Vikan - 01.03.1951, Page 2
2
VIKAN, nr. 9, 1951
PÓSTURINN •
Elsku Vika mín!
Mig- langai- til að biðja þig um
að segja mér eftirfarandi, og svar-
aðu mér nú fljótt og vel.
1. Hvað heitir sá, sem lék Oliver
Twist í samnefndri kvikmynd, sem
var sýnd einu sinni í Tjamarbíó, í
Reykjavík, og hvað er hann gamall?
2. Viltu segja mér eitthvað um
Gloria De Haven og heizt birta mynd
af henni?
3. Hvernig er skriftin?
Inflúenzusjúklingur.
Svar: Hann
heitir John How-
ard Davies og er
jfæddur 1939.
Hann var kjörinn
úr hópi 1.500 pilta
til þess að leika
aðalhiutverkið í
kvikmyndinni Oli-
ver Twist, en það
var fyrsta hlut-
verkið sem hann
lék. — 2. Gloria
DeHaven er fædd
23. júlí 1925 í Los
Angeles. Hún var
fyrst óvirkur leikari, en söng síðar
með danshljómsveit Bob Crosbys, en
þaðan komst hún í kvikmyndina. —
3. Skriftin er óregluleg, en sæmilega
læsilega.
Svar til „Björns Dufandals“:
Það er rangt, að við höfum ekki
svarað bréfi frá þér áður. Svarið
birtist í nr. 27, 13. júlí siðastliðið
sumar.
1. Hvað fyrstu spurninguna snertir
Gufuboranir í Krísuvík
(Sjá forsíðu).
Forsíðumynd VIKUNNAR
tók Hjálmar R. Bárðarson af
gufugosinu mikla í Krísuvík.
Þriðjudaginn 12. september
1950 þeyttist í fyrsta skipti 60
—70 metra hár gufustrókur
upp úr borholu einni í Krísu-
vík, og þar með höfðu Hafn-
firðingar náð glæsilegum á-
rangri af tveggja ára borun —
og gosið heldur áfram án af-
láts síðan. Nú gera menn sér
því vonir um, að hér sé eilífðar-
aflgjafi, er nýta megi til raf-
orkuframleiðslu.
Þessi 20 centimetra víða bor-
hola var boruð með fallborvél
og borunarmeitli, sem vegur eitt
tonn. Fyrst var borað í 100
metra dýpi, en þá kom upp
sjóðandi vatn, sem talið er ill-
ur fyrirboði, þegar borað er
eftir gufu. Var nú ákveðið að
kæfa vatnsgos þetta með því að
er því sama að svara og i sumar:
hún er of persónuleg. Annars er bezt
fyrir þig að létta á hjarta þínu við
stúlkuna og sjá, hvað upp úr því
hefst. — 2. Það er misjafnt, hve fljótt
fólk er að læra að dansa. — 3. Engin
skömm er að því að bjóða stúlku í
dans, þó að maður dansi ekki vel.
— 4.Fólk lærir'dans á öllum aldri í
Reykjavik og margir kenna hann. —
5. Kostnaðurinn fer eftir því, hve
lengi er verið að því!
Svar til Reynis:
Þú ættir að reyna að skrifa flug-
málaatjórninni. Því miður vitum við
ekkert um þessi mál.
Uppeldisskóli Sumargjafar.
,,Vikunni“ hafa borizt fjöldi spum-
ingabréfa varðandi uppeldisskóla
Sumargjafar, og ætlum við hér með
að svara þeim öllum í einu.
Uppeldisskólinn er tveggja ára
nám, og hefst hann næst 15. septem-
ber þessa árs með bóklegu námi, og
stendur það yfir til 1. maí, en að því
loknu hefst tólf mánaða verknám á
bamaheimilum í Reykjavík. Loks
endar skólinn með eins mánaðar (frá
1. maí til 1. júní) bóklegu námi, og
útskrifast nemendur að því loknu.
Þær stúlkur, sem vildu hefja nám
i þessum skóla næsta haust, verða
að hafa skilað umsóknum fyrir 1.
maí næstkomandi, því aðsókn að skól-
anum er mikil.
Inntökuskilyrðin í skólann eru, að
nemandi hafi lokið gagnfræðaprófi,
eða hlotið hliðstæða menntun, en
geti nemandinn ekki vísað fram próf-
skírteini frá gagnfræða-, unglinga-
eða héraðsskóla, verður hann að taka
inntökupróf, en það er haldið í maí.
Helztu kennslugreinar skólans em:
Uppeldis- og sálarfræði; líkams-
leiða kalt vatn niður í borhol-
una. Holan var síðan klædd
rafsoðnum stálrörum 20 cm. að
þvermáli og 100 metrar að
lengd. Þvínæst- var borun hafin
aftur í nóvember 1949 og borað
þar til gosið kom 12. sept. 1950,
en þá var dýpt borholunnar
orðin 230 metrar og hitinn 200
gráður Celcius.
Upprunalega var talið, að
gufumagnið jafngilti um 5000
hestöflum. Við nánari athugun
síðar mun hafa orðið ljóst, að
töluvert vatnsmagn er blandað
gufunni og munu því um 4000
hestöfl vera sanni nær. Nú er
unnið að frekari athugun á
nauðsynlegum vélum og bún-
aði til að hagnýta kraft þenn-
an til raforkuframleiðslu, en til
þess þarf m. a. lágþrýsta gufu-
túrbínu til að knýja rafalinn
sem framleiðir rafmagnið; Þessi
nýting jarðhitans er nýjung
hérlendis, en einkum á ítalíu
eru slikar rafstöðvar í notkun
og taldar gefa góða raun.
og heilsufræði; meðferð ungbarna;
næringarefnafræði; þjóðfélagsfræði;
íslenzka; átthagafræði; föndur; teikn-
ing og smíði; barnafatasaumur og
gítarleikur.
Skólagjald er ekkert, en nemendur
verða að sjá sér sjálfir fyrir húsnæði
og uppihaldi. En á meðan á verknámi
stendur fá nemendur eitthvað kaup.
Að námi loknu hafa nemendur
fengið réttindi til að vinna á barna-
heimilum og veita þeim forstöðu, og
eru atvinnumöguleikar því mjög góð-
ir, sérstaklega á sumrin.
Frekari upplýsingar mun vera
hægt að fá hjá frú Valborgu Sigurð-
ardóttur, skólastjóra, Fjölnisvegi 4,
Reykjavík.
Kæra Vika min!
Mig langar til að biðja þig að
svara spumingu minni, þó hún sé
óvanaleg. Getirðu frætt mig á því
hvar Ólafur Tryggvason læknir á
heima í Reykjavík? Ég þarf nauð-
synlega vita það en ég get ekki snú-
ið mér til neins nema til þin. Ég
óska eftir svari sem allra fyrst.
Lesandi Vikunnar.
Með beztu kveðju. S. J.
Svar: Ólafur Tryggvason hefur
lækningastofu í Aðalstræti 18, en á
heima í Mávahlíð 2, Reykjavík.
Halló Vika mín!
Getur þú sagt mér hvaða ár
ameríska tónskáldið, George Ger-
shwin, dó og hvað hann varð gamall ?
Kveðja og fyrirfram þökk.
Krissa.
Hvernig er skriftin?
Svar: George Gershwin var fædd-
ur 1898, en dó 1937, hann varð sem
sagt 39 ára gamall.
Skriftin er áferðarfalleg og læsi-
leg.
*»»Hi»»»iHi»iiinmiH»»n»ii»»i*HHHm»»HHHn»ii»»H*lilM»»M» •/,
| Tímaritið SAMTÍÐIN |
: Flytur snjallar sögur, fróðlegar 1
: greinar, bráðsmellnar skopsögur, É
É iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. [
É 10 hefti árlega fyrir aðeins 25 kr. |
= Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. H
É Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. :
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Laufey Helgadóttir (við pilta 20—
25 ára. Æskilegt að mynd fylgi
bréfi), Læknishúsinu, Fáskrúðs-
firði.
Guðrún Helga Björgvinsdóttir (við
pilta 20—25 ára. Æskilegt að
mynd fylgi bréfi), Svalbarðseyri,
Fáskrúðsfirði.
BRÉFASAMBÖND
Það kostar yður mjög lítið,
að komast í skemmtileg bréfa-
sambönd innanlands eða utan!
Skrifið eftir upplýsingum.
Bréfaklúbburiivn GEYSIR,
Barmahlið 18 — Rvík.
-
Vikunni barst nýlega bréf frá
Elisabeth Kallevig, í Osló i Noregi.
Hún skrifaði okkur fyrir hönd
„Skolenes Brevklubb“ og bað okkur
um að koma eftirtöldum nöfnum á
framfæri. Hún segir meðal annars í
bréfi sínu, að „Skolenes Brevklubb"
hafi bréfasamband við flest lönd, en
því miður hafi þeir ekki ennþá enn-
þá komizt í samband við Island, en
meðal norskrar æsku kvað rikja mik-
ill áhugi fyrir landi og þjóð, og sagði
hún, að það væri einlæg ósk sín að
íslenzkt-norskt bréfasamband mætti
takast sem fyrst.
Þessir Norðmenn óska að komast
í bréfasamband við Islendinga:
Karl John Grönning (er 22 ára og
óskar að komast í bréfasamband við
pilt 20—25 ára), Lærerskolen, Le-
vanger, Norge.
Sveinung Raddum (er 12 ára
drengur, sem óskar eftir bréfasam-
bandi við jafnaldra sinn), Skreia,
Norge.
Anne Marit Lund (er 11 ára telpa,
sem óskar eftir bréfasambandi við
jafnöldru sína), Kraby, Norge.
Willy Rasch (er 12 ára drengur,
sem óskar eftir bréfasambandi við
jafnaldra sinn), Tordenskjoldsgate 2,
Holmestrand, Norge.
Kjell Midtsæter (13 ára piltur, sem
óskar að komast í bréfasamband við
15 ára pilt), Indre Arna, pr. Bergen,
Norge.
Randi Stavdal (15 ára stúlka, sem
óskar eftir bréfasambandi við 15 ára
pilt), Schweigaardsgatá 8, Skien,
Norge.
Hildur Landfald (16 ára stúlka
sem óskar eftir bréfasambandi við
jafnöldru sina), Solum, Skien,
Norge.
Karen Else Böhle (15 ára stúlka,
sem óskar eftir bréfasambandi við
16 ára pilt), Torgeir Vrásgt. 17,
Skien, Norge.
Haldor Odden (13 ára piltur sem
óskar eftir bréfasambandi við jafn-
aldra sinn), Bustrak, Drangedal,
Norge.
Fanney Björnsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—22 ára), Göngustaðakoti,
Svarfaðardal, Eyjafjarðarsýslu.
Lilla Tryggvadóttir (við pilta eða
stúlkur 16—22 ára), Þorsteinsstöð-
um Svarfaðardal, Eyjafjarðarsýslu.
Árni Gunnarsson og
Jón Sveinsson (óska eftir bréfa-
viðskiptum við stúlkur 18—23 ára.
Mynd fylgi bréfi). Báðir á M/b
Heimir, Hafnarfirði.
Sigrún Aradóttir (við pilt eða stúlku
13—16 ára. Mynd fylgi bréfi),
Kirkjuhvoli, Akranesi.
Jónína S. Óskarsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—17 ára), Grund, Eski-
firði.
Margrét Gunnarsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—17 ára), Brekku, Eski-
firði.
Oddný Gísladóttir (við pilt eða stúlku
15—16 ára), Sjólyst, Eskifirði.
Elsa Guðmundsdóttir (við pilta 14
—17 ára), Felli, Norðurfirði,
Strandasýslu.
Frigga Ingibergsdóttir (við pilta 16
20 ára), Munaðarnesi, Norðurfirði,.
Strandasýslu.
Framhald á bls. 15.
Utgefandi VTKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365..