Fréttablaðið - 18.11.2009, Side 2
2 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
SJÚKDÓMAR Dregið hefur úr notk-
un sýklalyfja hér á landi fyrstu
níu mánuði ársins segir Haraldur
Briem sóttvarnalæknir. Hann segir
skýringu ekki liggja fyrir. Hugs-
anlega spari fólk við sig sýklalyf
þegar fjárhagurinn versnar, líkt og
gerst hafi undanfarið.
Þetta eru ágæt tíðindi að mati
sóttvarnalæknis en ofnotk-
un sýklalyfja er talin vandamál
meðal annars vegna hættunnar
sem ofnotkunin veldur á útbreiðslu
fjölónæmra baktería. Það eru bakt-
eríur sem eru ónæmar fyrir mörg-
um af algengustu sýklalyfjum. Þær
eru mikið vandamál víða í Evrópu
og er dagurinn í dag helgaður bar-
áttu gegn ofnotkun sýklalyfja.
Þetta er í annað sinn sem 18. nóv-
ember er lagður í það.
Haraldur segir að fundað hafi
verið með læknum og fjallað um
vandamálið og áfram verði fund-
að um notkun sýklalyfja en Ísland
hefur verið meðal þeirra Evrópu-
landa þar sem mest er notað af
sýklalyfjum.
Tölur frá Lyfjastofnun hafi leitt í
ljós að samdrátturinn nemi um níu
prósentum á þessu ári. Samdráttur
er í notkun þeirra lyfja sem Land-
læknisembættið hafi haft áhyggj-
ur af, sem eru meðal annars azit-
rómýcín sem gjarnan er notað við
eyrnabólgu barna og doxýcýk-
lín sem notað er við unglingaból-
um. Þessi lyf tengjast fjölónæm-
um bakteríum sem látið hafa á sér
kræla utan spítala.
Hér á landi hefur tekist að koma
í veg fyrir útbreiðslu fjölónæmra
baktería á spítölum þó af og til hafi
verið lagðir inn sjúklingar sem
sýkst hafa erlendis. Sums staðar
í Evrópu er vandamálið mikið og
samkvæmt Evrópsku sóttvarna-
stofnuninni er metið sem svo að um
400 þúsund Evrópubúar sýkist af
fjölónæmum bakteríum ár hvert,
um 25 þúsund dauðsföll megi rekja
til þeirra árlega og sjúklingar
dvelji 2,5 milljón daga á ári á spít-
ala vegna þeirra í Evrópu. Kostnað-
urinn vegna þessa sé um 900 millj-
ónir evra á ári hverju, andvirði um
166 milljarða íslenskra króna.
Að sögn Karls G. Kristinssonar,
yfirlæknis á sýklafræðideild Land-
spítalans, standa Íslendingar hér
vel að vígi rétt eins og nágrann-
arnir á Norðurlöndum og Hollend-
ingar. Í Suður-Evrópu sé vanda-
málið hins vegar mikið svo dæmi
séu tekin. Karl bendir hins vegar
á að fjölónæmar sýkingar í öndun-
arfærum, einkum miðeyrnabólga,
séu meira vandamál hér en víða í
nágrannalöndum.
sigridur@frettabladid.is
Margrét, eru þetta forboðnir
ávextir?
„Ekki tómaturinn, hann er græn-
meti.“
Skapari Ávaxtakörfunnar er reiður yfir því
að Síminn hafi notað menn í ávaxtabún-
ingum í auglýsingu sína. Það sé stolin
hugmynd. Hún vill auglýsingarnar úr
loftinu. Margrét Stefánsdóttir er upplýs-
ingafulltrúi Símans.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari mun
ekki ákæra karlmann sem sætti
gæsluvarðhaldi um skeið vegna
gruns um aðild að láti konu á
fertugsaldri sem fannst látin í
febrúar í kofa Skrautdúfnafélags
Hafnarfjarðar. Málið var fellt
þar sem það þótti ekki líklegt til
sakfellis á hendur ofangreindum
manni sem hafði réttarstöðu sak-
bornings við rannsóknina.
Niðurstöður úr krufningu á líki
konunnar voru þær að dánaror-
sökin hefði verið ofkæling.
Rannsókn málsins beindist
meðal annars að ferðum manns-
ins og konunnar síðasta sólar-
hringinn áður en hún lést. - jss
Ríkissaksóknari:
Ekki ákært í
dúfnakofamáli
DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í
gær úrskurð Héraðsdóms Reykja-
ness þess efnis að fimm Litháar
skuli sæta áfram gæsluvarðhaldi
til 2. desember. Mennirnir sitja
inni vegna rannsóknar lögreglu á
skipulagðri glæpastarfsemi hér á
landi, ekki síst mansali, sem lagt
er til grundvallar hjá lögreglu-
stjóranum á Suðurnesjum í kröfu
um áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir mönnunum.
Lögregla rannsakar einnig aðra
brotaflokka sem mennnirnir eru
grunaðir um að hafa átt hlutdeild
að. Þar má nefna handrukkanir
og kröfur á hendur löndum þeirra
um svokallaða verndartolla. - jss
Mansalsmál á Suðurnesjum:
Mennirnir sæta
enn varðhaldi
DÚFNAKOFINN Kofinn sem konan
fannst látin í.
FJÖLMIÐLAR Útbreiðsla á Frétta-
blaðinu eftir breyttar áhersl-
ur í dreif-
ingu blaðsins
á landsbyggð-
inni er sífellt
að styrkj-
ast. Á síðustu
dögum hafa í
hóp dreifing-
araðila bæst
Skeljungur á
Hellissandi,
Grillskálinn á
Patreksfirði, Hlíðarkaup á Sauð-
árkróki, Mónakó á Bakkafirði
og Söluskálinn Björk á Hvols-
velli. Þess má geta að Fréttablað-
inu hefur ekki áður verið dreift
á Bakkafirði og Patreksfirði. Það
er fyrirtækið Pósthúsið sem ann-
ast dreifingu Fréttablaðsins. - gar
Útbreiðsla Fréttablaðsins:
Dreifingin er
enn að þéttast
Sími: 512 5000
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDIMIÐVIKUDAGUR
18. nóvember 2009 — 273. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Líf á Café Loka
Boðið var upp á rúg-
brauðslist og handstúku-
hönnun á Lokastíg í gær.
ATHAFNAVIKA 12
Athafnavika
BORGAR GUÐJÓNSSON
Upplifði ekta ítalska
stemningu og gestrisni
• á ferðinni • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
HAMINGJU-HÁDEGI eru haldin í Guðríðarkirkju í
Grafarholti alla miðvikudaga klukkan 12.10. Í dag halda
Óperu-ídívurnar Davíð og Stefán tónleika með söng og
glens. Í næstu viku er stílað inn á hláturjóga og félags-
vist og 2. desember verður karlakórinn Voces Mascul-
um með tónleika ásamt landsþekktum einsöngvurum.
„Það er ótrúleg upplifun að búa hjá
alvöru ítalskri fjölskyldu,“ segir
Borgar Guðjónsson, starfsmað-
ur hjá Emmessís. Borgar dvaldi í
Ventimiglia, 20.000 manna þorpi á
Ítalíu, skammt frá frönsku landa-mærunum, í tvær vikur fyrir ára-tug.Ferðalagið kom þannig til að
þáverandi samstarfsmaður Borg-ars hjá Sól-Víking, hinn ítalski
Pino Salvatore, bauð Borgari að
búa hjá sér og fjölskyldu sinni í
þorpinu. „Gestrisnin var ótrú-leg,“ segir Borgar. „Þau voru þrjú
í heimili og ég gestur, en öll kvöld
var eldað margréttað eins og fyrirtólf manns Þ
karlarnir horfðu á mig og hugsuðu
væntanlega með sér hverslags
kerling ég væri eiginlega.“Dögunum eyddi Borgar í ról-egheitum í þorpinu. Hann fór á
ströndina, synti í sjónum og sótti
marga útimarkaði. Einn slíkur í
þorpinu er þekktur sem einn sá
elsti sinnar tegundar í Evrópu.
Nálægðin við landamærin gerði
það líka að verkum að hægur leik-ur var að skjótast yfir til Mónakó
með lest.„Þetta þorp var algjör draum-ur,“ segir Borgar. „Það er staðsett
í fjallshlíð og mér fann tei
í þorpinu sem minnti á að ártalið
var 1999. „Einu skiptin sem mér
var kippt inn í nútímann var þegar
ég gekk framhjá þorps-pöbbunum
og allir voru að horfa á Formúlu 1
í sjónvarpinu og hvetja ökuþórinn
Mika Häkkinen til dáða. Ítalirnir
dýrkuðu hann.“Borgar er 1,73 metrar á hæð,
nokkuð undir meðalhæð íslenskra
karlmanna, og segist aldrei hafa
verið viðkvæmur fyrir smæð
sinni. „Þarna í þorpinu leið mér
iðulega eins og vinalega rissem labb
Í paradís fyrir lágvaxna
Borgar Guðjónsson upplifði ekta ítalska stemningu þegar hann bjó hjá heimafólki í þorpinu Ventimiglia
í tvær vikur. Finnskur ökuþór var það eina sem kippti honum reglulega inn í nútímann.
„Þarna í þorpinu leið mér iðulega eins og vinalega risanum sem labbar um, veifar, klappar öllum á kollinn og brosir,“ segir Borgar
sem dvaldi hjá ítalskri fjölskyldu í litlu þorpi við landamæri Frakklands.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
STEFÁN KARL STEFÁNSSON
Fær góða dóma í
Hollywood Reporter
Leikur Trölla í söngleik byggðum á bók Dr. Seuss.
FÓLK 30
Semur fyrir
Múmínálfa
Björk Guðmundsdóttir
hefur samið lag fyrir
teiknimynd um
Múmínálfana.
FÓLK 24
Málþing og móttaka
Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
býður félagsmönn-
um til móttöku í
tilefni af níutíu ára
afmæli sínu.
TÍMAMÓT 20
HÁTÍÐARRIT
FRÍKIRKJAN 110 ÁRA
Vettvangur trúarleitar,
tilbeiðslu og tjáningar
Sérblað Fríkirkjunnar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
FÓLK „Við hlökkum mikið til að
heyra þetta,“ segir söngkonan
Erna Þórarinsdóttir.
Dóttir hennar, leikkonan Anita
Briem, syng-
ur lagið C´est
si bon á vænt-
anlegri safn-
plötu sem
verður gefin
út til styrktar
Preservation
Hall-tónlistar-
húsinu í New
Orleans.
Anita og Erna eru í sérlega
góðum hópi á plötunni því á meðal þeirra sem eiga þar lög eru Tom
Waits, Bobby McFerrin og Paolo
Nutini. Platan er væntanleg 16.
febrúar á næsta ári. Auglýsingar
vegna hennar eru þegar farnar að birtast erlendis og var Anita sett í forgrunn í þeirri fyrstu.
- fb / sjá síðu 30
Aníta Briem syngur á plötu:
Mamma með í
bakröddunum
ANÍTA BRIEM
HVESSIR SÍÐDEGIS Í dag verða austan 3-8 m/s. Vaxandi austanátt síðdegis og í kvöld verða 8-18 m/s sunnanlands. Víða bjart með köfl-um, en þykknar upp í kvöld suð-
austantil. Skýjað og þurrt NA-til.
VEÐUR 4
1
-1
-1
2
4
VIÐSKIPTI Breska fjármálaeftir-litið hótaði að stöðva starfsemi Landsbankans í Bretlandi í ágúst á síðasta ári ef ekki yrði farið að kröfum þess um færslu Icesave-reikninga bankans í breskt dótt-urfélag.
Í tilraunum til að koma rekstr-inum fyrir vind fóru stjórnendur bankans þess á leit við Seðlabanka
Íslands að hann lánaði bankanum 2,5 milljarða punda sem svaraði þá til tæplega 390 milljarða króna og var næstum þriðjungur þjóðar-framleiðslu Íslands.
Þetta kemur fram í nýrri bók Styrmis Gunnarssonar, fyrrver-andi ritstjóra, Umsátrið – fall Íslands og endurreisn.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrver-
andi viðskiptaráðherra, staðfestir frásögn Styrmis. Hann hafi rætt málið við fjármálaráðherra Bret-lands í Lundúnum í byrjun sept-ember og þá hafi horfur á lausn verið góðar. Þrot Lehman Broth-ers-bankans hafi hins vegar sett ferlið í uppnám og síðar leitt til falls Landsbankans.
- bþs / sjá síðu 4
Rekstur Landsbankans var kominn í uppnám um miðjan ágúst 2008:
Bretar hótuðu að loka í ágúst
RN Löwen
rústaði Lemgo
Rhein-Neckar Löwen
vann sextán marka
stórsigur gegn Lem-
go í Íslendingaslag í
Þýskalandi í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
FAGNA SIGRI Á SKREKK Laugalækjarskóli fór með sigur af hólmi á Skrekk, hæfileikakeppni Íþrótta og tómstundasviðs Reykjavíkur
(ÍTR) fyrir grunnskólana. Lið átta skóla öttu kappi á úrslitakvöldi keppninnar sem fram fór í gær. Allir grunnskólar í borginni sem
eru með unglingastig máttu taka þátt og senda eitt atriði hver.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAKAMÁL Sérstakur saksóknari
hefur krafist kyrrsetningar á eign-um Baldurs Guðlaugssonar, fyrr-
verandi ráðu-
neytisstjóra í
fjármálaráðu-
neytinu.
Samkvæmt
heimildum
Fréttastofu
Stöðvar 2,
sem skýrði frá
þessu í gær,
er um að ræða
kyrrsetningu
á sömu fjárhæð og hann seldi
hlutabréf sín í Landsbankanum
fyrir skömmu fyrir hrunið í fyrra. Kyrrsetningarinnar var krafist í
tengslum við rannsókn á þessum
viðskiptum Baldurs, sem grun-
ur leikur á að hafi verið brot á
lögum um innherjaviðskipti. Þegar Fréttablaðið reyndi að ná tali af
Baldri í gærkvöld fengust þau svör að hann væri ekki til viðtals. - gb
Sérstakur saksóknari:
Eignir Baldurs
kyrrsettar
BALDUR
GUÐLAUGSSON
FJÁRMÁL „Mér finnst þetta vera veruleikafirrtir siðleysingjar að láta sér koma til hugar að tefla fram kröfum af þessu tagi,“ segir Ögmundur Jónasson, alþingismað-
ur Vinstri grænna, um fjárkröfur háttsettra fyrrum starfsmanna Landsbanka Íslands.
Fimmtán starfsmenn Lands-bankans krefjast samtals 2,6 milljarða króna af þrotabúi bank-ans. Hæsta krafan er 490 milljón-ir. Fimm fyrrverandi starfsmenn vilja yfir 200 milljónir í sinn hlut. Slitastjórn bankans hefur ekki tekið afstöðu til þessara krafna.
„Þetta eru óskaplega háar tölur sem þarna er um að ræða og þær undirstrika þær öfgar sem voru í gangi,“ segir Illugi Gunnars-son sem kveðst vilja skoða málið betur áður en hann tjáir sig nánar um það.
Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármála-fyrirtækja, segir erfitt að sakast við þá sem sæki rétt sinn sam-kvæmt samningum.
„Ég hef alltaf sagt að það ætti frekar að sakast við þá sem gerðu þessa samninga við þessa menn,“ segir Friðbert.
Ögmundur segir ótrúlegt að sjá slíkar kröfum á meðan þjóðin sé á hliðinni.
„Verið er að skerða bætur almannatrygginga, það hefur verið til umræðu að skerða atvinnuleys-isbætur. Við erum að skera niður í heilbrigðismálum og á sama tíma tíma eru menn að tefla fram kröf-um sem eru byggðar á bónussamn-ingum, kaupréttarsamningum og öðru af því tagi. Mér finnst menn vera gengir út úr Því landakorti sem heitir það Ísland sem ég vil kannast við,“ segir Ögmundur Jón-asson. - gar / sjá síðu 6
Bankamenn átaldir
fyrir milljarðakröfur
Formaður þingflokks sjálfstæðismanna segir miklar fjárkröfur fyrrverandi starfsmanna á hendur þrotabúi Landsbankans sýna þær öfgar sem hafi verið í gangi. Þingmaður VG segir starfmennina gengna út úr íslenska landakortinu.
Dregur úr notkun
sýklalyfja hérlendis
Dregið hefur úr notkun sýklalyfja hér á landi fyrstu níu mánuði ársins miðað
við sama tíma 2008. Of mikilli notkun sýklalyfja fylgir aukin útbreiðsla fjöl-
ónæmra baktería en baráttan við þær er kostnaðarsöm og flókin.
LANDSPÍTALINN Í FOSSVOGI Tekist hefur að koma í veg fyrir útbreiðslu fjöl-
ónæmra baktería á spítölum hérlendis.
DÓMSMÁL Tvítugur karlmaður
hefur verið sakfelldur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra fyrir að
hafa samræði við fjórtán ára stúlku
og hafa síðar í hótunum við hana.
Hann var dæmdur í tuttugu mán-
aða fangelsi, þar af átján skilorðs-
bundna, og til að greiða stúlkunni
450 þúsund krónur.
Maðurinn staðhæfði að hann
hefði verið kærasti stúlkunnar.
Hins vegar hefði hann ekki haft
vitneskju um að hún væri yngri en
fimmtán ára.
Að sambandi þeirra loknu sendi
maðurinn stúlkunni þau skilaboð á
MSN-síðu hennar á netinu, að ef hún
hætti ekki að bulla um að hann og
annar maður hefðu nauðgað henni,
þá „…fer fjölskyldan þín að lenda í
óvæntum „slysum“ og þú líka“.
Einnig tjáði hann henni að ef
hún „…myndi halda áfram þessum
lygasögum, þá myndi hann berja
hana“.
Maðurinn hafði áður þrívegis
hlotið refsidóma. Dómurinn leit til
þess nú að hann játaði, nær undan-
bragðalaust, það sem honum var
gefið að sök. Hann virðist hafa
tekið sig á á síðustu misserum,
meðal annars farið í áfengis- og
vímuefnameðferð og hafið nám í
framhaldsskóla. Því þótti fært að
skilorðsbinda stærstan hluta refs-
ingarinnar. - jss
Tvítugur karlmaður dæmdur í fangelsi og til greiðslu miskabóta:
Svaf hjá og hótaði unglingsstúlku
■ Fjöldi sýktra um 400.000 þúsund á ári.
■ Dauðsföll um 25.000 þúsund á ári.
■ Fjöldi daga í sjúkrahúsvist um 2,5 milljónir á ári
■ Aukakostnaður vegna spítalavistar um 900 milljónir evra á ári
■ Kostnaður vegna fjarvista frá vinnu um 600 milljónir evra á ári
*SAMANLAGÐUR KOSTNAÐUR INNAN ESB, ÍSLANDS OG NOREGS, TÖLURNAR ERU VARLEGA ÁÆTLAÐAR.
MSN Maðurinn hótaði stúlkunni á MSN.
LÖGREGLA Lagt hefur verið hald á
nokkur skotvopn á heimili manns-
ins sem réðist á annan á heim-
ili þess síðarnefnda í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags.
„Rannsókn
er í gangi á því
hvaða vopni var
beitt í árásinni,“
segir Friðrik
Smári Björg-
vinsson,
yfirlögreglu-
þjónn hjá
rannsóknar-
deild lögregl-
unnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Maðurinn, sem er í gæsluvarðhaldi
fram til föstudags, hefur játað
árásina, en rannsóknin beinist nú
meðal annars að því hversu mikið
tjón hann ætlaði fórnarlambi sínu.
Árásarmaðurinn er, að sögn Frið-
riks Smára, með leyfi fyrir fleiru
en einu skotvopni.
Maðurinn sem ráðist var á kom
til dyra um hálf fjögur aðfaranótt
sunnudags en var þá barinn í and-
litið með skeftinu á haglabyssu.
Hann náði að loka á árásarmann-
inn sem í kjölfarið skaut um fimm
skotum á hurðina og dyraumbún-
að.
Árásin
er talin eiga rót sína í því
að maðurinn sem ráðist var á
hafði sagt unnustu árásarmanns-
ins upp störfum.
Friðrik Smári segir erfitt að
segja til um hvenær rannsókn
málsins kunni að ljúka. „Það er
unnið að þessu af fullum krafti og
reynt að komast eins langt og hægt
er meðan gæsluvarðhaldið stendur.
Við verðum svo bara að sjá hvar
við stöndum þá,“ segir hann. - óká
Hald var lagt á nokkur skotvopn árásarmanns sem skaut á útidyr í Breiðholti:
Rannsaka skotvopn árásarmannsins
ÚTIDYRAHURÐ FÓRNARLAMBS Árás-
armaður skaut nokkrum skotum á dyr
og dyraumbúnað á heimili í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRIÐRIK SMÁRI
BJÖRGVINSSON
ÞÝSKALAND, AP Níræður Þjóðverji,
Adolf Storms að nafni, hefur verið
ákærður fyrir þátttöku í fjölda-
morðum í þorpinu Deutsch Schütz-
en í Austurríki í lok mars árið
1945, aðeins fáeinum dögum fyrir
lok seinni heimsstyrjaldarinnar.
Storms og félagar hans í SS-
sveitum nasista eru sagðir hafa
farið með 57 gyðinga í nokkr-
um hópum út í skóg og skotið þá
í bakið. Storms er að auki sakað-
ur um að hafa daginn eftir drepið
einn gyðing í viðbót. Hinir myrtu
fundust í fjöldagröf árið 1995. - gb
Níræður nasisti:
Ákærður fyrir
fjöldamorð
FJÖLÓNÆMAR BAKTERÍUR Í EVRÓPU*
VIÐSKIPTI „DeCode var að öllum
líkindum stofnað nokkrum árum
of snemma. Tæknin var ekki til
staðar sem við ætluðum að búa
til og vinna með. Á þeim tíma
söfnuðum við skuldum sem varð
baggi á fyrirtækinu,“ segir Kári
Stefánsson, stofnandi og forstjóri
deCode, móðurfélags Íslenskrar
erfðagreiningar.
Móðurfélagið óskaði eftir
greiðslustöðvun í Bandaríkjunum
aðfaranótt þriðjudags. Í kjölfarið
sömdu bandarískir frumfjárfest-
ar og lánardrottnar félagsins um
kaup á Íslenskri erfðagreiningu.
Gangi allt eftir mun félag-
ið verða fjármagnað til næstu
tveggja ára. Kári stígur úr for-
stjórastólnum eftir áramót og
verða starfandi stjórnarformaður
við hlið eftirmanns hans.
- jab / Sjá síðu 14
DeCode í greiðslustöðvun:
ÍE selt banda-
rískum sjóðum
SPURNING DAGSINS