Vikan


Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 13

Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 9, 1951 13 ÖSKUBUSKA FráSögn eftir Inga-Britt Allert. Teikningar eftir Nils Hansson. COPYRIGHT A- I> ALC.AS KONST- & BOKFQllLAC. STHLM 10 I konungshöllinni var dansað og sungið. Prinsinn ungi, sem hafði þegar dansað við allar stúlkurn- ar á dansleiknum, sá Öskubusku, þegar hún kom inn í salinn, og samstundis flýtti hann sér til hennar . . . Aldrei fyrr hafði Öskubuska skemmt sér svona vel. Og þegar prinsinn hvíslaði að henni hvað hún væri falleg, og hvað hún dansaði vel, gleymdi hún, að hún var ekki annað en lítil Öskubuska. En allt í einu sló stóra gullklukk- an í höllinni hálf tólf, og þá fannst henni húh verða að hneigja sig og kveðja. Prinsinn reyndi að tala um fyrir henni, og fá hana til að vera dansleikinn á enda, en Öskubuska hristi höfuðið, og áður en prinsinn gat áttað sig, hljóp hún af stað. Prinsinn reyndi að veita henni eftirför. Hann vildi ólmur fá að vita, hver þessi fagra stúlka væri. En Öskubuska var kvik á fæti, og þó að prinsinn hlypi á eftir henni eins hratt og hann gæti, þá hljóp hún ennþá hraðar en hann. Þegar þau komu á móts við dúfna- húsið á bæ föður hennar, dró ský fyrir tunglið, og þegar birti aftur, var stúlkan horfin. Prinsinum fannst hún hafa horfið inn í dúfnahúsið, og þessvegna beið hann um stund þar fyrir utan. . . . og bað hana um næsta dans. Þau dönsuðu fram og til baka um salinn, og frá þeirri stundu vildi prinsinn ekki dansa við neina aðra stúlku. Og þegar einhver annar bað hana um dans, sagði prinsinn: „Sjáið þér ekki, að hún er að dansa við mig?“ Allir viðstaddir spurðu hvom ann- an hver þessi undurfagra stúlka væri. Stjúpa og fóstursystur ösku- busku þekktu hana ekki einu sinni, og allir héldu, að hún væri prins- essa frá fjarlægu landi. 1. mynd: Upphaf fagnaðarboð- skaparins um Jesúm Krist, Guðs son. Svo sem ritað er hjá Jesaja spá- manni: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er búa mun þér 'veg. 2. mynd: ... kom Jóhannes skirari fram í óbyggðinni og prédikaði iðr- unarskírn til syndafyrirgefningar ... 3. mynd: Og þegar knýr andinn hann út í óbyggðina, og hann var í óbyggðinni í fjörutíu daga og var hans þar freistað af Satan. 4. mynd: Jesús sagði við þá: Kom- ið og fylgið mér, og mun ég láta yður verða mannaveiðara. Og Jesús fór um allar borgirnar og þorpin, kenndi í samkundum þeirra og predikaði fagnaðarboðskapinn um ríkið og læknaði hvers konar sjúk- dóma og hvers konar krankleika. Matteusarguðspjall 9:35.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.