Vikan - 07.06.1951, Page 10
10
VIKAN, nr. 22, 1951
IMÝTT bílabón
Úr „Reader’s Digest“ eftir J. D. Ratcliff.
r . ......
• H EIM
-
Matseðillinn
Fiskur á fati:
1—iy2 kg. fiskur; 2 tsk. salt;
Vi tsk. pipar; 4 msk. brauð-
mylsna; 150 gr. smjörlíki.
Fiskurinn er þveginn, flattur og
roðflettur og öll bein tekin úr hon-
um. Fatið er smurt innan með smjör-
líki. Brauðmylsnu og pipar blandað
saman og ca. % af því stráð á fatið.
Fiskurinn annaðhvort skorinn í
stykki og raðað á fatið. Salti stráð
yfir fiskinn og því sem eftir er af
brauðmylsnunni þar ofan á. Smjör-
líkið er látið í smábitum hingað og
þangað yfir fiskinn. Fatið látið inn
í heitan ofn og bakað ca. % klst.,
eða þar til fiskurinn er brúnn að ofan.
Borið fram með soðnum kartöflum
og hrærðu smjöri. (Ath. Fatið verður
að vera eldfast).
Hrísmjölssúpa:
1 I. mjólk; y2 1. vatn; 60 gr.
hrísmjöl; 1 tsk. salt.
Hrísmjölið hrært út í köldu vatni.
Mjólkin sett í pott og hituð, þegar
sýður er hrísmjölsjafningnum bætt út
í og hrært unz sýður. Soðiö við hæg-
an eld í 15—20 mín. og hrært í öðru
hvoru. Salt látið í eftir bragði. Borð-
að með kanel og sykri. Gott er að
hafa rúsínur í súpuna, og eru þær
soðnar með siðustu tíu mínúturnar.
Gulrótamarmelaðe:
y2 kg. skornar gulrætur; 575 gr.
sykur; % 1. vatn; 2 sítrónur.
Bezt er að gulræturnar séu langar.
í>ær eru þvegnar, skafnar og skorn-
ar í mjög þunnar sneiðar, sem eru
síðan skornar í þunnar ræmur. y2
kg. af þessum ræmum er látið í gata-
sigti og klútur lagður yfir og sett
yfir gufu í 20 min. þá eru ræmurnar
soðnar i vatni i 5 mín. Vatn og syk-
ur soðið saman, froðan tekin vel af,
og sítrónusafanum blandað þar sam-
an við. Sitrónuhýðið er skorið mjög
smátt og það látið ásamt gulrótunum
út í sykurlöginn og soðið í 20 mín.
— Þetta er hægt að geyma um
stundarsakir, en ekki mjög lengi.
Sitt af hverju:
Á bak við færan mann standa
ávalt aðrir færir menn.
(Kínverskur málsháttur).
I T "I
1. stúdent: Hvaða mánaðardagur
er í dag?
s=
Faðirinn segir við drenginn sinn,
sem í fyrsta sinn hefur farið i skóla;
,,Segðu mér, hvað þú lærðir.
Drengurinn: ,,Við lærðum ekkert,
ILIÐ •
Tízkumynd
Þessi snotri kvöldkjóll er teiknað-
ur af bandaríska tízkuteiknaránum
Adele Smipson. Kjóllinn er úr drop-
óttu, stifu silki. Pilsið er tvöfalt og
styttra að framan.
pabbi. Kennarinn kann ekkert. Hann
var alltaf að spyrja okkur.“
*
Sígildar bókmenntir er það sem
all langar til að hafa lesið, en engan
langar til að lesa.
(Mark Twaín).
; ! !
Kurteis maður er sá, sem af á-
huga hlustar á annan mann tala af
vanþekkingu um atriði, sem hann
sjálfur hefur þekkingu á.
Avieríska tímaritið Reader’s Digest
birtir öðrn hverju smágreinar undir
sameiginlegu lieiti: „Consumer Re-
port“ (Skýrsla handa neytendum),
og er eftirfarandi klausa í lok
hverrar greinar: „Neytendaskýrsla
Reader’s Digest er birt með hagsmuni
almennings fyrir augum. Seljendur
og framleiðeyidur vara, sem getið er
í Reader’s Digest, hafa ekki leyfi til
að nota þessar greinar á neinn liátt
í auglýsingaskyni“. Hér fer á eftir
em af pessum greinum.
Flestir bóna bílana sína sjálfir og
fá að launum bakverk og harðsperr-
ur. Nýtt bón, sem nefnist „Car
Plate“, getur útrýmt þessum „fylgi-
kvillum“. Það er fljótandi bón, sem
hægt er að bera á bílinn á átta mín-
útum. Það myndar hvítleita húð, sem
hverfur ef strokið er ósköp létt yfir
hana með klút, en eftir verður hörð,
gljáandi húð, sem endist í tvo til sex
mánuði, eftir þvi hvernig meðferð
bíllinn fær. Önnur umferðin tekur
ekki meira en 12 míntúur, og er því
alls 20 minútna verka að bóna bíl-
inn. Bónið hlífir lakkinu, og er eins
og hann sé nýlakkaður eftir að það
hefur verið borið á. Miklu siður er
þörf á að þvo bílinn, því að laust
ryk og skít má þurrka af með þurr-
um klút af hinni hörðu gljáhúð, sem
bónið myndar. Ein dós af Car Plate
nægir á tvo bíla og kostar hún einn
dollara.
Car Plate er árangurinn af fimm
ára rannsóknarstarfi efnafræðinga
hjá S. C. Johnsons & Sons, Inc. í
Wisconsin, sem eru mestu bónfram-
leiðendur í heimi. Það er sambland
af náttúruvaxi og gervivaxi í sérstöku
upplausnarefni.
Endingarbeztu bóntegundir af eldri
gerðum eru þau, sem eru í föstu
formi. Þau gefa fallegan og ending-
argóðan gljáa, en mjög erfitt er að
bóna með þeim. Eftir að þau hafa
verið boi'in á bílinn þai'f að nudda
hann í minnsta kosti tvo tima til
að fá fallegan gljáa. Margir nota olíu
til að gefa bilnum fallegan gljáa,
en það er skammgóður vermir, því
að liún þvæst af við fyrstu rigning-
una.
Árum saman hafa efnafræðingar
reynt að búa til auðnotað, fljótandi
bilabón — líkt og það sem notað er
á gólf og húsgögn. Fljótandi gólfbón
er ónothæft á bíla, áferðin verður
blettótt. Efnafræðingar vissu, 'að
engin ein bóntegund hafði alla þá
eiginleika, sem bílabón þarf að hafa.
Blanda af mörgum vaxtegundum var
helzt líkleg til árangurs.
Efnafræðingar Johnsons reyndu
allt í allt þúsund blöndur af þeim
ótölulega fjölda gervi- og náttúr-
legra vaxtegunda, sem til eru. Þær
fáu tegundir, sem stóðust strangt próf
innanhúss, voru reyndar úti. Fæstar
þoldu veðrun, urðu ýmist skýjaðar
eða blettóttar undan rigningu. Að
lokum var aðeins ein blanda, sem tal-
in var verðug frekari prófunar. Hún
var skírð „Car Plate“, og prófið var
í því fólgið, að hún var borin á 16
„bílahelminga“, þ. e. Car Plate var
borið á hálfan bílinn en gamalreynt
bílabón í föstu formi á hinn helming-
inn til samanburðar. Prófa skyldi
bæði áferðarfegurð og endingu.
Care Plate gaf minnsta kosti eins
fallegan gljáa og gamla bónið, sem
tók tvo tíma að bóna með. Endingin
reyndist einnig ágæt. Á bílum, sem
alltaf voru hafðir úti var enn góð
varnarhúð fyrir lakkið eftir tvo mán-
uði, og enn lengur á bílum, sem hafð-
ir voru í skúr á nóttunni.
Þá var bónið sett á markaðinn í
tveim borgum til að fá dóm bilaeig-
enda. Ég hef talað við 100 bílaeigend-
ur, sem hafa notað það og þeir ljúka
allir upp einum munni um, að ekkert
bón, sem þeir hafi notað, sé jafn-
auðvelt í notkun og Car Plate. Einn
þeirra, sem er einhentur, sagði: „Ég
hefði aldrei trúað, að það gæti verið
svona létt verk að bóna bíl.“ Reynsla
min er sú sama. Ég var réttar 18
mínútur að bóna bílinn minn með
Car Plate og hafði hann aldrei fyrr
orðið jafngljáandi fagur.
Tvennt ber að athuga þegar notað
er Car Plate: Það má ekki bera það
á í sterku sólskini. Ef það er gert
þarf að nudda það mjög fast til að
fá fallegan gljáa. Og það má heldur
ekki bera það á blautan bílinn — ella
verður hann flekkóttur.
Ef bíllinn er bónaður með Car
Plate á fárra mánaða fresti, heldur
hann stöðugt hinum fagra gljáa sín-
um.
Hreinar
léreftstuskur
keyptar
Steindórsprent h.f.
^ L j
Gresoívent
ræstiduft
★ ★ ★
Bezta og ódýrasta
RÆSTIDUFTIÐ