Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 8
8 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR S.Guðjónsson í samvinnu við Brunamálastofnun stóð fyrir innköllun á Daisalux Argos neyðarljósum árið 2004/2005. Í ljós hefur komið að sú innköllun sem þá fór fram innihélt ekki réttu framleiðslunúmerin. Á sínum tíma voru innkölluð ljós sem báru framleiðslunúmer frá 43.843-77821 en ekki 52.000-80.700 sem er hið rétta. Þessir lampar voru allir framleiddir frá september 1998-janúar 2000 og seldir frá1999-2001. Upp kom á sínum tíma galli í þéttum sem gat ofhitnað og hefur þetta orsakað nokkra bruna hér á landi. Inn í ljósunum, sem eru veggljós, er lítill grænn miði þar sem framleiðslunúmerið er áletrað. Sé grunur um að lampi sé með framleiðslunúmer á milli 52.000 og 80.700 er mikilvægt að lampanum sé skipt út og er hægt að hafa samband við S.Guðjónssyni í síma 520-4500 og við munum útvega nýjan lampa og uppsetningu. Vert er að taka það fram í þessu sambandi að þessi innköllun á aðeins við vegglampa frá spænska framleiðandanum Daisalux (sjá meðfylgjandi mynd) og hefur ekkert að gera með lampa frá ítalska framleiðandanum Beghelli sem er aðal birgi S.Guðjónssonar í neyðarljósum. INNKÖLLUN Á DAISALUX NEYÐARLJÓSUM Auðdbrekka 9-11 | 200 Kópavogur | Sími: 520 4500 | Fax: 520 4501 | Netfang: sg@sg.is | www.sg.is Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Bílavarahlutir Nýtt aðalskipulag - Ávarp Júlíus Vífi ll Ingvarsson, formaður skipulagsráðs Borgarskipulag og samgöngur Haraldur Sigurðsson verkefnisstjóri Betri samgöngur Ólafur Bjarnason samgöngustjóri Umferðaröryggi Stefán Finnsson yfi rverkfræðingur Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur Pálmi Freyr Randversson verkefnisstjóri „Eftir hverju er verið að bíða“ Sigrún Helga Lund, tölfræðingur, í stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl Umræður Fundarstjóri Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri Morgunfundur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, 19. nóvember kl. 08.30-10.00 MENNTUN Lilja Dögg Alfreðsdótt- ir, formaður starfshóps um náms- mat í grunnskólum Reykjavíkur- borgar, hafnar því að ekki verði haft samráð við fagaðila. Formað- ur Skólastjórafélags Reykjavíkur kvartaði yfir því í Fréttablaðinu í gær og taldi líklegt að niðurstaða hópsins yrði gefin fyrirfram. Lilja Dögg segir það af og frá; ákveðið hafi verið að hafa starfs- hópinn fámennan og aðeins skip- aðan stjórnmálamönnum sem flestir hagsmunaaðilar yrðu síðan kallað- ir til samstarfs við. Hún eigi til að mynda fund með skólastjór- um á morgun. Þá verði haft samstarf við menntamála- ráðuneytið. „Starf hóps- ins verður þrí- þætt. Í fyrsta lagi ætlum við að gera heildar- úttekt á náms- a ðfer ð u m í grunnskólum borgarinnar. Þá ætlum við að kanna hvern- ig samræmd könnunarpróf í tíunda bekk hafi nýst og í þriðja lagi hvort jafnræð- is sé gætt við inntöku nemenda í framhaldsskóla.“ Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs, lýsti því yfir í Frétta- blaðinu á mánudag að hann vildi taka upp samræmd próf upp úr grunnskólum. Lilja segist munu móta sína skoðun eftir vinnu starfshópsins. Jón Torfi Jónasson, prófess- or við Háskóla Íslands og forseti menntavísindasviðs skólans, segir hið besta mál að skoða hugmynd- ir um námsmat upp á nýtt. Sam- ræmd próf upp úr skólum hafi hins vegar nánast aldrei gegnt því hlutverki sem þau áttu að gegna; að vera upplýsingatæki fyrir skól- ana svo þeir gætu bætt um betur fyrir þá nemendur sem prófin þreyta. Þau hafi hins vegar virk- að sem aðhaldstæki, en spurning sé hvort þau séu rétta meðalið. Jón Torfi segir samræmdu próf- in hafa haft ótrúleg áhrif í gegn- um tíðina og stýrt áherslum skóla, miðað við hve litlu máli þau í raun og veru hafi skipt. Yfirleitt hafi nemendur tekið samræmd próf og farið síðan í heimaskóla, en það hafi skipt tiltölulega lítinn hóp máli. „Þegar skólakerfið nær ekki að taka við öllum eins og gerðist í vetur og fyrir nokkrum árum, skipta prófin máli fyrir ákveð- inn hóp nemenda og þá stund- um til skaða.“ Flestir nemendur hafi tekið prófin og haldið áfram, aldrei skoðað einkunnirnar aftur. „Fyrir mjög stóran hlut nemenda skiptir einkunnin í sjálfu sér engu máli.“ kolbeinn@frettabladid.is Segir samræmd próf vera ofmetna aðferð Forseti menntavísindasviðs Háskólans segir samræmd próf litlu máli skipta fyrir meirihluta nemenda. Formaður starfshóps borgarinnar hafnar því að ekki verði haft samráð við fagaðila. Gera eigi heildarúttekt á námsmati í skólum. JÓN TORFI JÓNASSON LILJA DÖGG ALFREÐSDÓTTIR SKÓLASTARF Formaður starfshóps um námsmat í grunnskólum segir að hópurinn muni hafa víðtækt samstarf við fagaðila. Ætlunin er, meðal annars, að kortleggja mismunandi aðferðir við námsmat sem notaðar eru í skólunum. Nemendur í Hlíða- skóla við samræmd próf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍRAN, AP Í nýrri skýrslu Alþjóða- kjarnorkueftirlitsins segir að Íran- ar hafi flutt háþróaðan tæknibún- að til auðgunar úrans á stað sem áður var leynilegur. Vinnsla þar eigi að hefjast árið 2011. Í skýrslunni, sem er sjö blaðsíð- ur, segir að nýja kjarnorkustöðin eigi að geta framleitt um eitt tonn af auðguðu úrani á ári. Það myndi duga í eina kjarnorkusprengju, en er of lítið til að fullnægja þörf- um nánast fullbúins kjarnorku- vers í Bushehr og annarra kjarn- orkuvera sem Íranar segjast ætla að nota í friðsamlegum tilgangi á næstu árum. Í skýrslunni segir að Íranar hafi komið sér upp 8.600 skilvindum til auðgunar úrans, en einungis 4.000 þeirra séu í notkun. Þeir hafi nú þegar framleitt um 1.800 kíló af auðguðu úrani, sem dugar næstum því í tvær kjarnorkusprengjur. Ali Asghar Soltanieh, kjarn- orkufulltrúi Írans, segir skýrsl- una sýna að eftirlitsmennirnir hafi engar sannanir fundið fyrir því að Íranar hafi í hyggju að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Íranar hleyptu vestrænum eft- irlitsmönnum ekki inn í landið til þess að skoða kjarnorkustöðina fyrr en upp komst um tilvist henn- ar í sumar. Að Íranar hafi starf- rækt hana með leynd vekur hins vegar áhyggjur um að fleiri leyni- legar kjarnorkustöðvar kunni að vera að finna í landinu. - gb Vestrænir eftirlitsmenn hafa skoðað auðgun úrans í kjarnorkustöðvum í Íran: Dugar í eina sprengju á ári AHMADINEJAD Á ÞINGI Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti á tali við íranskan þingmann. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA. Um sjö- tíu sjúklingar koma til landsins í hverjum mánuði frá Færeyjum, Grænlandi og Noregi til þess að gangast undir augnaðgerðir eða lýtaaðgerðir. Útflutningstekjur vegna þessarar þjónustu nema nokkur hundruð milljónum króna á ári „og þær gætu mjög auðveld- lega oltið á milljörðum ef rétt er á málum haldið“, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, við umræður um sóknarfæri í heilbrigðisþjónustu á Alþingi í gær. Guðlaugur sagði að þessi þjón- usta hefði lítið verið markaðssett erlendis, eftirspurnin hefði fyrst og fremst orðið vegna góðrar afspurnar af íslenskri heilbrigð- isþjónustu. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að krabbameinssjúklingar frá Fær- eyjum hefðu líka leitað meðferðar hér; greiðslurnar frá Færeyjum komi í veg fyrir að fækka þurfi heilbrigðisstarfsfólki meira en gert er vegna kreppunnar. Álfheiður Ingadóttir heilbrigð- isráðherra sagði búist við því að innan tveggja ára líti dagsins ljós tilskipun frá ESB um rétt sjúk- linga til að leita sér lækninga yfir landamæri. Hugmyndir um sam- eiginlegt heilbrigðisþjónustusvæði á Norðurlöndunum hafi leitt af sér viðræður Íslendinga við Færey- inga, Grænlendinga, Svía og Norð- menn. Nýlega hafi verið samið um aukna þjónustu við Grænlendinga og samningagerð við Færeyinga sé vel á veg komin. - pg Fjöldi sjúklinga frá Færeyjum, Grænlandi og Noregi kemur til landsins í aðgerðir: Hundruð milljóna í tekjur LANDSPÍTALI Um sextíu Grænlending- ar, Norðmenn og Færeyingar koma í augnaðgerðir á Íslandi í hverri viku og 10 til viðbótar koma til að leggjast undir skurðhníf íslenskra lýtalækna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.