Fréttablaðið - 18.11.2009, Side 10
10 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSTÓLAR Nokkur viðbúnaður var í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær vegna fjölda
sakborninga sem þá mættu fyrir rétt í
umfangsmiklu þjófnaðarmáli. Þar eru átta
manns af pólskum uppruna, um og yfir
tvítugu, sökuð um aðild að fjölda þjófnað-
armála víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu
á þessu ári.
Auk gæslumanna frá fangelsinu á Litla-
Hrauni gættu lögreglumenn af höfuð-
borgarsvæðinu þess að allt færi vel fram.
Aðalmeðferð í málinu hófst í gær og lýkur
síðdegis í dag.
Auk sakargifta sem snúa að þjófnuðum
er sambýliskona eins mannsins jafnframt
sökuð um að hafa reynt að hylma yfir með
honum og að hafa reynt að aðstoða við að
koma stolnum munum í verð.
Handtökur fóru fram snemma í ágúst,
en þrír úr hópnum hafa setið í gæsluvarð-
haldi síðan þá, tveir á Litla-Hrauni og einn
í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í
Reykjavík. Stúlkan var handtekin fyrir
utan verslunina Gull og Silfur eftir að hafa
reynt að selja þar stolna skartgripi.
Létt var yfir sakborningum áður en rétt-
arhöldin hófust í gærmorgun og heilsuð-
ust glaðlega þeir sem mættir voru og hinir
sem komið var með úr gæsluvarðhaldi.
Játning liggur fyrir í hluta sakargifta,
en í öðrum neita sakborningar sök eða játa
að hluta. Málin eru fjölmörg, en þau varða
meðal annars innbrot í íbúðir og bíla, auk
annarra þjófnaðarmála.
Unnustan sem sökuð er um hylmingu
neitaði sök fyrir rétti í gær og kvaðst ekki
hafa gert sér grein fyrir því að um þýfi
hafi verið að ræða. Unnusti hennar kvaðst
hafa keypt stolnu munina af manni við víd-
eóleigu í Breiðholti og kvaðst hafa talið þá
hluta af braski tengdu pólskri vefsíðu að
nafni Forum þar sem hlutir gangi kaupum
og sölu.
Andvirði stolinna muna í einum ákæru-
liðanna er metið á 1,5 milljónir króna og
kemur úr einu innbroti. - óká
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJANESS Fagnaðarfundir urðu í hópi Pólverja
sem sakaðir eru um fjölda þjófnaða þegar komið var með tvo
úr hópnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi inn í Héraðsdóm
Reykjaness í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðalmeðferð í umfangsmiklu þjófnaðarmáli stendur yfir í tvo daga í Héraðsdómi Reykjaness:
Átta Pólverjar fyrir rétti vegna þjófnaða
Það er
800 4000 • siminn.is
VIST
Öryggi og
hagræðing
í rekstri
Með fyrirtækið í VIST getur þú dregið úr kostnaði um leið og þú
færð trausta þjónustu sem tryggir öryggi gagna og aðgengi að
nauðsynlegum upplýsingum. Í VIST er heimasvæði fyrirtækisins hýst
á netþjónum Símans sem eykur samnýtingu skjala og öryggi gagna.
Með reglulegri afritun og vírusvörnum er öryggi tryggt enn frekar.
Fyrirtækjapósturinn í VIST veitir starfsmönnum aðgang að póstinum
hvar sem er, auk þess sem hægt er að deila
dagbókum, tengiliðum og verkefnum.
Veldu hagkvæma og örugga VIST fyrir fyrirtækið þitt.
Villuboðin heyra sögunni til
– þú heldur bara áfram að vinna
VIST fyrir fyrirtækið þitt
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
7
13
MATUR Hótel Arctic hlaut norrænu
matvælaverðlaunin 2009 fyrir að
koma norrænum matarhefðum
á framfæri á nútímalegan hátt,
fyrir nýsköpun og framúrskarandi
árangur í þróun norrænna mat-
arhefða. Verðlaunin voru veitt á
ráðstefnu um norræn gildi í mat-
vælaiðnaði. Hótelstjórinn Erik
Bjerregaard veitti verðlaununum
viðtöku en hann rekur hótelið sem
er í Ilulissat ísfirðinum á Græn-
landi.
„Þessi verðlaun hafa verið veitt
þeim sem hafa lagt áherslu á nýnor-
ræna matreiðslu en auk þess að
reka góðan veitingastað er hótelið í
góðu samspili við umhverfið,“ segir
Kristinn Hugason, deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu og einn
skipuleggjenda ráðstefnunnar.
Matvælaframleiðsla og mat-
vælarannsóknir á Norðurlöndun-
um eru á háu plani segir Kristinn
sem segir norrænu gildin í mat-
reiðslu vera hreinleika og hollustu.
Kristinn segir klassískan norræn-
an mat á borð við fisk vera mjög
hollan eins og kunnugt sé. Sumir
hefðbundnir norrænir réttir séu
hins vegar ekki mjög hollir fyrir
kyrrsetumanninn en hin nýnor-
ræna matreiðsla gangi út á að
útbúa norrænan mat með nútíma-
lagi. Það hafi tekist vel til hjá Erik
Bjerregaard og samstarfsfólki
hans á Grænlandi. Norrænu mat-
arverðlaunin eru veitt af Norrænu
ráðherranefndinni. - sbt
Norrænu matvælaverðlaunin 2009 veitt:
Norrænn matur hollur og góður
VERÐLAUNAAFHENDINGIN Erik Bjer-
regaard lengst til hægri að lokinni verð-
launaafhendingu ásamt Jeppe Ejvind
Nielsen matreiðslumeistara og Susanne
Møller, eiginkonu sinni.
LÖGREGLUMÁL Karlmaður sem
féll fram af svölum á þriðju hæð
í Grafarholti í fyrrinótt reyndist
vera þríbrotinn. Hann tvíbrotnaði
á kjálka og fékk opið brot á hand-
legg. Fallið var um sjö metrar.
Það var um sjöleytið í gærmorg-
un sem lögregla fékk tilkynn-
ingu um að maðurinn hefði fallið
niður af húsinu. Hann var fluttur
á Landspítala og lagður inn á gjör-
gæslu í Fossvogi. Honum var hald-
ið sofandi í gærdag en var ekki í
lífshættu. Annar maður var í íbúð-
inni þegar lögregla kom á vett-
vang og ræddi hún við hann. Hann
er ekki talinn eiga neinn hlut að
máli. - jss
Ekki saknæmt athæfi:
Þríbrotinn eftir
sjö metra fall
GEIMSKUTLU SKOTIÐ Á LOFT
Geimskutlunni Atlantis var skotið á
loft frá Canaveralhöfða í Flórída á
mánudag. Förinni er að venju heitið í
alþjóðlegu geimstöðina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Flosi Eiríksson, bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar í
Kópavogi, hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér á lista flokksins
fyrir sveitarstjórnarkosningar á
næsta ári. Flosi
tók sæti í bæj-
arstjórn árið
1998 og var
áður varamað-
ur í fjögur ár.
Flosi segir
ákvörðun sína
á engan hátt
tengjast rann-
sókn á starfs-
aðferðum Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogs, hvar hann sat
í stjórn, tólf áru séu einfaldlega
nægur tími. „Allt of margir líta
orðið á bæjarfulltrúastarfið sem
aðalstarf og ég hef áhyggjur af
þeirri þróun. Þannig er hætta á
því að menn missi tengsl við fólk-
ið í bænum.“ - kóp
Samfylkingin í Kópavogi:
Flosi hættur
FLOSI EIRÍKSSON