Fréttablaðið - 18.11.2009, Side 12

Fréttablaðið - 18.11.2009, Side 12
 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR ATHAFNAVIKA: Líf og fjör hjá hjónunum á Café Loka Það var líflegt á Café Loka við Lokastíg í gær þegar boðið var upp á rúgbrauðsveislu í tilefni Athafna- viku. Meðal annars var boðið upp á framandi rétti á borð við rúg- brauðsís og rúgbrauðskex. „Við köllum þetta Leik að rúg- brauði,“ segir Hrönn Vilhelms- dóttir, sem rekur Café Loka og hönnunarverslunina Textíl ásamt manni sínum, Þórólfi Antonssyni. „Við erum með mjög gott rúg- brauð alla daga en í tilefni af Athafnavikunni ákváðum við að breyta til og gera tilraunir,“ segir Hrönn. Þau hafi því boðið upp á margrétta rúgbrauðsmáltíð með nýstárlegum samsetningum. Á matseðlinum er rúgbrauð með fjórum áleggstegundum: karrísíld- arsalati, tvíreyktu hangikjötstar- tar og piparrótarrjóma, silungi og eggjahlaupi og síðast salamiblómi. Þar að auki var boðið upp á rúg- brauðsís með þurrkuðu rúgbrauði sem líkist krókant, og svokallað rúgbrauðskex, sem í raun er þurrk- að rúgbrauð og segir Hrönn það lostæti með volgri lifrarkæfu. „Það var mjög líflegt hjá okkur í hádeginu,“ segir Hrönn. Fjöldi fólks hafi komið og gætt sér á rúg- brauðinu og öllum líkað vel. „Vala Matt gat ekki hamið sig yfir rúg- brauðsísnum. Henni fannst þetta svo gott,“ bætir Hrönn við. Lík- lega verði ísnum haldið á matseðl- inum vegna vinsældanna. Réttirn- ir verða í boði fram yfir helgi. Þá hefur Laufey Steingrímsdótt- ir næringarfræðingur verið köll- uð til á laugardaginn næsta til að flytja fyrirlestur um rúgbrauð og kosti þess. Þema Athafnavikunn- ar í gær var athafnasemi kvenna, og af því tilefni ákvað Hrönn að fá einnig nokkrar listakonur til að sýna handgerðar handstúkur og grifflur í versluninni Textíl á hæð- inni fyrir neðan Café Loka. Hrönn segir handstúkurnar hafa verið afar ólíkar. Ein lista- konan hafi til dæmis gert sínar úr hreindýraleðri, önnur úr blöndu af þæfðri ull og silki og blúndum og sú þriðja úr jurtalituðu bandi. stigur@frettabladid.is Léku sér að rúgbrauði Hjónin sem reka Café Loka og verslunina Textíl buðu upp á framandi rúg- brauðsrétti í tilefni Athafnaviku og sýndu handstúkur eftir kvenhönnuði. „Vala Matt gat ekki hamið sig yfir rúgbrauðsísnum,“ segir Hrönn Vilhelmsdóttir kát. ATHAFNASEMIN ALLSRÁÐANDI Hrönn sýnir hér rúgbrauðsrétt- ina og í baksýn má sjá glitta í forláta handstúkur eftir íslenskar listakonur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ / G VA GÓÐAR FRÉTTIR Frídreifing verður áfram á höfuðborgarsvæðinu, suðvestur- horninu, Akranesi, Reykjanesi, Akureyri, í Borgarnesi og Árborg. Nú verður Fréttablaðið líka aðgengilegt í öllum öðrum landshlutum og fæst í lausasölu á kostnaðarverði. Þeir sem hafa áhuga á að fá blaðið til sölu á kostnaðarverði vinsamlegast hafið samband við Pósthúsið í síma 585 8300. Hér færðu Fréttablaðið á kostnaðarverði: Nú er Fréttablaðið aðgengilegt hringinn í kringum landið. Ásbyrgi Verslunin Ásbyrgi ehf Baula Verslun Blönduós N1 Potturinn og pannan Dalvík N1 – Olís Egilsstaðir N1 Eskifjörður Shell skáli Kría veitingastaður Fellabær Olís Hella Olís Hellissandur Hraðbúð N1 Húsavík N1 – Olís – Shell skáli Hvolsvöllur N1 Höfn N1 – Olís Ísafjörður N1 Kópasker Búðin Kópasker Laugavatn Tjaldmiðstöðin Neskaupstaður Olís Ólafsfjörður Olís Ólafsvík N1 – Olís Raufarhöfn Verslunin Urð Reyðarfjörður N1 – Olís – N1 Rif Umboð Shell / Tandur Sauðárkrókur N1 – Shell skáli Siglufjörður Olís Skagaströnd Olís Staðarskáli N1 Stykkishólmur Bónus – Olís – Bakarí Stöðvarfjörður Brekkan veitingastaður Vestm.eyjar N1 Víðigerði Verslunin Víðigerði Vík N1 Vopnafjörður N1 Þórshöfn N1 Allt sem þú þarft... Hægt er að fá Fréttablaðið sent frítt í tölvupósti á morgnana eða nálgast það á Visir.is. Óskað er eftir börnum tveggja ára eða eldri sem þjást af vægri eða meðalsvæsinni bráðri miðeyrnabólgu í klíníska lyfjarannsókn. Sprotafyrirtækið Auris ehf. vinnur að þróun lyfs til meðhöndlunar á bráðri miðeyrnabólgu. Rannsóknin hefur fengið ley Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar. Aðalrannsakandi er Hannes Petersen, sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum. Rannsóknarly ð inniheldur virka efnið týmól, sem er þekkt jurtalyf innan læknis- og lyfjafræðinnar fyrir bakteríudrepandi eiginleika sína. Týmól er algengt innihaldsefni í ýmsum kvef- og hóstalyfjum, munnskoli og húðsmyrslum. Tilgangur rannsóknarinnar er að leggja mat á verkun, öryggi og þol rannsóknalyfsins við meðferð á börnum, tveggja ára eða eldri, sem eru með væga eða meðalsvæsna bráða miðeyrnabólgu. Verkun lyfsins verður metin með smásjárskoðun (enska: otomicroscopy) á eyra, aðallega hljóðhimnu. Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi sem klárar rannsóknina fái 6 skammta (meðferð) af ly nu y r þriggja daga tímabil. Rannsóknarly ð verður ge ð í eyrnagang í þar til gerðum eyrnatappa. Mögulegar aukaverkanir af útvortis notkun týmóls eru m.a. erting (sviði, roði, kláði). Við meðferð með rannsóknarly nu gæti þáttakandi fundið fyrir smá sviða eða ertingu í eyra fyrst á eftir gjöf lyfsins. Hins vegar er vonast til að eyrnatappinn sem notaður verður til að gefa ly ð muni draga verulega úr ertingu eða jafnvel koma alveg í veg fyrir hana. Önnur áhætta af þátttöku felst í mögulegum ófyrirséðum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins. Þetta er í fyrsta skipti sem týmól er ge ð börnum með eyrnabólgu í klínískri lyfjarannsókn. Ly ð hefur áður verið ge ð heilbrigðum fullorðnum einstaklingum í rannsókn sem fór fram á Íslandi 2008. Alls er gert ráð fyrir 75 þátttakendum í rannsókninni. Rannsóknin mun fara fram á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, Háls-, nef- og eyrnadeild, Fossvogi, 108 Reykjavík. Þátttakendur koma í þrjár heimsóknir á u.þ.b 8 daga tímabili á rannsóknarset- ur og hitta rannsóknarlækni. Gert er ráð fyrir að skimunarheimsóknin muni taka um 60 til 75 mínútur en aðrar heimsóknir muni taka um 45 mínútur eða skemur Ekki verður greitt fyrir þátttöku. Þeir foreldrar/forráðamenn barna sem kynnu að hafa áhuga er bent á að leita frekari upplýsinga um rannsóknina á rann- sóknarsetri í síma 664 9901 eða 664 9902. Tekið skal fram að þeir sem hafa samband við rannsóknarsetur hafa á engan hátt skuldbundið sig (barnið sitt) til að taka þátt í rannsókninni. Taki barnið þátt, getur foreldri/forráðamaður þess dregið það út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni. AUR-OM-201 Klínísk lyfjarannsókn Er barnið þitt með væga eða meðalsvæsna bráða miðeyrnabólgu?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.