Vikan - 21.08.1952, Page 10
10
VIKAN, nr. 32, 1952
- HEIMILIÐ -
Farðu vel með ísskápinn
Settu ekki of mikið í lmnn og liafðu
Utla poka til að geyma í.
1. Láttu ekki of mikið í ísskápinn.
Loftið þarf að eiga greiðan að-
gang að matvælunum, til að
halda þeim köldum.
2. Breiddu ekki pappír eða vaxborna
klúta yfir skálarnar, eins og um-
hyggjusömum húsmæðrum hættir
til að gera. Það hindrar kalda
loftið i að leika um matvælin.
3. Bíddu eftir því að heitir réttir
kólni, áður en þú setur þá inn i
ísskápinn. Með þvi spararður raf-
magn.
4. Láttu ekki ísskápinn vera stöðugt
í sambandi, nema þú þurfir á ís-
molum að halda i kokteil eða
sért að búa til ís í ábæti. Vissar
matvælategundir geta ofþornað
við svo mikinn kulda og auk þess
er það óþarfa rafmagnseyðsla.
5. Geymdu matvæli, sem hafa mikið
vatn (súpur, fisk, soðið grænmeti,
músaðar kartöflur o. fl.) í lokuð-
um ílátum eða plastikpokum. Ef
þú hefur sérstakt hólf fyrir græn-
meti, gleymdu þá ekki að nota
það sem grænmetisgeymslu. —
Hreina og raka loftið í þessu
hólfi getur jafnvel hresst upp á
fölnuð salatblöð. En gættu þess að
geymá aldrei banana eða sitrón-
ur í skápnum.
fi. Pakkaðu matvælum sem lykta (t.
d. osti) vel inn, og eins þeim mat-
vælum, sem taka auðveldlegá, i
sig lykt t. d. smjör. Það er mjög
þægilegt að hafa plastikpoka af
ýmsum stærðum til þeirra hluta,
einkum ef grænmetisskúffan er
full.
7. Gættu þéss vel, að skápurinn lykti
ekki. Notaðu tækifærið, þegar þú
þarft ekki sérstaklega á skápn-
um að halda og tæmdu hann. —
Þvoðu hólfin og grænmetisskúff-
una úr volgu sápuvatni með
bursta. Þurrkaðu skápinn vel og
láttu hann standa opinn dálitla
stund áður en þú raðar aftur inn
í hann. Ef þú notar skápinn ekki
í langan tima, t. d. meðan þú
ert í sumarfríi, skyldu hann þá
eftir opinn.
8. Ef þú skilur hvernig loftið hring-
sölar um skápinn, geturðu betur
raðað í hann. Kælirinn er efst i
skápnum. Við að snerta hann
kólnar loftið og leitar niður í
skápinn. Þar hitnar það við að
snerta heitari fleti og leitar aft-
ur upp á við.
I flestum ísskápum eru þessi
kuldabelti:
Efst eru venjulega 0—5°. Þar er
bezt að geyma ósoðið kjöt og fisk.
1 riæsta hólfi er kuldinn 0—2“.
Það er hæfilegur kuldi fyrir mjólk
og rjóma.
I næsta hólfi fyrir neðan, sem hef-
ur venjulega 2—4,5°, er geymt soð-
ið kjöt, kökur, matarleifar, smjör,
egg og ostur.
Neðst er svo 3—6° köld skúffa,
sem í er hæfilega rakt loft til að
geyma þar grænmeti og ávexti.
ROYAL
heitir
Búðingur er þægileg-
ur og góður eftirmat-
ur. BOYAL búðingur
fæst nú með Vanilla,
Hindberja, Karamellu,
eða Súkkulaði bragði.
Einnig sagó búðingar,
Vanilla, Butterscotch
og Banana.
Einn pakki af búðingi notist i % líter
af mjólk. Berið búðinginn fram kald-
ann og skreytið eftir vild, með rjóma,
berjum, hnetum, appelsinusneiðum eða
rúsínum.
BOYAL BCTÐINGAB MEÐ MABGS-
KONAB BBAGÐI: Súkkulaði, Kara-
v mellu, Vanilla, Hindberja, Banana, og
Butterscotch. •
bragðgóði
búðingurinn
Húsmœður:
Reynið þessa ágætu búðinga
Það sést á svip bínum, hve vel þú
hirðir fæturna
Fæturnir eru vængir þinir. Á þeim svifurðu
í léttum dansi og það eru þeir sem sína að þú
sért í góðu skapi: þeir hlaupa, stökkva og
trítla. Allan daginn bera fæturnir þig. En hvað
gerir þú fyrir þá? Næst þegar þú segir „Ég
get ekki staðið á fótunum fyrir þreytu,"
spurðu þá sjálfa þig hve langt sé siðan þú
hefur hlynnt almennilega að þeim.
Frá upphafi var ætlazt til þess að aðal-
þungi líkamans hvíli aftan við stóru tána.
Ef skórnir eru svo illa gerðir að þunginn fær-
ist niður á tærnar, sem ekki eru nægilega
sterkbyggðar til að bera líkamann, hefur það
allskonar, vanlíðan í för með sér (krepptar
tær með líkþornum, blöðrum o. fl.), eyðilegg-
ur skap þitt og gerir þig mædda á svipinn.
Fætur, sem alltaf eru lokaðir inni í heilum
hörðum skóm anda illa og eru oft þurrir og
harðir: Þess vegna þarf alltaf að fara í létta
og opna inniskó, þegar komið er inn.
Neglurnar verða alltaf fyrir núningi af skón-
um. Þær ýtast því oft inn i holdið. Neglurnar
vaxa mjög hratt og sjúkdómurinn er kvala-
fullur. Þegar svo er komið er nauðsynlegt að
láta lækni skera í tána. Klipptu því neglurn-
ar oft.
Þegar þú kemur þreytt heim á kvöldin,
byrjaðu þá á því að taka volgt fótabað með
mikilli sápu I. Nuddaðu fæturna vel og burst-
aðu þá, leggðu þig þvi næst upp í rúm í 10
mínútur með fæturna hærra en höfuðið. Auk
þess þarftu að láta fram fara eftirfarandi
hreingerningu á fótunum minnst einu sinni í
viku:
1. Byrjaðu á því að taka naglalakkið af með
bómull vættri í acetoni.
2. Klipptu neglurnar, sem aldrei ættu að ná
fram fyrir tærnar. Jafnaðu rendurnar með
' Þjöl.
3. Dýfðu fótunum í 5 mínútur í volgt sápu-
vatn, sem í er örlítið af glyserini.
4. Berðu vasilín kringum neglurnar og ýttu
því undir naglaböndin með þar til gerðri
tréstöng.
5. Klipptu varlega með beittum skærum
skinnið, sem er í kringum neglurnar.
6. Nuddaðu tærnar, hælana og iljarnar með
votum grófum klút.
7. Nuddaðu mjúku kremi á fæturna. Byrj-
aðu á tánum og strjúktu upp eftir fætin-
um.
8. Nú geturðu lakkað neglurnar. Berðu
tvisvar á þær naglalakk og skildu eftir
„tungl" á stóru tánni.
Þið vitið allar hvernig kýr eru skapi farnar. Þannig eru karlmenn, sem
líta svont út, líka!