Vikan - 21.02.1952, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 8, 1952
9
Robert A. Taft, efrideildarþing-
maður í Ohio, ætlar að hefja ræðu
frammi fyrir 6000 manns i veizlu
í Síkagó.
Að ofan sést árekstur á Times sqaure í New York. Særður maður liggur á börum og bíður
eftir sjúkravagni. Áreksturinn varð þannig, að strætisvagn ók á einkabíl um leið og umferðar-
ljós breyttust. Einkabíllinn skall á annan fólksbíl, sem lagt hafði verið við gangstéttina. Átta
særðust og einkabíllinn gereyðilagðist. Áð neðan er nærmynd af bílunum þrem og einum mann-
anna, sem særðist. Yfir hann lýtur lögreglumaður.
FRÉTTAMYNDIR
Þar sem þakkargerðin svokallaða var ekki langt undan, komst
Julia Adams, kvikmyndaleikkona að þeirri niðurstöðu, að bezt væri
að æfa sig í þvi að beita öxinni. í kringum hana eru nokkrir fuglar,
sem vafalaust munu prýða veizluborð eigendanna, þegar hátíðahöldin
hefjast.
John M. Di-Lieto, 21 árs gam-
all, hlaut þetta heiðursmerki i
Kóreustríðinu. Móðir hans sæmir
hann öðru heiðursmerki eins og
sjá má. Heimili þeirra er i Bronx
í New York. Di-Lieto hlaut heið-
ursmerkið fyrir hrausta fram-
göngu á vígvöllum Kóreu.
Maður þessi heitir Michael
Tomas, Hann stendur hér úti fyr-
ir fangelsi í Los Angeles. Hann
barðist níu mánuði í Kóreu, en
kom síðar heim í leyfi. Þá ætlaði
hann að leitá réttar síns fyrir
dómstólunum vegna lestarfarmiða,
sem hann keypti sama dag og
hann var kallaður í herinn, en
notaði aldrei. Hann var dæmdur
í sjö daga varðhald fyrir vikið.