Vikan - 01.03.1951, Síða 7
VIKAN, nr. 9, 1951
7
FRÁ SKRIFSTOFU EFNAHAGS-
SAMVINNUSTOFNUNARINNAR Á
ISLANDI:
Ný framlög til fslands frá
Marshallsfofnuninni að
upphæð $700,000.
Framlög.
Efnahag'ssaniv’innustofnunin hefur
nýlega tilkynnt að Islandi hafi verið
veitt frekari framlög til efnahags-
aðstoðar er nema $700,000. Þar með
nema framlög þau, er Island hefur
fengið til vörukaupa í dollurum frá
1. júlí s. 1. og til janúarloka sam-
tals $3,200,000. Efnahagssamvinnu-
stofnunin hefur jafnframt tilkynnt
íslenzku ríkisstjórninni að upphæð
þessi verði öll veitt sem framlag án
endurgjalds.
Heildarupphæð sú er ísland hefur
fengið í framlögum til efnahagsað-
stoðar síðan Marshalláætlimin tók til
starfa 1948 nemur þar með samtals
$18,500,000 sem samanstendur af
$4,300,000 í lánum, $3,500,000 í skil-
orðsbundnum framlögum (gegn út-
flutningi á ísuðum fiski til Þýzka-
lands) og $10,700,000 í beinum óend-
urkræfum framlögum. Auk þess hef-
ur Islandi verið veitt óbeint
$4,000,000 í gegnum greiðslubandalag
Evrópu, svo sem áður hefur verið
tilkynnt, og þar með hefur Island
fengfið alls $22,500,000 i heildarfram-
lögum síðan Marshalláætlimin byrj-
aði.
Innkaupaheimildir.
Af fjárveitingum þeim er Islandi
hefur verið veittar í beinum fram-
lögum að upphæð $18,500,000 og sem
mynda grundvöllinn fyrir beiðnum
um ákveðnar innkaupaheimildir til
kaupa á einstökum vörutegundum og
ýmiskonar þjónustu, var í árslok
1950 búið að gefa innkaupaheimildir
fyrir samtals $17,255,000.
1 nóvember og desember mánuði
s. 1. samþykkti efnahagssamvinnu-
stofnunin innkaupaheimildir að upp-
hæð samtals $1,570,000 og var öll
þessi upphæð notuð til kaups á
tækjum og þjónustu í sambandi við
hinar stóru virkjanir sem nú eru i
framkvæmd við Sog og Laxá og
sundurliðast þetta þannig:
Sogsvirkjunin
Rafalar og hreyflar . . $222,000
Rafmagnstæki ........ $978,000
Tæknileg þjónusta ... $ 30,000
Laxárvirkjunin
Rafalar og hreyflar . . $ 99,000
Rafmagnstæki ........ $ 184,000
Túrbinur............. $ 71,000
Tæknileg þjónusta ... $ 6,000
Með þessum síðustu innkaupaheim-
ildum nema upphæðir þær sem var-
ið hefur verið til kaups á tækjum
og þjónustu fyrir Sogsvirkjunina
samtals $3,151,000 og fyrir Laxár-
virkjunina $787,000.
Tæknileg aðstoð við íslenzka atvinnu-
vegi.
Svo sem áður hefur verið tilkynnt
hefur Island notið ýmislegrar tækni-
legrar þjónustu og aðstoðar og tek-
ið þátt í tæknilegum rannsóknum á
vegum efnahagssamvinnustofnunar-
innar, en sá þáttur í starfi stofnun-
arinnar miðar að því að auka tækni-
lega þjónustu og þekkingu í ýmsum
atvinnugreinum meðlimalanda Mar-
shalláætlunarinnar. Að því er ísland
varðarhefur kynnisstarfsemi þessi og
rannsóknir verið framkvæmdar á
vegum efnahagssamvinnustofnunar-
innar samkvæmt beiðni íslenzku rik-
isstjórnarinnar og i lok s. 1. árs hafði
stofnunin samþykkt fjárveitingar til
Islands í þessum tilgangi er nema
samtals $51,600.
Á s. 1. ári var t. d. unnið að at-
hugunum er gætu miðað að endur-
bótum í framleiðslu fiskafurða til út-
flutnings, en þessi athugun var fram-
kvæmd af Cooley og samstarfsmönn-
um hans; einnig kom hingað til
lands sérfræðingur frá stofnun í
Chicago er nefnist Public Admini-
stration Service (PAS), til athug-
unar á starfskerfi rikisins og Reykja-
vikurbæjar.
Unnið var að ýmsum öðrum fram-
kvæmdum á sl. 1. ári er miða að
tæknilegri aðstoð, en sem þá var
ekki með öllu lokið. Má þar nefna
för dr. Þórðar Þorbjamarsonar til
Bandaríkjanna til fiskirannsókna og
athugun á frekari nýtingu fiskúr-
gangs, en dr. Þórður kom aftur heim
úr þeirri för í s. 1. viku. Þá fór dr.
Sigurður Pétursson til Bandaríkjanna
til frekari rannsókna liffræðilegs eðl-
is I sambandi við fiskafurðir. Mun
hann dvelja enn um skeið vestra
við rannsóknir sinar. Þá er einnig
ennþá til athugunar beiðni inn út-
vegun á ýmsum rannsóknartækjum
sem nota á til rannsókna í þágu
íslenzkra atvinnuvega.
Auk þess sem að ofan greinir átti
Island fulltrúa í tveimur Sendinefnd-
um frá Evrópu er fóru í kynnisferðir
til Bandaríkjanna á vegum Efna-
hagssamvinnubandalags Evrópu
(OEEC). Önnur nefndin fór til þess
að kynna sér frystiiðnað í Banda-
rikjimum og var Gísli Hermannsson
verkfræðingur, starfsmaður hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna full-
trúi Islands í þeirri nefnd. Hin nefnd-
in fór til þess að kynna sér upp-
lýsingaþjónustu og fræðslustarfsemi
fyrir bændur og átti Einar Eyfells,
verkfræðingur, starfsmaður hjá Bún-
aðarfél. Islands sæti í þeirri nefnd
fyrir hönd Islands.
Á þessu ári eru áætlaðar ýmsar
aðrar framkvæmdir, tæknilegs eðlis,
í þágu íslenzkra atvinnuvega, og er
nú unnið að frekari undirbúningi
þeirra.
B
IJ
F
F
\
L
O
B
I
L
L
Jói: Eg ætla að skrifa fáeinar línur
til ungu stúlkunnar.
Sitting: Við höfum upp á henni á morg-
un.
Ef þér viljið fá vel- Jóhanna: Þökk fyrir!
borgaða vinnu, komið að hálftíma liðnum.
þá og heimsækið mig
þegar í stað. Sendið
svar með sendisveinin-
Ég kem Jóhanna: Ég fer.
Buffalo Bill: Ég kem líka,
Jóhanna. Þú veizt að blind-
ur maður getur ekki verið
einn.
Jóhanna: Hvar ætli
Hickock sé ? Ég er
orðin forvitin.
Buffalo Bill: Við fá-
um að sjá það seinna.
Jói: Ég hef enga
þörf fyrir blinda mann-
inn.
Jóhanna: En ég get
ekki skilið hann einan
eftir á götunni.
Jói: Þú átt að tala
við mann, Pétur að
nafni, og biðja hann
að hittá — hann veit
hvern — og segja
honum að koma hing-
að með vörurnar eins
fljótt og auðið er.
Jói: Blindi maðurinn verður hér.
Jóhanna: Ágætt, ég skal flýta mér.
Buffalo Bill: Vertu ósköp varkár.
Jóhanna ákveð-
ur að fara fyrst
til lögreglustöðv-
arinnar.