Vikan - 07.02.1952, Síða 15
VIKAN, nr. 6, 1952
15
MYRTA MÚMÍAN
Þetta var ósvífinn glæpur. Morð-
inginn greip um fætur hins tiu ára
gamla barns og mölbraut höfuðið við
steinsúluna. Annað augað hrökk út
og það var djúpur skurður yfir neðri
vörina. Báðir fætur brotnuðu upp við
mjöðm og vinstra knéð fór úr liði.
Síðan kom morðinginn öllu þannig
fyrir, að þetta gat litið út sem slys.
Engin tilraun var gerð til að leyna
láti barnsins. Líkami þess var smurð-
ur á fagurlegan hátt samkvæmt dýr-
ustu siðum hærri stéttanna. Síðan
var hann vafinn í hörgulan dúk og
smurður gúmi, nafn barnsins letrað
framan á umbúðirnar. Að því búnu
var það greftrað á viðhafnarmikinn
hátt í nánd við hina fornegifzku borg,
Þebu. Hér um bil 1700 árum síðar
(morðinginn þurfti þá vitaskuld ekki
lengur að óttast verði laganna), var
barnið flutt sem velgeymd múmía
í borgarsafn Vanköver í Brezku-
Kolumbíu. (á vesturströnd Kanödu).
Næstu þrjátíu ár hvildi múmian
iitla i safninu á beði sínum: fábreytt-
um, brúnmáluðum viðarkistli.
Skorpnaðar umbúðirnar voru maðk-
étnar og gular af elli. Nakið and-
litið var svart orðið fyrir áhrif
smyrslanna. Nafn hennar hafði ver-
ið þýtt ,,Díana“, og þess vegna álykt-
uðu skólabörnin sem svo, að þessi
eftirlætis safnsgripur þeirra hefði
einu sinni verið lítil, lifandi telpa.
En sérfræðingar safnsins voru
aldrei sammála hver múmían væri,
þrátt fyrir nafnið og það, sem eftir
var af andlitinu. Erna von Engel-
Baiersdorf, formaður fornleifafélags
safnsins ákvað, að hún skyldi athug-
uð nánar. Liðið sumar var múmían
borin yfir götuna og inn á rannsókn-
arstofu. Þar var hún gegnumlýst með
röntgengeislum.
Sterku geislarnir sýndu löskun á
beinunum. Veikari geislarnir sýndu
ásigkomulag húðarinnar, sem nú líkt-
ist einna mest því að vera sútuð.
Röntgengeislar sýndu líka beina-
grindina af furðulegri nákvæmni.
Við athugun reyndist hún vera af
pilti.
Dr. T. C. Skeat i Brezkasafninu í
London kynnti sér röntgenmyndirnar.
Hans útskurður var sá, að líklega
hefði ,,Díana“ verið myrt og áreið-
anlega misnefnd. Skeat þýddi á ný
letrunin á umbúðunum og auglýsti,
að nafn piltsins væri Panechates, son-
ur Hatresar. Vafalaust hafði piltur-
inn verið af tignum ættum og einhver
keppinauturinn rutt honum úr vegi.
Greftrunin fór fram einhvern tima á
3. öld fyrir Krist.
Fyrir skömmu, þegar þessi ósvífni
glæpur hafði verið uppljóstraður,
hvildi Penechates aftur í kistli sínum
í bogagangi úti fyrir sýningarsal
kínverskrar listar. Allt og sumt, sem
unnt var að gera, var að skipta um
skilti yfir likbörum hans, svo að hann
yrði að minnsta kosti upp frá þessu
nefndur sínu rétta nafni.
(Lausl. þýdd úr Time).
Hvernig fór Georg að því að fót-
brjóta sig?
Tja, sérð þú tröppurnar þarna
hinumegin ?
Já, minna má nú sjá.
Goggi greyið sá þær ekki.
Eins og gengur —
Eins og gengur —!
Dómarinn: Hvað er nú þetta, þér
kominn hingað einu sinni enn ?
Skammist þér yðar ekki fyrir að
vera hér?
Fanginn: Nei, herra dómari. Það
sem er nógu gott fyrir yður, ætti
líklega að vera fullgott fyrir mig.
Hann: Hvernig líður manninum
yðar? Það er svo langt síðan ég hef
séð hann.
Hún: Manninum mínum ? Það hef
ég ekki hugmynd um. Þegar ég kem
heim, þá fer hann út, og ef hann er
heima, fer ég út.
GEORG & CO. H.E.
PAPPAUMBÚÐIR niðursoðnir
Skúlagötu 59 (hús Rœsis) Sími 1132 Höfum nú fyrirliggjandi eftirtáldar tegundir af niðursoðnum ávöxtum BLANDAÐIR ÁVEXTIR hálfar og heilar dósir
Framleiðum alls konar 'pappaumbúðir APRIKÓSUR
fyrir iðju og iðnað, t. d. fyrir: ANANAS margar tegundir FERSKJUR hálfar og heilar dósir
Skóverksmiðjur,
Smjörlíkisgerðir, HINDBER
Sælgætisverksmiðjur, J ARÐARBER
Saumastofur, PERUR
Klæðskera,
Bakara, Ávextirnir eru eingöngu frá þekktum verk-
Snyrtivömr o. fl., o. fl. smiðjum og er því tryggt að aðeins er um
fyrsta flokks vöru að rœða.
SMEKKLEGAR UMBÚÐIR
ER BESTI SELJARINN. EGGERT KRISTJÁNSSON & Co. h.f.