Fréttablaðið - 18.11.2009, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009 11hátíðarrit fríkirkjunnar ●
U
m þessar mundir höldum
við upp á 110 ára afmæli
Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík.
Söfnuðurinn var stofnaður
sem lúterskur fríkirkjusöfnuð-
ur árið 1899, en framkvæmdir
við kirkjubygginguna hófust árið
1901. Kirkjan var síðan fullbyggð
og vígð árið 1904.
Ári síðar eða árið 1905 þurfti
síðan að stækka kirkjuna og enn
á ný, árið 1941 voru byggðar við-
byggingar við kirkjuna.
Fríkirkjan er önnur kirkjan
sem reist er í Reykjavík. Bærinn
var þá ekki stór en hefur stækkað
mikið síðan. Fjölmargar kirkjur
voru reistar í Reykjavík á þessum
árum og söfnuðir stofnaðir í öllum
hverfum borgarinnar og nágrenni.
Fríkirkjusöfnuðurinn hefur vaxið
og dafnað á þessum tíma og er nú
orðinn einn stærsti kirkjusöfnuð-
ur á Reykjavíkursvæðinu.
Kirkjan okkar við Tjörnina í
Reykjavík er fyrir löngu orðin
táknmynd Reykjavíkur, þar sem
hún birtist á fjölmörgum myndum
af miðborg Reykjavíkur. Þar sem
kirkjan speglast í tjörninni, er hún
frábært myndefni fyrir ljósmynd-
ara. Hljómburður kirkjunnar er
mjög góður og nýtur hún því mik-
illa vinsælda hjá hljómlistarfólki,
sem sækist eftir að halda tónleika
í kirkjunni. Það hefur því verið
góð nýting á kirkjunni okkar, dag-
skráin verið fjölbreytt og dregið
að nýja safnaðarmeðlimi.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson
var ráðinn prestur og forstöðu-
maður safnaðarins fyrir rétt-
um tíu árum. Hann hefur unnið
ötult starf og verið duglegur við
að finna ný og krefjandi verkefni
fyrir söfnuðinn. Hann hefur notið
mikilla vinsælda og hefur söfn-
uður okkar rúmlega tvöfaldast á
þessu tímabili og nær nú yfir allt
stór Reykjavíkursvæðið.
Um leið og við fögnum þess-
um áfanga í sögu Fríkirkjunnar
óskum við söfnuðinum og starfs-
fólki kirkjunnar velfarnaðar á
komandi árum.
Steindór I. Ólafsson,
formaður safnaðarráðs.
Kirkjan okkar er
táknmynd Reykjavíkur
Steindór I. Ólafsson
„Í huga
mínum hefur
Fríkirkjan
orðið ein af
fáum kirkjum
þar sem allt
virðist koma
saman. Hún er
falleg og kyrrlát og býr yfir ein-
stöku andrúmslofti. Vegna frá-
bærs hljómburðar er kirkjan full-
kominn staður fyrir hið talaða
orð og tónlistarflutning. Fríkirkj-
an er hús þar sem manni líður
eins og maður sér kominn heim
og veitist að taka á móti eilífum
innblæstri Skaparans.”
Gerrit Schuil, píanóleikari.
„Ég hef tekið
þátt í mið-
næturmessu
Fríkirkjunn-
ar á aðfanga-
dagskvöld
síðan árið
2002. Þessi stund hefur alltaf
fangað anda jólanna, og snort-
in af fegurð og friði hef ég farið
út í jólanóttina.“
Monika Abendroth, hörpuleikari.
„Ef til er
hugsun sem
er óhugs-
andi, þá rúm-
ast hún innan
Fríkirkjunnar.
Fyrir sunnan
Fríkirkjuna, fyrir norðan Fríkirkj-
una, fyrir austan hús og vestan
er fagurt um að litast og innan
hennar rúmast sérhver mann-
leg hugsun.“
Egill Ólafsson, tónlistarmaður.
„Pabbi og
mamma
sungu með
Fríkirkju-
kórnum um
margra ára
skeið og
tóku mig með í allar messurnar.
Seinna kom það í minn hlut að
sjá um tónlistarflutninginn í fjöl-
mörgum athöfnum þar, brúð-
kaupum, jarðarförum sem og
á hátíðarstundum. Fríkirkjan í
Reykjavík er stærri partur af lífi
mínu en marga grunar.“
Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari.