Fréttablaðið - 18.11.2009, Page 6

Fréttablaðið - 18.11.2009, Page 6
6 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR DÓMSMÁL Konan sem grunuð er um að hafa stungið fimm ára telpu með hnífi í brjóstið 27. september síðastliðinn hefur nú undirgengist geðrannsókn. Dómari mun síðan byggja á matsgerð um sakhæfi konunnar. Atburðurinn átti sér stað á heimili telpunnar í Reykjanesbæ. Konan er talin hafa stungið hana fyrirvaralaust í bringuna með eld- húshnífi. Af hlutust lífshættuleg- ir áverkar. Áður hafði fjölskyld- an kært hana fyrir eignaspjöll á heimili sínu og mótorhjóli. Konan er nú vistuð á Litla-Hrauni þar sem hún sætir gæsluvarðhaldi. Málið er í rannsókn. - jss Konan sem stakk telpuna: Gæsluvarðhald og geðrannsókn –fegurðin býr í bókum Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip. Tryggðu þér eintak í tíma. Bílaapótek Hæðarsmára Mjódd • Álftamýri D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Bræðraborgarstíg 9 KRÖFTUG SAGA UM KONUR „Áhrifamikil örlagasaga og flottur og þroskaður skáldskapur.“ Jón Yngvi Jóhannsson, pressan.is D Y N A M O R ÞÝSKALAND Ísland er enn í hópi tíu efstu ríkjanna á lista samtakanna Transparency International yfir spillingarstig ríkja heims. Samkvæmt nýja listanum er spillingin minnst á Nýja-Sjálandi, í Danmörku, Singapúr, Svíþjóð og Sviss, en mest er hún í Sómal- íu, Afganistan, Búrma, Súdan og Írak. Í skýrslu samtakanna eru auðug ríki hvött til þess að breyta regl- um um bankaleynd svo þær gagn- ist ekki spillingaröflum sem vilja halda viðskiptum sínum leyndum. Ísland er í áttunda sæti ásamt Ástralíu og Kanada. Þessi þrjú lönd fengu 8,7 stig á kvarða sem mælir spillingu á bilinu frá núll og upp í tíu. „Ekkert ríki heims er ónæmt gagnvart hættunni á spillingu,“ segir í skýrslu samtakanna, sem árlega hafa tekið saman lista yfir spillingu í ríkjum heims. Listinn er byggður á þrettán skoðanakönnunum sem tíu stofn- anir hafa gert og birt síðustu tvö árin. Sérfræðingar alþjóðastofn- ana og framámenn í viðskiptum í hverju landi eru spurðir hvort þeir telji spillingu vera í opinbera geiranum, einkum hvort opinber- ar stofnanir og embættismenn taki við fé til að tryggja þjónustu, for- gang eða sérafgreiðslu mála. - gb Nýr spillingarlisti frá Transparency International: Ísland enn í hópi tíu bestu NÝI LISTINN Sylvia Schenk, formaður Transparency International, kynnir nýja spillingarlistann á blaðamannafundi í Berlín. NORDICPHOTOS/AFP FJÁRMÁL Sextán menn sem hátt- settir voru hjá Landsbanka Íslands gera kröfu um að fá samtals 2.608 milljónir króna úr þrotabúi bank- ans. Mest vill Steinþór Gunnarsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs, sem krefst 490 milljóna. Af öðrum fyrrverandi starfs- mönnum sem krefjast hárra upphæða má nefna Bjarna Þ. Bjarnason, forstöðumann fyrir- tækjaráðgjafar, sem vill 377 millj- ónir króna og Guðmund P. Dav- íðsson, sem var forstöðumaður á fyrirtækjasviði en var hættur fyrir hrunið. Hann krefst 316 milljóna. Yngvi Örn Kristinsson, sem var framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, vill 230 milljónir króna. Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri einstaklings- og markaðssviðs, vill 215 milljónir og Gunnar Thorodd- sen, bankastjóri Landsbankans, krefst 183 milljóna. Sjöundi mað- urinn á þessum lista er Arnar Arnarson verð- bréfamiðlari sem krefst 167 milljóna króna. Slitastjórn bankans hefur enn ekki tekið afstöðu til þess- ara t i lteknu krafna. Líklegt er þó talið að þeim verði hafnað. Friðbert Traustason, formað- ur Samtaka starfsmanna fjár- málafyrirtækja, kveðst telja að kröfur áðurefndra starfsmanna Landsbankans hljóti að byggjast á ógreiddum árangurstengdum greiðslum og óuppgerðum kaup- réttarsamningum. Friðbert segir erfitt að sakast við þessa menn að sækja rétt sinn samkvæmt samn- ingum. „Ég hef alltaf sagt að það ætti frekar að sakast við þá sem gerðu þessa samninga við þessa menn,“ segir Friðbert og bætir við að hann telji reyndar afar ólíklegt að hlust- að verði á þessar kröfur. Heildarkröfur í þrotabú Lands- bankans samsvara 4,4 sinnum landsframleiðslunni á Íslandi á árinu 2008, eða 6.459 milljörðum króna. Þar af hefur slitastjórnin samþykkt forgangskröfur upp á 1.273 milljarða. Þar er að stærst- um hluta að ræða kröfur vegna Icesave-innlána í Bretlandi og Hollandi. Gera má ráð fyrir því að taka muni allt að sjö ár að gera upp búið eftir fall Landsbankans. Á fundi með kröfuhöfum 24. febrú- ar á næsta ári ætlar slitastjórnin að kynna endanlega hvaða kröfur hún viðurkenni og hvaða kröfum hún hafni. gar@frettabladid.is Fimmtán starfsmenn krefjast 2,6 milljarða Fimmtán fyrrum starfsmenn Landsbankans krefjast samtals 2,6 milljarða króna úr búi bankans. Heildarkröfur í þrotabúið eru 6.459 milljarðar. Samþykktar for- gangskröfur nema 1.273 milljörðum. Lítið eða ekkert fæst upp í aðrar kröfur. FRIÐBERT TRAUSTASON LANDSBANKI ÍSLANDS Féll í byrjun október. Tæplega tólf þúsund kröfur bárust slitastjórninni sem kynnir ekki fyrr en eftir þrjá mánuði endanlega afstöðu sína til þeirra allra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI 1. Steinþór Gunnarsson, forstöðu- maður verðbréfamiðlunar 490 milljónir 2. Bjarni Þ. Bjarnason, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar 377 milljónir 3. Guðmundur P. Davíðsson, fyrrum forstöðumaður á fyrirtækjasviði 316 milljónir 4. Yngvi Örn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri verðbréfasviðs 230 milljónir 5. Ingólfur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri einstaklings- og markaðssviðs 215 milljónir 6. Gunnar Thoroddsen, bankastjóri Landsbankans í Lúxemborg 183 milljónir 7. Arnar Arnarson verðbréfamiðlari 167 milljónir 8. Haukur Þór Haraldsson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs 148 milljónir 9. Kristján Gunnar Valdimarsson, forstöðumaður skattasviðs 102 milljónir 10. Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri upplýsinga- tæknisviðs 75 milljónir 11. Baldur Stefánsson, starfsmaður fyrirtækjaráðgjafar 77 milljónir 12. Ívar Guðjónsson, stýrði eiginvið- skiptum Landsbankans 73 milljónir 13. Helgi Þór Arason verðbréfamiðl- ari 66 milljónir 14. Stefán Þór Bjarnason, starfsmað- ur fyrirtækjaráðgjafar 64 milljónir 15. Garðar Ólafsson forstöðumaður 25 milljónir KRÖFUR FIMMTÁN STARFSMANNA KJÖRKASSINN Á að taka upp samræmd loka- próf úr grunnskólum að nýju? Já 57,8 Nei 42,2 SPURNING DAGSINS Í DAG Á að lækka atvinnuleysisbætur yngri en 25 ára til að fjár- magna aukna menntun fyrir þann hóp? Segðu þína skoðun á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.