Vikan


Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 14

Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 14
14 VIKAN, nr. 9, 1951 AFBRÝÐISEMI. Pramhald af bls. 4. Bent þreif upp fimmkrónur, fékk bíl- stjóranum og sagði: „Ekkert til baka. ‘ Hann flýtti sér til Birte og mælti: ,,Ég skal bera böggulinn upp fyrir þig.“ „Þess gerist ekki þörf, ég get sjálf borið hann,“ sagði Birte. „Nú,“ mælti Bent alvarlegur. Birte var rétt kominn inn um útidyrnar þegar Bent kom auga á gráa bílinn. Hann kom fyrir hornið. Bent skellti hurðinni aftur og hljóp. upp tröppurnar á undan Birte. Hún varð móð við að fylgja honum eftir. Á þriðju hæð nam Birte staðar. Þar átti hún heima. Hún sneri sér að Bent og mælti: „Þú ætlaðir að segja eitthvað áðan.“ Bent þóttist sjá það á augnaráði henn- ar að öllu væri óhætt. Hann tók utan um Birte og kyssti hana. Hún stritaðist ofurlítið á móti. En það voru látalæti. Bent kyssti Birte aftur og mælti: „Birte! Ég elska þig — elska —“ „Slepptu mér! Það er einhver að koma.“ Hún sleit sig af honum. Það var satt. Bent heyrði að gengið var um útidyrnar. Hann leit niður. Albert! Á næsta augnabliki kvað við brothljóð. Bent hafði misst tóbakskrukkuna niður á ganginn. Niðri kvað við óp. Hann mælti: „Fyrirgefðu Birte. Ég missti krukkuna þína.“ Útidyrahurðinni var skellt. Einhver fór út. „Þetta var klaufalegt og gat valdið slysi,“ sagði Birte snúðug. Það varð fátt um kveðjur. Þegar Bent kom út lá illa á honum. „Þetta verða ó- skemmtileg jól,“sagði hann við sjálfansig. Á aðfangadaginn fór Bent heim til Birte og hringdi dyrabjöllunni. Birte kom til dyra. Bent hafði tvo böggla meðferð- is. Annað var stór blómvöndur. Bent rétti Birte hann, en kom engu orði upp. Hún tók þegjandi við blómvendinum og virtist ekki ætla að bjóða Bent inn. Hann ræskti sig nokkrum sinnum. Þá mælti hann: „Ég vildi aðeins óska þér gleðilegra jóla. En svo var það annað, sem ég gjam- an vildi tala um við þig. „Ekki að þessu sinni,“ sagði Birte og hristi höfuðið. „Ég er ein heima.“ Hún hörfaði aftur á bak og hann fór á eftir. Er hún var komin inn úr stofudyrunum mælti hún: „Hvað er þér á höndum?“ Bent rétti hinn böggulinn að henni og sagði: „Ég ætlaði að biðja um fyrrgefn- ingu á því að ég braut krukkuna í gær- kvöldi. Mér þótti það afar leiðinlegt. Ég hefi því keypt aðra tóbakskrukku. Hér er hún. Ég vona að þú takir við henni. Þá veit ég að þú hefur fyrirgefið mér.“ Birte hristi höfuðið og mælti: „Það kemur ekki til mála.“ Bent sagði: „Ég harma það, hve æstur ég varð í gærkvöldi. Það getur farið svo, fyrir öllum.“ Hann þagði augnablik rétti úr sér og bætti við: 563. KROSSGÁTA VIKUNNAR Lóörétt skýring: 1. flatarmál, þ.f. —■ 5. spurnarfornafn. — 7. gælunafn. — 11. líkams- hluti. — 13. dæld. — 15. heiður. — 17. jötur. — 20. biblíunafn. — 22. vera meðvitundarlaus. — 23. vera úr öðrum heimi. — 24. sorgartjáning. — 25. flýti'. — 26. tómasar- eðli, þf. — 27. standa. — 29. forskeyti. — 30. kyrrð. — 31. þyngd umbúða. — 34. birgðir. — 35. eldstæði. — 38. jarðefni. — 39. gin. — 40. römm. — 44. bíl- tegund. —■ 48. læti. — 49. sigaði. — 51. gælu- nafn, þf. ■—■ 53. kven- mannsnafn. — 54. planta. — 55. hreinsa. — 57. lágt hljóð. — 58. púðri. — 60. á litinn. — 61. feng. — 62. sneri. — 64. æða. — 65. dug- leg. — 67. innyfli. — 69. óveður. — 70. sama og 4 lóðrétt. — 71 hryggir. Lóðrétt skýring: 2. Heimta. — 3. guð. — 4. upphrópun. — 6. hlý. — 7. verkfæri. — 8. fæði. — 9. ílát. — 10. hleypa af stað. — 12. viðlagið. — 13. misgengar. — 14. mannsnafn. — 16. ótið. — 18. æddi. — 19. trébryddinga. — 21. skortur. — 26. bókstafur. — 28. sendill. — 30. styrkleikatákn í tónlist. — 32. leiða. —- 33. hvíld. — 34. ögn. — 36. nudda. — 37. forsetning. —41. hjálparsögn. — 42. væskil. ■— 43. hjó i sundur. — 44. tala. — 45. þáttur. — 46. þrír eins. — 47. verkfæri. — 50. húsdýr. — 51. feykir. — 52. árás. — 55. stautur. — 56. beinir. — 59. gripahús. — 62. kvenmannsnafn. — 63. bæjarnafn. — 66. drykkur. — 68. forsetn- ing. Lausn á 562. krossgátu Vikunnar. Ldrétt: 1. Æska. — 5. skraf. — 8. klór. — 12. stáss. — 14. skáli. — 15. tak. -— 16. nær. — 18. akk. — 20. suð. — 21. ar. — 22. fulltrúar. — 25. na. — 26. froða. — 28. krydd. — 31. æra. — 32. bor. — 34. akr. — 36. verk. — 37. basar. — 39. lóða. — 40. óræk. -— 41. kæti. — 42. full. —- 44. rafið. — 46. Nasi. — 48. oft. — 50. ráð. — 51. ögn. — 52. stari. — 54. öfund. — 56. ek. — 57. ráðsmaður. — 60. óm. — 62. rán. — 64. sný. — 65. tug. — 66. ama. — 67. fress. — 69.tæpur. —- 71. tifa.----72. tafir. — 73. fira. Lóðrétt: 1, Æsta. — 2. starf. — 3. kák. — 4. as. — 6. karl. — 7. arar. — 8.kk. — 9. lás. — 10. ólund. —- 11. riða. — 13. snuða. — 14. skara, — 17. æla. — 19. kúk. — 22. forkólfar. — 23. tros. — 24. ryklingur. — 27. rær. — 29. dró. — 30. svifa. — 32. bakar. — 33. rakið. — 35. Danir. — 37. bær. — 38. ræð. — 43. Lot. — 45. fáum. — 47. ann. — 49. tráss. — 51. öfugt. -— 52. skári. — 53. iðn. — 54. öðu. — 55. dómur. — 56. erft. — 58. sýna. — 59. Atli. — 61. mara. — 63. nef. — 66. api. — 68. S.A. — 70. æf. ¥ „Ég missti krukkuna viljandi. Ég fleygði henni.“ „Jæja. Hvers vegna?“ „Vegna þess að Albert var niðri í and- dyrinu. Hann elti okkur alla leið. Ég hefði ekki harmað það þó krukkan hefði lent í hausnum á honum. Ég hata hann.“ Birte stóð svo nærri Bent að hann varð að láta krukkuna á borðið. Hún mælti: „Albert er góður maður. Hversvegna hatar þú hann?“ Bent svaraði: „Ég elska þig Birte.“ Hann ætlaði að segja meira. En af því varð ekki. Hann var farinn að faðma Birte fyrr en hann vissi af. Munnar þeirra mætt- ust ósjálfrátt. Bent sá hvar jólatré stóð úti í horni. Honum virtist kvikna ljós á öllum kertunum, svo himinlifandi var hann af þeirri sælu að faðma og kyssa Birte. „Heimski, heimski pilturinn,“ sagði Birte. Bent sagði: „Ertu búin að fyrirgefa mér? Má ég koma á morgun?“ „Auðvitað, Bent. Þetta verða fyrstu jólin sem við verðum saman. En ekki þau síðustu. Við verðum hvort hjá öðru mörg, mörg jól. En þú mátt ekki vera reiður Svör við „Veiztu —?“ á bls. 4: 1. Það er fluttur inn trjáviður til J3razilíu vegna þess að það er ódýrara að kaupa hann ut- anlands frá en að flytja hann frá skógunum og til byggða. — 2. Haukur Einarsson á Islands- metið í stakkasundi (hann synti 100 m. á 2:24,4 mín). Metið var sett 19/7 1933 í Reykjavík. —- 3. Árið 1906, 57 ára gamall. — 4. 1525-1594. Itali. — 5. Gyllinæð. — 6. Mona Lisa. — 7. Napoleon 3. Maximilian var drepinn 1867. — 8. Firth of Forth. — 9. Um 1266—1337. — 10. Um 100 f. Kr. við Albert. Við vorum búin að tala um það, að hann kæmi í bíl og sækti mig. Ég hitti þig af tilviljun." Bent mælti: „Það var ekki tilviljun. Ég var búinn að standa og bíða eftir þér, að minnsta kosti hálfa klukkustund.“ Birte sagði: „Já, ég þóttist vita það.“ Hún hló. „Nú verðurðu að fara. Ég á svo annríkt.“ Þau föðmuðust aftur, og hann sagði: „Þú verður að þiggja þessa krukku til þess að fullvissa mig um að þú sért búin að fyrirgefa mér.“ „Nei, ég vil ekki taka vð krukkunni,“ sagði hún og losaði sig úr faðmi hans. „Hvers vegna ekki?“ spurði Bent. „Vegna þess að ég ætlaði að gefa þér krukkuna í jólagjöf.“

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.