Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 4
4 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR Í Fréttablaðinu í gær kom fram að sam- kvæmt síðustu mælingum Capa cent hefðu rúmlega 24 prósent þjóðarinnar fylgst með gamanþættinum Marteinn í Sjónvarpinu. Þessi tala er í aldurshópn- um 12 til 49 ára, en það kom ekki fram og áréttist hér með. ÁRÉTTING STJÓRNMÁL Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi vill að aðrir borg- arfulltrúar leggi fram vottorð frá lækni um að þeir séu hæfir til að sitja í borgarstjórn. Í ræðu á fundi borgarstjórnar í gær sagði Ólaf- ur tillögu setta fram til að jafn- ræðis yrði gætt meðal borgar- fulltrúa. Eins og kunnugt er var Ólafur krafinn um læknisvottorð er hann sneri aftur til starfa í borgarstjórn eftir veik- indafrí vegna þunglyndis fyrr á þessu kjörtímabili. Í tillögu Ólafs felst að þeim sem ekki hafi þegar lagt fram slíkt vottorð verði gert það skylt. - gar Tillaga Ólafs F. í borgarstjórn: Aðrir skili líka læknisvottorði ÓLAFUR F. MAGNÚSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 16° 11° 10° 13° 12° 14° 10° 10° 22° 14° 24° 14° 27° 6° 13° 15° 8° Á MORGUN 8-5 m/s, hvassast NV-lands. FIMMTUDAGUR Víða hægviðri, en all- hvöss NA-átt NV-lands. 2 0 -1 -2 -1 0 1 3 4 6 -4 13 7 6 7 7 5 4 5 9 9 7 4 2 6 7 5 0 2 4 5 1 VERSNAR MEÐ KVÖLDINU Framan af degi verður fl ott veður, yfi rleitt hæg- ur vindur og bjart með köfl um um vestanvert landið. Síðdegis hvessir með suðurströnd- inni og þykknar einnig upp og á morgun verður komin nokkuð stíf norðaustanátt með úrkomu í fl estum landshlutum. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Breska fjármálaeftirlitið (FSA) gerði Landsbankanum ljóst í bréfi hinn 15. ágúst í fyrra að innlánastarfsemi hans í Bretlandi yrði stöðvuð ef ekki yrði farið að kröfum þess. Þetta kemur fram í bókinni Umsátrið – fall Íslands og endur- reisn eftir Styrmi Gunnarsson, fyrrverandi rit- stjóra Morgun- blaðsins. Vitnað er til bréfaskipta FSA, Landsbankans og íslenskra yfirvalda um málið en kröf- urnar snerust um færslu inn- lánanna [Icesa- ve-reikningana] í dótturfélagið Heritable í Bret- landi og þar með undir hatt breska tryggingasjóðsins. Í bókinni segir: „Ljóst er af þessum bréfaskiptum, að rekstur Landsbankans, hefur verið kom- inn í uppnám um miðj- an ágúst 2008 og raun- ar fyrr og í kjölfarið fara fram umræður innan stjórnkerfisins um það, hvernig bregð- ast eigi við, fari allt á versta veg, og jafnvel kvikna hugmyndir um, að ríkið yfirtaki rekst- ur bankans.“ Þá kemur fram að Landsbankinn virðist hafa farið fram á lánafyrirgreiðslu frá Seðlabanka Íslands upp á 2,5 milljarða sterlingspunda til að geta staðið undir yfirfærslunni. Til trygging- ar hafi bankinn viljað setja lána- safn sitt auk þess sem hann óskaði þess að fyrirgreiðslan yrði ekki gerð opinber. Lánið átti að vera ótímabundið þangað til alþjóðleg- ir fjármálamarkaðir opnuðust að nýju fyrir íslensku bankana. Fjárhæðin, 2,5 milljarðar punda, nam á þeim tíma 386 milljörðum króna. Hún nam þriðjungi af lands- framleiðslu Íslendinga og var tvö- falt hærri en markaðsvirði Lands- bankans á þessum tíma. Segir Styrmir í bókinni að með slíkri lánafyrirgreiðslu Seðlabank- ans hafi Landsbankinn talið sig geta mætt kröfum FSA og komið í veg fyrir að það gripi til aðgerða sem leiddu til þess að hann færi í þrot. Hins vegar hafi engan veg- inn verið ljóst hvort þetta myndi tryggja rekstur bankans til fram- búðar. Ekkert varð af lánveitingunni. Þrennt er nefnt til sögunnar. Álita- mál var hvort verjandi væri fyrir Seðlabankann að taka lánasafn Landsbank- ans að veði fyrir svo hárri fjárhæð. Spurn- ing var hvort verjandi væri að halda fyrir- greiðslunni leyndri – en opinberun henn- ar hefði líklega kost- að áhlaup á bankann. Og loks voru tormerki á möguleikum Seðla- bankans til að veita slíka fyrirgreiðslu ótímabundið. bjorn@frettabladid.is Lokun Landsbankans í Bret- landi vofði yfir í ágúst 2008 Rekstur Landsbankans var kominn í uppnám um miðjan ágúst í fyrra. Fjármálaeftirlitið í Bretlandi hótaði að stöðva starfsemi bankans í landinu ef ekki yrði farið að kröfum þess um Icesave. Í nýrri bók Styrmis Gunnarssonar segir að Landsbankamenn hafi beðið Seðlabankann um lán upp á 386 milljarða króna. ÆÐSTRÁÐENDUR LANDSBANKANS Björgólfur Guðmundsson bankaráðsformaður, Halldór J. Kristjánsson bankastjóri, Kjartan Gunnarsson, varaformaður bankaráðs, og Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra á þessum tíma, staðfestir við Frétta- blaðið að harðort bréf hafi borist Landsbankanum frá breska Fjármálaeftirlitinu um miðjan ágúst. Í því hafi í raun verið hótað að starfsemi Landsbankans í Bretlandi yrði stöðvuð ef Icesave-reikning- arnir yrðu ekki færðir undir dótturfé- lag bankans í Lundúnum og um leið peningar og aðrar eignir til trygginga. Hann segir að frá því snemma árs 2008 hafi verið unnið að slíkri yfirfærslu. Í kjölfar bréfsins um miðjan ágúst hafi hann, ásamt stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins og fleiri embættismönn- um, gengið á fund Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, og starfsmanna breska fjármálaeftirlitsins. Fór hann fram í Lundún- um 2. september. Rætt var um mögulegar leiðir á yfirfærslunni, meðal annars að tryggingar Landsbankans bærust ekki í einu lagi heldur í tvennu eða þrennu lagi næstu mánuði á eftir. Tóku Darling og hans menn vel í þær hugmynd- ir. Fall Lehman Brothers-bankans tveimur vikum síðar hafi sett ferlið í uppnám og að lokum leiddi það til hruns Landsbankans. YFIRFÆRSLAN Í FERLI EN SVO FÉLL LEHMAN STYRMIR GUNNARSSON DÓMSTÓLAR Karlmaður á þrí- tugsaldri hefur verið sakfelld- ur fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft samfarir við fjór- tán ára stúlku. Þau voru um tíma kærustu par. Manninum var gefið að sök að hafa ítrekað frá ársbyrjun til ágústmánaðar á síðasta ári haft samræði við stúlkuna. Jafnframt var hann ákærður fyrir að hafa fíkniefni undir höndum, ítrek- aðan fíkniefnaakstur og að hafa skallað lögreglumann í andlitið. Maðurinn hlaut átján mán- aða fangelsisdóm en þar af eru fimmtán mánuðir skilorðsbundn- ir. - jss Karlmaður á þrítugsaldri: Hafði samræði við ungling ALÞINGI Þingmenn stjórnarand- stöðunnar – einkum Sjálfstæðis- flokksins – harma að nefndarálit um Icesave-frumvarpið hafi verið afgreitt úr fjárlaganefnd í fyrra- kvöld. Telja þeir málið hafa verið óútrætt og furða sig á að ekkert hafi verið gert með álit efnahags- og skattanefndar um málið sem fjárlaganefnd bað þó sérstaklega um. Kristján Þór Júlíusson, Einar K. Guðfinnsson, Birgir Ármannsson og Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðis- flokki, gagnrýndu stjórnarliða harðlega fyrir framgönguna. Sagði Pétur störf efnahags- og skatta- nefndar vanvirt, hann hafi varið löngum tíma í verk sem svo ekk- ert var gert með. Guðbjartur Hannesson, formað- ur fjárlaganefndar, sagði málið hafa verið fullreifað í nefndinni og að álit efnahags- og skattanefnd- ar hefðu engu bætt við. Afstaða stjórnmálaflokkanna til máls- ins lægi fyrir og því hafi hann ekki talið þjóna tilgangi að lengja umfjöllunina. Önnur umræða um Icesave- málið fer fram í þinginu á morg- un. - bþs Stjórnarandstaðan átelur stjórnarliða fyrir að afgreiða Icesave út úr fjárlaganefnd: Ekkert gert með umbeðin álit Á ALÞINGI Icesave-málið verður rætt efnislega á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Regin Freyr hættur Regin Freyr Mogensen lögfræðingur er hættur störfum hjá Kaupþingi. Hann hefur starfað á lögfræðisviði bankans og setið fyrir hönd hans í stjórn 1998 ehf., móðurfélags Haga. Hann segir brotthvarf sitt úr bankan- um ekki tengjast stjórnarsetunni. VIÐSKIPTALÍFIÐ Átta veskjaþjófnaðir Tilkynnt hefur verið um átta veskja- þjófnaði á skemmtistöðum borg- arinnar til lögreglu að undanförnu. Nokkur atvikanna hafa náðst á eftirlitsmyndavélar. Fólk er beðið um að gæta vel að veskjum sínum. LÖGREGLUFRÉTTIR GENGIÐ 17.11.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,967 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,20 123,78 206,86 207,86 183,44 184,46 24,65 24,794 21,915 22,045 17,932 18,038 1,3818 1,3898 197,10 198,28 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.