Vikan - 10.04.1952, Síða 15
VIKAN, nr. 15, 1952
15
Svefnsófar - Armstólar
Húsgagnabólstrun
Ásgríms P, Lúðvíkssonar
Bergstaðarstræti 2. — Sími 6807
TiLKYNNING
frá félagsmálaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur um lán, sem veitt verða nú í ár
samkvæmt IV. kafla laga nr. 36/1952 um lánadeild
smáíbúðarhúáa, hefur verið ákveðinn til 1. maí 1952.
Umsóknir, sem berast eftir þann tíma, koma ekki til
greina við lánveitingar á þessu ári.
Jafnframt vill ráðuneytið brýna fyrir þeim, er sækja
um þessi lán, að láta glögga greinargerð fylgja umsókn-
inni varðandi fjölskyldustærð, húsnæðisástæður og
möguleika fyrir að koma húsnæðinu upp, ef smáíbúð-
arlánið fengist. Ef bygging er komin nokkuð áleiðis,
þarf að fylgja g'lögg greinargerð yfir þau lán, er kunna
að hvíla á húsinu.
Umsóknir sendist félagsmálaráðuneytinu, Túngötu
18, Reykjavík.
Félagsmáluráðuneytið, 27. marz 1952.
Myrkhræðsla.
Börn finna ekki til myrkhræðslu,
ef forðast er að segja þeim drauga-
sögur og ef þau eru látin sofa ein
i ljóslausu herbergi frá barnæsku.
Óttinn segir aðeins til sín, ef þau um-
gangast fólk, sem hefur ánægju af
að segja þeim hrellingssögur um
grýlur og óargadýr, eða jafnvel smá-
skordýr.
Mörg taugaveikluð börn eru hrædd
við að dýr leynist í herberginu eða
skordýr í rúminu, og þá hrópa þau
á hjálp. Þið skuluð aldrei hæða börn
fyrir slíkt, né segja, að þessi dýr séu
ekki til, því að barnið lætur sér
aldrei nægja þá skýringu. Segið
heldur, „Líttú í kringum þig og vittu,
hvort þú sérð nokkurt dýr í herberg-
inu“, og gerið svo grandgæfilega leit
í herberginu, út í hornin, og jafnvel
í sjálfu rúminu, ef það gæti friðað
barnið.
Það verður ef til vill nokkur tími,
þahgað til myrkhræðslan hverfur, en
svo mun þó verða, fyrr eða síðar.
En ef þið sproksetjið barn vegna
5tta þess, getur það særzt svo, að
það bíði þess aldrei bætur.
(Christian Herald).
*
Þegar sonur Grúsó Marx var ell-
efu ára, bað hann föður sinn að gefa
sér riffil. Marx óttaðist, að hann
kynni að fara sér að voða, og þegar
hann varð leiður á þrábeiðni stráks-
ins, sagöi hann reiðilega: „Arthúr,
þú færð ekki riffil svo lengi sem ég
er húsbóndi á mínu heimili.“ Strák-
urinn hvæsti á móti: „Láttu mig fá
riffil, og þá verðurðu ekki lengur
húsbóndinn á heimilinu."
*
Strax á unga aldri, ákvað Demos-
þenes að verða mikill ræðumaður. En
hann stamaði. Þá bjó hann í neðan-
jarðarhýsi, og ákvað að dveljast þar
um stund einn sins liðs til þjálfun-
ar. Til þess að hann freistaðist síður
til að ganga út úr hýsinu, rakaði
hann af sér hárið á hálfum hvirlin-
um. Þá þóttist hann viss um að hann
þyrði ekki að koma undir bert loft
af ótta við að verða að athlægi.
^imiiMmiMmMmmmmiiimimimiiimmmiiiiiimiimimiimimiiiiiiimiiiiiimiiiiiimiiimmiiiiiiiimmmmimmm
Hafið þér gert yður grein fyrir, hversu ódýrt það er að
brunatryggja eigur yðar? Ef þér búið i steinhúsi, getið
þér fengið 67.000 króna brunatryggingu fyrir 120 kr. á ári,
en það eru aðeins TlU KRÖNUR Á MÁNUÐI! — Auk
þess hafa Samvinnutryggingar síðustu ár greitt í arð 5%
af endurnýjunariðgjaldi, og mundi því tryggingin í raun
og veru aðeins kosta kr. 9,50. — Þetta er ódýrt öryggi —
svo ódýrt, að enginn hugsandi maður getur vanrækt að
tryggja heimili sitt gegn eldsvoða. Leitið frekari upplýs-
inga á skrifstofunni í Sambandshúsinu, eða hjá umboðs-
mönnum vorum um land allt.
SAíMTVIlMIf PTTIEY© (KD WCBAIE
Símar 5942 og 7080.
■ u
króna
frygging
DRENE
SHAMPOO
DRENE
er seimilega heimsins vinsælasta og mest notaða
hárþvottaefni.
DRENE
fæst í þrem stærðum.
DRENE
er ehunitt þa,ð, sem lientar yðar hári best.
UMBOÐSMENN:
Sverrir Bernhöft h.f.
................................................................................................................................................................................i‘*