Vikan


Vikan - 21.08.1952, Síða 12

Vikan - 21.08.1952, Síða 12
12 VIKAN, nr. 32, 1952 Konkvest. „Því í andskotanum eyðum við hér tímanum til einskis ?“ öskraði hann grimmdar- lega. XVI. KAPlTULI. Buppy fœr makleg málagjöld. Norman Konkvest hló hátt. „Þetta líkar mér!“ sagði hann þurrlega. „Það ert þú, sem hefur verið að tefja tímann, og nú veitistu að mér eins og reiður nashyrningur af þeirri ástæðu." Vfirforinginn anzaði þessu ekki. „Hvar er konan þín?“ „1 vopnasalnum.“ „Fylgdu mér þangað.“ „Þú þarft ekki að snúast í því. Ég get . . „Fylgdu mér þangað!“ öskraði Williams. „Ef þér skyldi létta við það — þá það,“ sagði Konkvest til að stilla hann. „En ég aðvara þig; að það mun taka talsvert lengri tima ef þú kem- ur líka.“ Þeir fóru út í forsalinn og sáu að allir gest- irnir voru þar með tölu; óróleiki þeirra var aug- ljós. Nokkrar stúlknanna sátu í stiganum með pjönkur sínar og yfirhafnir í kringum sig. Karl- mennirnir voru einnig tygjaðir til burtférðar fyrirvaralaust. „C, yfirforingi,“ hrópaði ein stúlkan og hljóp í áttina til Williams, „er verið að gera eitthvað?“ „Mikið ungfrú. Ef þér leyfið mér að halda áfram . . /‘ „Hávaðinn og ólætin úti fyrir eru hreint og beint voðaleg,“ hélt hún áfram hálfkjökrandi. „Á hverju augnabliki getur þetta ögurlega fólk ruðst inn hingað og ráðist á okkur. Ég veit að við verð- um öll drepin, eins og vesliligs Buppy.“ „Veslings Buppy yðar var ekki drepinn, ung- frú . . .“ „En þeir gerðu það samt. Þeir hljóta að hafa náð honum eftir að Rudy skildi við hann. Nokkrir þessara hræðilegu manna úti fyrir hrópa að þeir hafi hengt Buppy, og þeir skuli fara eins með okkur.“ Williams ýtti stúlkunni til hliðar og hélt áfram, þótt hann ætti á hættu að vera talinn ókurteis. Slík tímaeyðsla, er svona stóð á, var hreint og beint glæpsamleg. Hann gaf Davidson merki um að vera kyrr; það myndi hughreysta þá kjark- minnstu. Það má þó segja þessu unga fólki til afsökunar, að það hafði fulla ástæðu til ótta. Hávaðinn af ósköpunum úti fyrir barst inn gegn- um hina þykku múrveggi hallarinnar, eins og dunur i áskellandi ofviðri. Það var auðheyrt að sesing skrílsins hafði aukizt um allan helming. Williams fylgdist með Konkvest út um hliðar- dyr; voru þeir þá komnir út í hallargarðinn. Við að lita fljótlega kringum sig í hálfskímunni — bjarminn frá blysunum utan við hallarmúrinn gerði vel ratbjart — sannfærðist Konkvest um að allt var enn tryggt innan við hallarsíkið. Fleiri höfðu ekki freistað að synda yfir . . . Vígreifi ofurhuginn hefði ekki verið svo öruggur, ef hann hefði vitað að milli fimmtán og tuttugu ung- æðislegir angurgapar voru á því augnabliki á leiðinni gegnum trjágarðinn með birgðir af háskalegu sprengiefni frá grjótnámunni í ná- grenninu . . . „Hérna er það,“ sagði Norman fjörlega. Hann opnaði dyrnar að vopnasalnum og þeir gengu inn. Þarna var niðamyrkur. Williams hik- aði tortryggnislega. „Ef þetta er eitt af uppátækjum þínum . . „Hvaða heimskingi ertu, Bill, að gruna mig um græsku," andmælti Konkvest. „Þú ert búinn að fá þetta á heilann. Það erum bara við, Fía min. Þetta er Bill Williams, þó þú þekkir hann víst ekki í þessu dulargerfi. Hann er armæðan sjálf í eigin persónu.“ Það var kveikt á litlu vasaljósi í einu horni salsins. „Það var svei mér kominn timi til að þú birtist, drengur minn,“ sagði Joy önuglega. „Ég býst við að þér sé kunnugt um að hitinn hér inni er ekki langt frá frostmarki. Hvaða hávaði er þetta fyrir utan? Líkist mest áhlaupinu á Bastilluna.“ „En hvað þú kemst rétt að orði, elskan mín. Þetta lýsir einmitt ástandinu ágætlega. Piltarn- ir hérna í nágrenninu eru dálitið óstýrilátir í kvöld og ef við erum ekki fljót að skakka leik- inn, þá sprengja þeir allt upp á gátt.“ „Talsvert örðugra en þú bjóst við, ha?“ ,sagði Joy, með ánægjuhreim í röddinni. „Jæja, það er gaman að heyra, að þér getur stundum skjátl- azt, Norman. Við tækifæri eins og þetta verð- urðu næstum eins og aðrir mennskir menn.“ „Heyrðu nú, kæra frú, fyrir alla muni farðu ekki að Jitja upp á neinni fyndni,“ bað Williams. „Ég er svei mér glaður yfir að hitta þig hérna heila á húfi. Þessi herjans heimskingi, maður- inn þinn, hefði getað unnið þér mein með þeirri vitfirring að kasta þér í hallarsíkið . . .“ Úr augum heunar skein sú sérstæða glóð, sem unga stúlkan eignast, þá hún lítur fyrsta bið- ilinn sinn, eða kötturinn, þegar hann sér mús í fyrsta skipti. — O. Henry. „Hverjum — mér?“ tók hún fram í háðslega. „Meiðast af því að detta i síki ? Ég skal láta þig vita, hr. Williams, að ég hef unnið verðlaun fyrir dýfingar. Það, að láta sig falla út um glugg- ann og leika einhvern skrípaleik í því sambandi, var barnaleikur fyrir mig. Ég er að jagast út af því að hafa verið skilin hér eftir svona lengi.“ Hún kleip glettnislega i handlegg hans. „Það var samt fallegt af þér að hugsa til mín.“ „Allt í lagi, taktu þetta eins og þér þóknast. En við megum ekki standa hérna og masa. Við þörfnumst þín. Þú ein ert fær um að bjarga málinu við.“ Stjörnuaugu Joy stækkuðu. „Segðu mér aðra fyndni,“ sagði hún. „Hvern skollann áttu við, Bill? Hvað get ég svo sem gert?“ „Sýnt þig í einum glugganum á efri hæðinni." „Einmitt — og láta henda steini i augað á mér ?“ „Ef til vill áttu það á hættu . . . “ „Þú segir að ef til vill eigi ég það á hættu,“ sagði Joy þurrlega. „Ég segi, að það sé full vissa fýrir þvi. Hversvegna getur þú ekki alveg eins sýnt sjálfan þig? Þú ert stærri og sést því betur. Og þótt þeir hitti þig í augað með steini, þá mundi það ekki gera svo mikið til. Við kon- urnar verðum að hugsa um útlit okkar.“ Williams átti erfitt með að stilla sig. „Þið eruð bæði alveg eins — lítið á alla hluti af alvöruleysi,“ sagði hann gremjulega. „Getið ekki verið alvarleg eitt augnablik." „Láttu mig útskýra þetta, Bill,“ sagði Kon- kvest. „Þú ert of langorður . . . Heyrðu, Fía mín. Þetta er ósköp blátt áfram. Fólkið, sem stendur hérna æpandi fyrir utan, heldur að Ever- don lávarður hafi drepið þig af ásetningi með því að hrinda þér i hallarsíkið, og vill hefna þín með þvi að vinna skemmdarverk á höllinni. Ef þú sýnir þig í glugganum og sannar með þvi að þú sért bráðlifandi, þá mun fólkið stillast og hætta öllum óspektum." „En ég hélt, að þú óskaðir að ég héldi áfram að vera ,,dauð“? Ef það var ekki vilji þinn, hversvegna þá að halda mér innilokaðri i þessu svartholi ?“ „Nú er enginn tími til að koma með spurningar, bjarteyg mín? Já, þetta var upphaflega hug- myndin, — og hún hefur gert sitt gagn, því að Everdon hefur stokkið í felur, alveg eins og ég vildi . . ." Konkvest þagnaði. „En hugsum ekki um það . . . Núverandi vandræði hafa skapast af því að æsingin, sem gripið hefur fólkið er meiri en ég bjóst við, og ef ég stöðva ekki þessa vitleysu, ætlar Williams að koma ábyrgð á hend- ur mér fyrir að stofna til óeirða. Líttu framan í hann — hann getur ekki leynt tilhlökkun sinni. Ekkert myndi gleðja hann meira en að sjá mig í svartholinu." „Ef þetta er rétt — hversvegna þá að bíða?“ spurði Joy fjörlega. „Ef þú ætlar að koma Nor- man í steininn, Bill, þá muntu sannarlega verða fyrir vonbrigðum. Við skulum koma!“ „Bíddu við. Fólkið þekkir þig ekki í þessu gerfi. Þú verður að taka aftur á þig gerfi „Maríu matselju"." „Búningurinn er ennþá rennblautur . . . Allt i lagi. Snúðu bakinu að mér, hr. Williams." „Það er óþarfi að fara í búninginn," tók Kon- kvest fram í. „Kjóllinn, sem þú ert í, er dökkur; það er nóg að setja á sig svuntuna og höfuð- búnaðinn. Og svo auðvitað lika rauða hárskraut- ið . . . Ágætt! Nú skulum við koma.“ Þau fóru búrt úr vopnasalnum, og þegar þau skunduðu yfir hallargarðinn heyrðu þau að allt var i uppnámi úti fyrir. Skríllinn var auðheyr- Nýtt lœknisráð: GDNGUFERÐIN N t hefur það verið vísindalega sannað að heilinn í mönnum starfi aldrei betur en þegar þeir standa. Það er semsé ekki alger- lega út í biáinn, þegar við rísum á fætur og göngum um gólf, þá við erum að glíma við óvenjuerfið viðfangsefni. Svona gólfgöngu- ferðir — segja vísindamennirnir — skerpa hugsunina, og þessvegna er hugsuðum ekkert hollara en langir og góðir göngutúrar. En ekki nóg með það. Gönguferðir — lengri eða skemmri — eru líka feykilega upp- byggjandi fyrir líkamann. Frægur skurðlækn- ir hefur meir að segja lýst yfir því, að liann teljl hln heilnæmu áhrif göngunnar „eina merkustu læknisfræðilegu uppgötvun aidar- innar. Þessl uppgötvun,“ segir læknlrinn enn- fremur, „hefur orsakað gerbyltingu." Nú er allur þorri lækna til dæmis mjög hlyntur því, að sjúklingar, sem gengið hafa undir smærri skurðaðgerðir, reyni að fara á fætur á öðrum eða þriðja degi, eða jafnvel fyrr. Til skamms tíma þótti það hreinasta firra að hleypa svona fólki úr rúmum sínum fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Nú er líka svo komið, að læknar hafa á- hyggjur af þvi, hve menn eru orðnir spor- latir, einkum f borgunum. Einn merkilegur læknir segir í þessu sambandi: „Sé það satt, að við séum hætt að kunna að borða, þá er ástæðan einfaldlega sú, að við kunnum ekki að ganga." Skýrslur, sem ná til síðustu fimmtíu ára, sýna, að póstar sveitanna eru og hafa verið hraustari og langlífari en flestir menn áðrir. Og af þessu og öðru þvUíku þykjast sérfræð- ingamir hiklaust geta slegið því föstu, að tveggja stunda dagleg ganga sé alger nauð- syn, ef menn ætti sér að halda góðri heUsu. G ÖNGIJFERDIR — og það má gjaman taka þessa tvo tíma i smáskömmtum — auka matarlystina, auðvelda meltinguna og hvíla taugakerfið. Það er ákaflega sjaldgæft að mikiir göngugarpar þjálst af tiðum höfuð- verbjum. Gönguferðir stæla líka fjöldan allan af vöðvum — ekki einasta í fótunum. Konum kemur ekkert betur en svona líkamshreyf- ing, enda staðreynd, að það af kvenfólkinu, sem iðkar göngu kerfisbundlð, á óvenjulega auðvelt með að eignast böm. Sérfræðingamir segja, að hæfUegur göngu- hraði sé 120 skref á mínútu — eða því sem næst.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.