Vikan - 10.04.1952, Síða 9
YIKAN, nr. 15, 1952
9
FRÉTTAM YNDIR
Þessi mynd var tekin í Panmunjom í Kóreu skömmu íyrir jól,
þeg-ar fulitrúar Norður- og Suður-Kóreu-manna ræddu um það,
við hvaða takmörk yrði mögulegt að binda enda á bardagana.
Þann 11. marz síðastliðinn fór fram í Bandaríkjunum fyrsta
fulltrúakiörið til f]ol'i.sbings, sem háð '’or'n í «mnar í New Hamps-
hire á Nýja Englandi á austurströnd Bandaríkjanna. Eiga flokk*-
þingin aö ákveöa, hver.,ir skuli boönir íram i iorsetakosningunum
í nóvember í haust. Kosningunni lauk þannig. að Dwight D.
Eisenhower. yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins (að ofan til
hægri), sigraði Robert A. Taft, öldungardeildarþingmann (að ofan
til vinstri), til flokksþings republikana, en Estes Kefauver, öld-
ungadeildarþingmaður (að neðan til vinstri), sigraði Harry S.
Truman, núverandi forseta Bandaríkjanna (að neðan til hægri),
til flokksþings demokrata.
Diligenti-fimmburarnir frá Buenos Aires i Argentínu eru nú 8 ára
gamlir. Myndin var tekin í tilefni af því, að þau eru að senda jóla-
kveðjur til amerískra barna, og er það í fyrsta skipti, sem þau koma
fram í útvarp, sem heyrist I Bandaríkjunum. Við hljóðnemann eru þau
Ester Maria og Franco Jr. 1 sófanum sitja frá vinstri: Carlos Alberto,
Christina Maria og Fernanda Maria.
Þessi mynd er frá flóðunum miklu, senf urðu í Pó-da!rum á Norður-
Italíu í vetur. Nautgripirnir berjast upp á líf og dau' a við að ná landi.
Þúsundir kvikfénaðar, sem skilinn var eftir við brottflutning íbúanna,
munu hafa drukknað við að reyna að komast burt.