Fréttablaðið - 18.11.2009, Síða 46
30 18. nóvember 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. skál, 6. skammstöfun, 8. rjúka, 9.
dæling, 11. í röð, 12. skjögra, 14. taka
ófrjálsri hendi, 16. drykkur, 17. léreft,
18. hrópa, 20. skóli, 21. skrifa.
LÓÐRÉTT
1. sæti, 3. fíngerð líkamshár, 4. ástir,
5. þvottur, 7. holdýr, 10. op, 13.
hlaup, 15. ilmur, 16. skír, 19. bardagi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ílát, 6. eh, 8. ósa, 9. sog,
11. tu, 12. slaga, 14. stela, 16. te, 17.
lín, 18. æpa, 20. fg, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. sess, 3. ló, 4. ástalíf, 5.
tau, 7. holsepi, 10. gat, 13. gel, 15.
angi, 16. tær, 19. at.
Stefán Karl Stefánsson fær mjög góða dóma
í hinu virta blaði Hollywood Reporter fyrir
frammistöðu sína sem Trölli í söngleik
byggðum á frægri bók Dr. Seuss.
„Trölli er fullkominn fyrir börnin þrátt
fyrir að einhver þeirra gætu hræðst inn-
komu hans á sviðið,“ segir í umsögninni.
„En eftir það er túlkun Stefáns Karls svo vel
heppnuð að tímabundin hræðslan fellur
í skuggann af virkilega góðum húmor,
ótrúlegum leik, mögnuðu gervi og frá-
bærum búningi. Fyrir aðdáendur Trölla
gengur þetta allt saman upp hjá Karli
sem skilar hlutverki flónsins í sannköll-
uðum Shakespeare-anda.“ Niðurstaða
gagnrýnandans er á þann veg að Stef-
án Karl sé besti Trölli allra tíma.
Stefán fær einnig góða dóma
hjá gagnrýnanda síðunnar Broad-
wayworld.com undir fyrirsögninni
„Trölli stelur hjörtum LA“. „Stefán
Karl leikur Trölla eins vel og hugs-
ast getur án tilgerðar eða ofleiks.
Hann hefur fullkomna stjórn á
túlkuninni, röddinni og viðbrögð-
unum. Hann er frábær.“
Söngleikurinn um það hvernig Trölli stal
jólunum var frumsýndur í hinu sögufræga
Pantages-leikhúsi í Hollywood síðastliðinn
laugardag og gert er ráð fyrir að hann verði
sýndur tólf sinnum í viku fram að jólum.
Upphaflega áttu Stefán Karl og hinn kunni
leikari Christopher Lloyd að skipta
hlutverki Trölla á milli sín og átti
Stefán í raun að vera varaskeifa
fyrir Lloyd. Vegna veikinda í fjöl-
skyldu Lloyds gat hann ekki tekið
þátt og nú er Stefán því einn í
sviðsljósinu. Það virðist síður en
svo koma að sök því miðað við
hina frábæru dóma er Stefán
sem fæddur í hlutverkið. Reynd-
ar hefur hann áður leikið Trölla
við góðan orðstír í San Diego,
áður en hann fluttist búferlum
til Los Angeles með fjölskyldu
sinni. - fb
TRÖLLI Stefán Karl Stefánsson fer á
kostum sem Trölli í Pantages-leikhúsinu í
Hollywood.
Fær frábæra dóma sem Trölli
„Þeir voru rosalega hrifnir.
Við höfum verið í samræðum
við framleiðendurna og þeir
hafa mikinn áhuga á áfram-
haldandi samstarfi,“ segir
Kristinn Þórðarson, framleið-
andi hjá Saga Film. Tökum á
rússnesku stórmyndinni Faust
lauk hér á landi á dögunum, eins
og komið hefur fram í Fréttablað-
inu. Íslensk náttúra var notuð í síð-
ustu fimmtán mínútum myndarinn-
ar og fóru tökur fram í hrauni skammt
frá Bláa lóninu, á Þingvöllum og víðar.
Tökudagarnir voru sjö talsins og kom
hingað til lands fjölmennt tökulið. Nemur
framleiðslukostnað-
ur Faust hundruðum
milljóna, enda er hún
ein stærsta rússneska
myndin á þessu ári. „Ég er hugsanlega að
fara að hitta þá í Rússlandi fyrir áramót.
Við ætlum að ræða um hvort myndir yrðu
áfram teknar á Íslandi, í Rússlandi eða
annars staðar í Evrópu. Þetta er bara á
fyrstu stigum en áhuginn hjá þeim er mik-
ill,“ segir Kristinn um hugsanlegt sam-
starf Saga Film við Rússana.
Leikstjóri Faust er Alexander Sokur-
ov, einn virtasti kvikmyndagerðarmaður
Rússlands. Hann var mjög ánægður með
dvöl sína á Íslandi, rétt eins og kvikmynda-
tökumaðurinn Bruno Delbonnel sem síðast
myndaði nýjustu Harry Potter-myndina og
hefur tvívegis verið tilnefndur til Óskars-
verðlaunanna.
Sigurður Skúlason fer með aukahlut-
verk í myndinni, auk þess sem leiklistar-
nemarnir Svandís Dóra Einarsdóttir og
Hilmar Guðjónsson koma við sögu. - fb
Rússarnir vilja meira samstarf
SOKUROV Leikstjórinn Alexander Sokurov var
mjög ánægður með dvöl sína á Íslandi rétt eins
og aðrir úr tökuliði Faust.
SIGURÐUR SKÚLASON
Sigurður fer með
aukahlutverk í stór-
myndinni Faust.
„Mér finnst fiskurinn í hádeg-
inu á Tilverunni á Linnetsstíg
í Hafnarfirði mjög góður og á
kvöldin er það nautasteikin á
veitingastaðnum Vínhúsinu í
Hafnarfirði.“
Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmda-
stjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress.
Björn Bragi Arnars-
son, nýráðinn ritstjóri
tímaritsins Monitor,
vinnur nú að lokaverk-
efni sínu í viðskipta-
fræði í Háskólanum
í Reykjavík.
Verkefnið er
um ólöglegt
niðurhal
á netinu og áhrif þess á tónlistar-
markaðinn, en niðurstöðurnar eiga
væntanlega eftir að vekja mikil
viðbrögð þar sem skiptar skoðanir
eru um áhrif niðurhals á sölu tón-
listar. Björn nýtti sér kraft netsins
til að kanna viðhorf fólks og fékk
gríðarlega góð viðbrögð.
Stutt er síðan Frétta-
blaðið greindi frá
því að sést hefði til
leikaranna Ilmar
Kristjánsdóttur
og Björns Thors
ræða málin yfir
rauðvínsglasi á
Boston. Margir
veltu fyrir
sér hvort
að þau væru að vinna að sameig-
inlegu verkefni og nú hefur það
komið á daginn. Þau verða kynnar
í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá
Borgarleikhúsinu þegar haldið
verður upp á Dag rauða nefsins 4.
desember. Það er UNICEF á Íslandi
sem stendur fyrir deginum, sem
síðast var haldinn hátíðlegur fyrir
þremur árum. Þá voru Ilmur og
Sveppi kynnar en Björn Thors tekur
nú við keflinu af Sveppa.
Útgáfufyrirtækið Kölski sem Barði
Jóhannsson er í forsvari fyrir fer vel
af stað. Tvær fyrstu plötur útgáf-
unnar flugu beint í efstu sætin á
sölulista Tónlist.is eftir að hafa verið
aðeins fjóra daga í
sölu. Get It together
með Hauki Heiðari
og félögum í Diktu
fór beint á toppinn
og We Lost the Race
með Ourlives fylgdi
fast á eftir.
- afb, fb, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Við hlökkum mikið til að heyra
þetta,“ segir söngkonan Erna Þór-
arinsdóttir.
Dóttir hennar, leikkonan Anita
Briem, syngur lagið C´est si bon á
væntanlegri safnplötu sem verð-
ur gefin út til styrktar Preserv-
ation Hall-byggingunni í New
Orleans. Forsvarsmenn bygg-
ingarinnar hafa djasstónlist frá
New Orleans í hávegum og er
starfsemin vel þekkt í banda-
rískum tónlistarheimi. „Ég var
hjá henni í vor þegar hún var að
syngja þetta og þetta var alveg
frábært,“ segir Erna, sem gerði
sér lítið fyrir og söng bakraddir í
laginu. „Þetta var tekið upp „live“
í Preservation Hall með bandinu
þar. Það var algjör snilld að vera
þarna. Hljómsveitin er búin að
spila þarna í fjörutíu ár. Þetta er
pínulítill staður í New Orleans en
ofboðslega frægur.“
Anita og Erna eru í sérlega
góðum hópi á plötunni því á meðal
þeirra sem eiga þar lög eru Tom
Waits, Bobby McFerrin og Paolo
Nutini. Platan er væntanleg 16.
febrúar á næsta ári. Auglýsingar
vegna hennar eru þegar farnar að
birtast erlendis og var Anita sett í
forgrunn í þeirri fyrstu.
Ástæðan fyrir þátttöku Anitu á
plötunni er sú að hún var stödd í
New Orleans að leika í nýrri kvik-
mynd þegar hún hitti fólk frá
Preservation Hall. „Þetta spannst
út frá því. Þeir vissu af því að hún
var líka að syngja,“ segir Erna.
Anita á ekki langt að sækja tón-
listarhæfileikana því auk þess að
vera dóttir söngkonunnar Ernu
er faðir hennar trommuleikar-
inn snjalli, Gunnlaugur Briem,
sem hefur gert garðinn frægan
með Mezzoforte og fleiri hljóm-
sveitum. Anita hefur því alla sína
ævi haft tónlistina í blóðinu, enda
lærði hún ung að aldri á flautu og
söng einnig í Graduale-kór Lang-
holtskirkju. Engu síður kemur
þátttaka hennar í gerð þessarar
nýju safnplötu á óvart því hingað
til hefur hún verið þekktari sem
ung og upprennandi leikkona í
Hollywood.
Mikil starfsemi tengd djassi fer
fram í Preservation Hall-bygging-
unni, þar sem ungir sem aldnir
djassarar leiða saman hesta sína.
Byggingin var reist um miðja átj-
ándu öld en þar er hvorki rennandi
vatn né loftræsting. Lítil aðstaða
er þar sömuleiðis fyrir áhorfenda-
bekki og því veitir forsvarsmönn-
um byggingarinnar ekki af auknu
fjármagni til uppbyggingar. Það
er því ljóst að ágóðinn af þessari
nýju safnplötu á eftir að koma að
sérlega góðum notum.
freyr@frettabladid.is
ERNA ÞÓRARINSDÓTTIR: HJÁLPAÐI DÓTTUR SINNI Í NEW ORLEANS
Söng bakraddir hjá Anitu
Briem á góðgerðaplötu
Á PLÖTU MEÐ TOM WAITS
Anita syngur lagið C´est si bon á nýrri
safnplötu sem er væntanleg á næsta
ári. Tom Waits syngur einnig lag á
plötunni.
GLÆNÝ LÍNUÝSA
STÓRLÚÐA PLOKKFISKUR
MARINERAÐUR FISKUR
FISKIBOLLUR
TILBOÐ Í VEITINGASAL
Súpa fi skur og kaffi 990