Vikan


Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 3

Vikan - 01.03.1951, Blaðsíða 3
VIKAN, nr. 9, 1951 3 Snædrottningin í Þjóðleikhúsinu Or ævintýraleiknum Snædrottningin. 1 ræningjabælinu. Lengst til hægri: Emilía Jónasdóttir sem Salvör ræningjaforingi með Breddu, dóttur sína (Friðrikka Geirsdóttir) á bakinu, báðar mjög hressilegar í hlutverkum nínum. Þjóðleikhúsið hefur tekið upp þá skemmtilegu nýbreytni að sýna barnaleikrit og er ekki ó- líklegt, að slík verkefni verði með því vinsælasta, sem stofn- unin hefur með höndum, að minnsta kosti spáði frumsýning Snædrottningarinnar góðu um það. Væri það ekki lítið þarfa- verk, ef hægt er að beina börn- um og unglingum að einhverju þó nokkru leyti frá miður heppi- legum bíómyndum að hollum leikritum. Snædrottningin er ævintýra- leikur í tveimur þáttum. Eugene Schwartz hefur samið hann eft- ir samnefndri sögu H. C. Ander- sens, danska ævintýraskáldsins fræga. Bjarni Guðmundsson sneri á íslenzku enskri gerð leiksins eftir Seria Magito og Rudolf Weil. Leikstjóri er Hild- ur Kalman, músik eftir Henry Boys, stjórnandi Jórunn Viðar, en dansana hefur Sif Þórz samið. Þetta er gamla sagan um góðar og slæmar manneskjur og baráttuna á milli þeirra og auðvitað er hið góða látið sigra, eins og vera ber í fallegu ævin- týri. I leiknum eru dýr sem tala og margt annað skemmtilegt við barna og unglinga hæfi, t. d. er mjög gaman að Krák (Ró- bert Arnfinnsson) og Kráku (Þóru Borg) og ekki spilla hreinninn (Margrét Ólafsdótt- ir) og hvítabirnirnir (María Þorvaldsdóttir, Kristín Jó- hannsdóttir og Steinunn Helga- dóttir) gleðinni. Ræningjarnir eru hressilegir, einkum Salvör, foringinn, og Bredda, dóttir hennar. Snædrottningin er tign- arleg, enda hlutverkið í góðum höndum (Inga Þórðardóttir). Börnin, Helga og Karl (Ragn- hildur Steingrímsdóttir og Val- ur Gústafsson) eru látlaus og viðkunnanleg og Helga amma (Regína Þórðardóttir )prýðileg. Ekki vantar kónginn (Valde- mar Helgason) í ævintýrið og kóngsefnið (Jóhann Pálsson), og kóngsdóttur (Anna Stína Þórarinsdóttir). Síðast en ekki sízt nefnum við sögumanninn (Jón Aðils), sem sá um að koma leikhúsgestum strax í gott skap og var alltaf sérlega velkominn á sviðið, og svo söng hann stundum með léttilegu lát- bragði: Snipp, snapp, snubbur, stubbur, Mossi, kubbur, snipp, snapp, snubbur, smellana, skeltana, skot. Það þarf engan að undra, sem fylgzt hefur með leikferli Jóns Aðils, að hann stóð sig svona prýðilega í Snædrottningunni. Hann hefur marga strengi til að leika á. Og langt mun vera frá, að þeir muni allir hafa fengið að njóta sín fram að þessu. En ólíklegt er, að ungu leikhús- gestimir gleymi honum strax. Að lokum skulu foreldrar kvattir til að leyfa börnum sín- um að sækja ævintýraleik þenn- an. Úr ævintýraleiknum Snædrottningin. Þrir aðal- leikendanna. Frá vinstri: Ragnhildur Steingríms- dóttir sem Helga, Regína Þórðardóttir sem amma Helgu og Valur Gústafs- son sem Karl. (Ljósm.: Vignir). UR YMSUM ATTUM Ung stúlka fór með manni í kvik- myndahús. Myndin, sem þau sáu var mjög sorgleg, og stúlkan fann, að andlitsfarðinn mundi hafa aflagazt, þegar hún úthellti tárum vegna af- drifa söguhetjunnar. 1 myrkrinu fór hún að reyna að lagfæra á sér and- litið, hún dyfti á sér nefið og mál- aði á sér varirnar. En hvernig hald- ið þér að henni hafi orðið við, þeg- ar hún kom út og sá að varir henn- ar voru kolsvartar. 1 myrkrinu hafði hún tekið augnabrúnablýantinn sinn í stað varalitsins. ! ! ! 1 nútíðarmáli er venjulega sagt bringsmalir í stað bringspalir. Bring- spali er fleirtölumynd orðsins bring- spöl, er kemur fyrir í Harðar sögu Grímkelssonar ok Geirs og í Forn- aldar sögum Norðurlanda, en algeng- asta myndin I fornmálinu er bring- spölr, flt. bringspelir. Spölr er gam- alt orð og táknar mjóa stöng, rimil, sbr. róspölr, spölkorn, ganga stutt- an spöl, sænsku máll. spalu, norsku spol o. s. frv. Bringspölr er til á norsku: bring(e)spol, bringspöli (flt.), bringespela. (A. J. Hugur og tunga). ! ! ! Á Skólavörðuhæðinni stóð eitt hinna sárafáu mannvirkja í Reykja- vík, Skólavai'ðan, sem piltar í Hóla- vallarskóla höfðu upphaflega hlaðið í líkingu við samskonar vörðu, sem staðið hafði í skálholti. Tvívegis hafði hún hrunið, en nú lét lands- fógetinn Árni Thorsteinsson, byggja hana frá grunni árið 1868. Sigurður málari var að mestu látinn ráða gerð hennar, og hann hafði á prjónunum hugmyndir um meiri byggingar í sambandi við hana, jafnvel alþingis- hús. Um skipulag Reykjavíkur hugsaði hann mikið og gerði kort yfir fram- tíðargötur um bæinn. Hann sá ráð til að losna við ljótu kumbaldana í miðbæjarkvosinni. Tjörnina skyldi dýpka, gera hana að höfn fyrir bæ- inn, en grafa að henni skipgengan skurð i gegnum kvosina. Lika hug- mynd var Tryggvi Gunnarsson síðar með á prjónunum. Allar stórbygg- ingar framtíðarinnar hugsaði hann sér á hæðunum beggja vegna Tjarn- arinnar, Tjárnarbrekkurnar prýddar með gosbrunnum og skrautgróðri, en ibúðarhúsin með skrúðgörðum ofar. (J. A.: Sigurður Guðmundsson mál- ari). ! ! ! Islenzka orðið stúlka stendur senni- lega fyrir staul-k-a, myndað af sögn- inni að staulast áfram, en k er al- gengt viðskeyti, sbr. blaðka, brúnka, doðka, . . . Staulka hefur uppruna- lega verið meystaulka, sbr. svein- stauli (sveinn er staulast áfram) og orðið meystúlka kemur fyrir í Flat- eyjarbók, í sögu Ólafs Tryggvason- ar. (Alexander Jóhannesson, Hugur og tunga.) Starfsemi Feröafélags íslands Vetrarstarfsemi Ferðafélags Islands er merkileg eins og sumarstarfið. Fundir þess eru yfirleitt fjölsóttir og oftast upp á eitthvað að bjóða, sem fróð- leikur og skemmtun er í. Ferðafélag Islands efndi til skemmtifimdar í Sjálfstæðis- húsinu 8. febr. Á fundinum var sýnd litkvikmynd Ásgeirs Jóns- sonar frá leiðangri átta manna í fjórum jeppabílum inn í óbyggðir landsins, og þátttöku þeirra í leiðangri þeim, er gerð- ur var út til bjargar áhöfninni á flugvélinni „Geysi“. Sýnir myndin ýms atriði úr björgun- unni. Myndin er vel tekin og fróðleg og er rúman klukku- tíma verið að sýna hana. Á eftir var dans stiginn til klukk- an eitt.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.