Vikan


Vikan - 07.06.1951, Blaðsíða 1

Vikan - 07.06.1951, Blaðsíða 1
16 síður Verð 2,25 Nr. 22, 7. júní 1951 Syndið tvö hundruð metrana í samnorrænu keppninni! Keppni þessi hófst hér á landi, eins og til stóð, 20. maí og hefur þegar orðið mikil þátttaka í henni. Hún stendur til 10. júlí. Synda á 200 metra bringusund og er ekki krafist neins sérstaks hraða í þessu sundi heldur einungis þátttöku. Ættu því allir íslendingar, sem kunna að synda og hafa heilsu til þess, að geta stuðlað að því, að íslendingar sigri í þessari heilbrigðu keppni Norðurlandaþjóðanna. Syndið því 200 metra bringusundið sem fyrst! (Sjá mynd á bls. 2). 1 sambandi við norrænu keppnina í tvö hundruð metra bringusundi birtum við hér á forsíðunni myndir af fremsta sundfólki landsins. — 1 miðju er Sigurður Jónsson Þingeyingur að koma að marki, þegar hann vann Norðurlandameistaratitilinn í 200 metra bringusundi í Finnlandi 1949. Að ofan, lengst til vinstri er Helgi Sigurðsson (Sundfélagið Ægir), við hlið hans Sigurður Jónsson (KR), sporöskjulagaða myndin t. v. Þórdís Árnadóttir (Ár- mann), að neðan t. v. Kolbrún Ólafsdóttir (Ármann), við hlið hennar Pétur Kristjánsson (Ármann). Vinstra megin efst t. h. Atli Steinarsson (IR), ■við hlið hans Hörður Jóhannesson (Ægir). Sporöskjulagaða myndin t. h. Anna Ólafsdóttir (Ármann). Hægra megin neðst t. v. Ólafur Guðmundsson (IR), að neðan t. h. Ari Guðmundsson (Ægir).

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.