítalski
Pino Salvatore, bauð Borgari að
búa hjá sér og fjölskyldu sinni í
þorpinu. „Gestrisnin var ótrú-
leg,“ segir Borgar. „Þau voru þrjú
í heimili og ég gestur, en öll kvöld
var eldað margréttað eins og fyritólf mann Þ
karlarnir horfðu á mig og hugsuðu
væntanlega með sér hverslags
kerling ég væri eiginlega.“Dögunum eyddi Borgar í ról-
egheitum í þorpinu. Hann fór á
ströndina, synti í sjónum og sótti
marga útimarkaði. Einn slíkur í
þorpinu er þekktur sem einn sá
elsti sinnar tegundar í Evrópu.
Nálægðin við landamærin gerði
það líka að verkum að hægur leik-
ur var að skjótast yfir til Mónakó
með lest.
„Þetta þorp var algjör draum-
ur,“ segir Borgar. „Það er staðsett
í fjallshlíð og mér f
í þorpinu sem minnti á að ártalið
var 1999. „Einu skiptin sem mér
var kippt inn í nútímann var þegar
ég gekk framhjá þorps-pöbbunum
og allir voru að horfa á Formúlu 1
í sjónvarpinu og hvetja ökuþórinn
Mika Häkkinen til dáða. Ítalirnir
dýrkuðu hann.“Borgar er 1,73 metrar á hæð,
nokkuð undir meðalhæð íslenskra
karlmanna, og segist aldrei hafa
verið viðkvæmur fyrir smæð
sinni. „Þarna í þorpinu leið mér
iðulega eins og vinalega isem l b
Í paradís fyrir lágvaxna
Borgar Guðjónsson upplifði ekta ítalska stemningu þegar hann bjó hjá heimafólki í þorpinu Ventimiglia
í tvær vikur. Finnskur ökuþór var það eina sem kippti honum reglulega inn í nútímann.
„Þarna í þorpinu leið mér iðulega eins og vinalega risanum sem labbar um, veifar, klappar öllum á kollinn og brosir,“ segir Borgar
sem dvaldi hjá ítalskri fjölskyldu í litlu þorpi við landamæri Frakklands.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
STEFÁN KARL STEFÁNSSON
Fær góða dóma í
Hollywood Reporter
Leikur Trölla í söngleik byggðum á bók Dr. Seuss
FÓLK 30
Semur fyrir
Múmínálfa
Björk Guðmundsdóttir
hefur samið lag fyrir
teiknimynd um
Múmínálfana.
FÓLK 24
Málþing og móttaka
Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
býður félagsmönn-
um til móttöku í
tilefni af níutíu ára
afmæli sínu.
TÍMAMÓT 20
HÁTÍÐARRIT
FRÍKIRKJAN 110 ÁRA
Vettvangur trúarleitar,
tilbeiðslu og tjáningar
Sérblað Fríkirkjunnar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FÓLK „Við hlökkum mikið til að
heyra þetta,“ segir söngkonan
Erna Þórarinsdóttir.
Dóttir hennar, leikkonan Anita
Briem, syng-
ur lagið C´est
si bon á vænt-
anlegri safn-
plötu sem
verður gefin
út til styrktar
Preservation
Hall-tónlistar-
húsinu í New
Orleans.
Anita og Erna eru í sérlega
góðum hópi á plötunni því á meðal
þeirra sem eiga þar lög eru Tom
Waits, Bobby McFerrin og Paolo
Nutini. Platan er væntanleg 16.
febrúar á næsta ári. Auglýsingar
vegna hennar eru þegar farnar að
birtast erlendis og var Anita sett í
forgrunn í þeirri fyrstu.
- fb / sjá síðu 30
Anita Briem syngur á plötu:
Mamma með í
bakröddunum
ANÍTA BRIEM
HVESSIR SÍÐDEGIS Í dag verða
austan 3-8 m/s. Vaxandi austanátt
síðdegis og í kvöld verða 8-18 m/s
sunnanlands. Víða bjart með köfl-
um, en þykknar upp í kvöld suð-
austantil. Skýjað og þurrt NA-til.
VEÐUR 4
1
-1
-1
2
4
VIÐSKIPTI Breska fjármálaeftir-
litið hótaði að stöðva starfsemi
Landsbankans í Bretlandi í ágúst
á síðasta ári ef ekki yrði farið að
kröfum þess um færslu Icesave-
reikninga bankans í breskt dótt-
urfélag.
Í tilraunum til að koma rekstr-
inum fyrir vind fóru stjórnendur
bankans þess á leit við Seðlabanka
Íslands að hann lánaði bankanum
2,5 milljarða punda sem svaraði
þá til tæplega 390 milljarða króna
og var næstum þriðjungur þjóðar-
framleiðslu Íslands.
Þetta kemur fram í nýrri bók
Styrmis Gunnarssonar, fyrrver-
andi ritstjóra, Umsátrið – fall
Íslands og endurreisn.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, staðfestir
frásögn Styrmis. Hann hafi rætt
málið við fjármálaráðherra Bret-
lands í Lundúnum í byrjun sept-
ember og þá hafi horfur á lausn
verið góðar. Þrot Lehman Broth-
ers-bankans hafi hins vegar sett
ferlið í uppnám og síðar leitt til
falls Landsbankans.
- bþs / sjá síðu 4
Rekstur Landsbankans var kominn í uppnám um miðjan ágúst 2008:
Bretar hótuðu að loka í ágúst
RN Löwen
rústaði Lemgo
Rhein-Neckar Lö-
wen vann sextán marka
stórsigur gegn Lem-
go í Íslendingaslag í
Þýskalandi í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
FAGNA SIGRI Á SKREKK Laugalækjarskóli fór með sigur af hólmi á Skrekk, hæfileikakeppni Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur
(ÍTR) fyrir grunnskólana. Lið átta skóla öttu kappi á úrslitakvöldi keppninnar sem fram fór í gær. Allir grunnskólar í borginni sem
eru með unglingastig máttu taka þátt og senda eitt atriði hver. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RANNSÓKN Sérstakur saksóknari
hefur krafist kyrrsetningar á eign-
um Baldurs Guðlaugssonar, fyrr-
verandi ráðu-
neytisstjóra í
fjármálaráðu-
neytinu.
Samkvæmt
heimildum
Fréttastofu
Stöðvar 2,
sem skýrði frá
þessu í gær,
er um að ræða
kyrrsetningu
á sömu fjárhæð og hann seldi
hlutabréf sín í Landsbankanum
fyrir skömmu fyrir hrunið í fyrra.
Kyrrsetningarinnar var krafist í
tengslum við rannsókn á þessum
viðskiptum Baldurs, sem grun-
ur leikur á að hafi verið brot á
lögum um innherjaviðskipti. Þegar
Fréttablaðið reyndi að ná tali af
Baldri í gærkvöld fengust þau svör
að hann væri ekki til viðtals. - gb
Sérstakur saksóknari:
Eignir Baldurs
kyrrsettar
BALDUR
GUÐLAUGSSON
FJÁRMÁL „Mér finnst þetta vera
veruleikafirrtir siðleysingjar að
láta sér koma til hugar að tefla
fram kröfum af þessu tagi,“ segir
Ögmundur Jónasson, alþingismað-
ur Vinstri grænna, um fjárkröfur
háttsettra fyrrum starfsmanna
Landsbanka Íslands.
Fimmtán starfsmenn Lands-
bankans krefjast samtals 2,6
milljarða króna af þrotabúi bank-
ans. Hæsta krafan er 490 milljón-
ir. Fimm fyrrverandi starfsmenn
vilja yfir 200 milljónir í sinn hlut.
Slitastjórn bankans hefur ekki
tekið afstöðu til þessara krafna.
„Þetta eru óskaplega háar tölur
sem þarna er um að ræða og þær
undirstrika þær öfgar sem voru
í gangi,“ segir Illugi Gunnars-
son, sem kveðst vilja skoða málið
betur áður en hann tjáir sig nánar
um það.
Friðbert Traustason, formaður
Samtaka starfsmanna fjármála-
fyrirtækja, segir erfitt að sakast
við þá sem sæki rétt sinn sam-
kvæmt samningum.
„Ég hef alltaf sagt að það ætti
frekar að sakast við þá sem gerðu
þessa samninga við þessa menn,“
segir Friðbert.
Ögmundur segir ótrúlegt að sjá
slíkar kröfur á meðan þjóðin sé á
hliðinni.
„Verið er að skerða bætur
almannatrygginga, það hefur verið
til umræðu að skerða atvinnuleys-
isbætur. Við erum að skera niður í
heilbrigðismálum og á sama tíma
eru menn að tefla fram kröfum
sem eru byggðar á bónussamn-
ingum, kaupréttarsamningum og
öðru af því tagi. Mér finnst menn
vera gengnir út úr því landakorti
sem heitir það Ísland sem ég vil
kannast við,“ segir Ögmundur.
- gar / sjá síðu 6
Bankamenn átaldir
fyrir milljarðakröfur
Formaður þingflokks sjálfstæðismanna segir miklar fjárkröfur fyrrverandi
starfsmanna á hendur þrotabúi Landsbankans sýna þær öfgar sem hafi verið í
gangi. Þingmaður VG segir starfsmennina gengna út úr íslenska landakortinu.