Vikan - 07.06.1951, Síða 2
2
VIKAN, nr. 22, 1951
PÓSTURINN
Kæra Vika!
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en
nú langar mig til
að biðja þig að
gera mér þann
greiða að birta
mynd af Fred Asf-
aire, sem lék í
myndinni „Blár
hirninn", sem var
sýnd í Tjarnarbíó
nú fyrir skömmu.
Ég var svo hrifinn
að sjá hvað hann
dansaði vel í þeirri
mynd.
Danskóngur.
Svar: Hér færðu
að sjá dansmeistarann Fred Astaire.
Fred Asfaire
Blsku Vika mín!
Ég þakka þér fyrir allar ánægju-
stundirnar, sem þú hefur veitt mér.
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en
vona, að þú svarir fyrir mig eftir,-
farandi:
1. Hvaða litir fara mér bezt? Ég
er með skolleitt hár, grængrá augu
og ljósa húð ?
2. Viltu segja mér eitthvað um
sundmanninn Ara Guðmundsson og
helzt birta mynd af honum ? Hvað
er hann gamall? Er hann kvæntur?
Hverri ?
3. Hvernig er skriftin? Eru marg-
ar ritvillur?
Þín: Disa í Dalakofanum.
Svar: 1. Þú ættir að klæðast bláu,
blágrænu, gráu, svörtu eða hvítu.
Vínrautt mun einnig fara þér vel.
2. Ari Guðmundsson er 23 ára
gamall. Hann er kvæntur Kötlu
Ólafsdóttur.
3. Skriftin er fremur smágerð, en
hún er snotur. 1 bréfinu er engin al-
varleg ritvilla, en þú virðist vera
fremur hirðulaus með að láta komm-
ur og punkta yfir stafi. Mynd af Ara
Guðmúndssyni er á forsíðunni.
Svar til sokkaþurfi:
Við viljum vísa þér á að leita upp-
iýsinga um þetta hjá útvarpinu.
Elsku Vika mina!
1. Við leitum til þín i miklum
vandræðum. Við vorum með mikinn
hármaðk. En sáum það í Vikunni að
gott væri að klippa hárið. Við gerð-
um það en náðum ekki ollu, hárið
var svo stutt fyrir. En getur það sem
eftir er smitað frá sér i hin hárin?
Af hverju stafar hármaðkur?
Framhald á bls. 18
Pósthólf 1014,
Reykjavík.
B Rí (AKMJBBURI N N
IHANDIA
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Bréfasambönd við útlönd:
Margir hafa beðið Vikuna um að
koma sér í bréfasamband við fólk
erlondis og höfum við ekki alltaf
getað hjálpað lesendum vorum á
þessu sviði. Nú hefur ræzt svolítið
úr þessu, því að stúlka, sem hefur
samband við alþjóðabréfaklúbb í
Hollandi, hefur boðizt til að koma
slíkum bréfasambandabeiðnum á
framfæri. (Auk nafns þarf að til-
greina aldur, stöðu, áhugamál og á
hvaða tungumáli menn vilja skrifa
og hvort bréffélaginn á að vera pilt-
ur eða stúlka). Lesendur blaðsins
geta á þennan hátt komizt i sam-
band við fólk í Hollandi, Bandaríkj-
unum, Bretlandseyjum, Spáni, Portú-
gal, Þýzkalandi og Irak. Nafn Stúlk-
unnar er: Erla Engilbertsdóttir,
Hringbraut 30, Reykjavik.
Reynir Másson (við stúlkur 15—1S
ára. Æskilegt að mynd fylgi bréfi),
Strandveg 43A, Vestmannaeyjum.
Haukur Jóhannsson (við stúlkur 16—
18 ára. Æskilegt að mynd fylgi
bréfi), Sólhlíð 8, Vestmannaeyjum.
Elín Gunnarsdóttir, Halldór Gunnars-
son og Sigfús Gunnarsson gleymdu
að senda heimilisfang sitt með
bréfasambandabeiðninni.
B. Frederiks, Djalan, Wahidin 41,
Sourabaya, Java, (óskar eftir
bréfasambandi við íslenzka stúlku).
Guðmundur B. Bjarnason (við pilt
eða stúlku 11—13 ára), Arnólstöð-
um, Barðaströnd, um Brjánslæk.
Gunnhildur Bjarnadóttir (við pilt eða
stúlku 16—20 ára), Vestmanna-
braut 52, Vestmannaeyjum.
Guðbjörg Hallvarðsdóttir (við pilt
eða stúlku 16—20 ára), Vest-
mannabraut 56B, Vestmannaeyj-
eyjum.
Gunnhildur Helgadóttir (við pilt eða
stúlku 16—20 ára), Kirkjuveg.
Vestmannaeyjum.
Unnur Magnúsdóttir (við pilt eða
stúlku 18—20 ára. Æskilegt að
mynd fylgi bréfi), Hvanneyrar-
braut 54, Siglufirði.
Anna Jóna Magnúsdóttir (við pilt
eða stúlku 18—20 ára. Æskilegt að
mynd fylgi bréfi), Þverá, Ólafs-
firði.
Helga Jónsdóttir (við pilt eða stúlku
12—14 ára), Deildará, Múlasveit,
A.-Barðastrandarsýslu. *
FRÍMERKJ ASKIPTI
Sendið mér 100 íslenzk
frímerki. Égvsendi yður um
hæl 200 erlend frímerki.
Gunnar H. Steingrímsson
Nökkvavogi 25 — Reykjavík
Tímaritið SAMTIÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 25 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsírrii 2526. Pósthólf 75.
Þessi mynd er frá samnofræmj sundkeppninni á Akranesi. Börnin eru
Gerður Guðjónsdóttir, Akurgerði 8 og Valur Jónsson, Kirkjubraut 23. Þau
eru bæði 7 ára, Gerður ný orðin það, fædd 14. apríl 1944. Hún hefði getað
keppt í slíkri keppni sex ára gömul. Þau voru búin að æfa sig vel og töldu
síðustu dagana. Myndin var tekin á sunnudagsmorguninn 20. maí, þegar
þau syntu tvö hundruð metrana. (Ólafur Árnason tók myndina).
Vinna í Nýju blikksmiðjunni. Sjá grein og myndir á bls. 3. (Sig. Guð-
mundsson tók myndina).
Reikningur
H.f. Eimskipafélags íslands
fyrir árið 1950 liggur frammi á skrif-
stofu félagsins frá og með deginum í
dag að telja.
Reykjavík, 19. maí 1951.
Stjórnin.
Otgefandí VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.