Vikan - 15.01.1953, Blaðsíða 3
EINKAR róttækar tillögur um
barneignir og fleira komu nýlega
: fram í ensku kirkjublaði. Útgefandi
blaðsins, séra Charles Augustus
Lowe, birtir þessar tillögur í grein,
sem hann nefnir: Áætlun um full-
komnar fjölskyldur. Tillögurnar eru
ísvona:
IAð bameignir verði bannaðar
nema gegn sérstöku leyfi yfir-
valdanna.
2Lœknisaðgerðum verði beitt til
þess að hincLra barneignir mis-
yndismanna og fávita.
3Giftingar verði bannaðar yngra
fólki en þritugu.
4Beitt verði öllum ráðum til þess
að sjötugir menn og eldri — af-
burðamenn undanskyldir — heim-
ili, að þeim sé styttur aldur, „til
hagsbóta fyrir þjóðina“.
Séra Lowe heldur þvi fram í blaði
• sínu, að ofangreindar aðgerðir yrðu
bresku þjóðinni til mikillar blessunar:
,,England yrði á nýjan leik skrúð-
grænt og yndislegt land“. Hann hefur
líka samið áætlun um refsingar þeim
til handa, sem ekki hirtu um að sækja
um leyfi til að eignast börn. Vísind-
unum fleigir fram, segir hann, og
„sá dagur er ef til vill ekki langt
undan, að Mars verði sú Síbería, þar
sem þeim foreldrum verði haldið í
útlegð, sem eiga börn í heimildar-
leysi“. Ennfremur kæmi til mála að
senda börn slíkra foreldra einnig i
útlegð ásamt óskilgetnum börnum.
Séra Lowe er 63 ára og tveggja
barna faðir.
□
EIGENDUR kvikmyndahúsa í
Bandaríkjunum eru nýbúnir að
greiða atkvæði um, hvaða bandarísk-
ir kvikmyndaleikar-
ar hafi verið vinsæl-
astir síðastliðið ár.
Sfstir urðu skopleik-
aramir Dean Martin
og Jerry Lewis, þá
kom Gary Cooper og
í þriðja sæti varð
John Wayne. Síðan
er röðin svona: Bing
Crosby, Bob Hope,
James Stewart,
Doris Day, Gregory
Peck, Susan Hay-
ward og Randolph
Scott.
Gary Cooper og Bing Crosby hafa
nú verið meðal tíu vinsælustu kvik-
myndaleikaranna í Bandaríkjunum i
samfleytt þrettán
ár. Susan Hayward
er eini nýliðinn á
listanum; hún var
sú nítjánda í röð-
inni 1951. Af kúa-
smalastjörnunum
eru Roy Rogers og
Gene Autry hins-
vegar vinsælastir;
Rogers karlinn hef-
ur verið í efsta
sæti í tiu ár í röð,
og þetta er fimmta
árið sem kappinn
Autry hafnar í
öðru sæti.
ÞAÐ var vikið svolítið að sjónvarpi
í síðustu VIKU, þessu einkabíói
heimilanna, sem nú er að ryðja sér
Kindugar tillögur kindugs klerks - Vinsælustu
kvikmyndaleikararnlr - Óíieppnasti maður í
heimi - Milljónir horfa á konu fæða barn
til rúms víðsvegar um heim. Fyrir
skemmstu kom það fyrir í fyrsta
skipti í sögu sjónvarpsins, að áhorf-
endum var gefinn kostur á að fylgj-
ast með barnsfæðingu. Þetta var í
Kalifomíu. Bamið var tekið með
keisaraskurði „að viðstöddum mill-
jónum áhorfenda", eins og það er
orðað í fréttinni.
skemmstu tæpar 5,000 í einni get-
íaunakeppninni, og í það skiptið
komst seðillinn hans til skila á rétt-
um tíma.
En Smeeton segir, að það taki því
varla að sækja þetta lítilræði —
og hver getur láð honum það?
□
Eisenhower forsetaefni er þegar
búinn að velja alla helztu sam-
starfsmenn sína, þó að hann taki
raunar ekki við embætti fyrr en eft-
ir tæplega viku (sjá bls. 9). Nokkrar
konur hafa fengið feitar og ábyrgð-
armiklar stöður, þar á meðal tvær
þeirra þriggja, sem við birtum hér
myndir af. Hér undir er önnur þeirra,
EINHVER óheppnasti maðurinn í
víðri veröld á heima í Salford,
Englandi. Hann heitir Sidney Smee-
ton. Nokkru fyrir jólin tók hann og
fjölskylda hans þátt í getrauna-
keppni og tókst að geta rétt til í
öllum tilfellum. Verðlaunin fyrir
þetta voru um 3,400,000 krónur, en
svo kom á daginn, að getraunaseð-
ill fjölskyldunnar hafði borist of
seint í póstinum, svo að þátttaka
hennar var ógild.
En nokkrum dögum seinna endur-
tók sagan sig! Smeeton og fjölskylda
gátu rétt til um öll úrslit þrautar-
innar og áttu að vinna — eins og í
fyrra skiptið — kr. 3,400,000.
Það er að segja, ef getraunaseð-
illinn hefði komið til skila á réttum
tíma. En það gerði hann bara ekki;
og þegar farið var að rannsaka mál-
ið, fannst hann í botninum i póst-
poka, sem póststofan hélt hún væri
búin að tæma fyrir löngu.
Og við þetta situr. Smeeton & Co.
eru búin að vinna — og tapa — á fá-
einum dögum nærri sjö milljónum
króna. Smeeton er líka búinn að
kæra þetta alltsaman til þingmanns-
ins síns. Já, og svo vann hann fyrir
Oveta Culp Hobby, sem i stríðinu
var yfirmaður kvennadeildanna í
bandaríska hernum. Hún verður eins-
konar öryggismálaráðherra. Á mynd-
inni efra gefur svo að líta hina
merkiskonuna, Ivy Baker Priest,
sem verður ríkisféhirðir. Hún er að
skrifa nafnið sitt fyrir stúlkuna, sem
er flugfreyja.
Vetrarvertíðin er byrjuð
yETRARVERTlÐIN er að byrja
og með henni færist eins og
endranær nýtt lif í mannfólkið,
heldur dauft og dræmt í dálkinn
eftir svartasta skammdegið og of-
át og oieyosiu jolanna. Og svo var
líka verkfall.
Fregnir frá verstöðvunum herma,
að það sé hugur í mönnum almennt,
menn búast nærri undantekningar-
laust við því, að árangurs landhelg-
isbreytingarinnar fari að gæta strax
á þessari vertíð. Lika hefur þetta
í för með sér breyttar veiðiaðferðir,
eins og glögglega kemur í ljós í
fréttaskeyti til Morgunblaðsins frá
Vestmannaeyjum. 1 skeytinu segir
meðal annars:
„Komandi vertíð verður með
nokkuð öðrum hætti en verið
hefur. Héðan verður enginn með
dragnót eða botnvörpu. Undan-
farin ár hefur allt að því helm-
ingur flotans verið moð þessi
veiðarfæri. Bátar þessir taka nú
upp línuveiðar og netja. All-
margir bátar verða eingöngu
með net, en aðrir bæði með línu
og net.“
Frá Vestmannaeyjum verða á
þessari vertíð gerðir út um 80 bátar,
en voru 70 í fyrra.
Keflavíkurbátunum hefur líka
fjölgað. Fréttaritari Timans á staðn-
um símar:
„I fyrra voru gerðir út innan
við 20 bátar frá Kefiavík og
voru nokkrir þeirra aðkomu-
bátar, eins og undanfarnar ver-
tíðir. En að þessu sinni eru
horfur á, að bátarnir verði um
30 talsins. Margir þeirra eru að-
komubátar, sem ixafa þar viðlegu
með skipshöfnum.“
Þegar þetta er ritað, voru þrir
komnir í verið: frá Húsavík, Dalvík
og Ólafsfirði.
Sömu góðu fréttimar berast frá
Sandgerði, þar verða bátamir álíka
mai-gir og í íyrravetur, eða um tutt-
ugu. En frá nokkrum verstöðvum em
fréttirnar þó síðri, eins og t. d.
eftirfarandi:
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins,
Stykkishólmi: „Segja má, að al-
mennt atvinnuleysi sé hér í
Stykkishólmi . . . Alls er búizt
við, að fjórir bátar rói frá Hólm-
inum í vetur . . .“
Fréttamaður Tímans á staðn-
um bætir svo við: „. . . Land-
róðrabátur verður hinsvegar að-
eins einn. Fyrir nokkrum árum
vora landróðiabátar sex, en þeim
hefur farið fækkandi ár frá ári.“
Loks er þess að geta, að vertíðin
sunnanlands og öll sú vinna, sem hún
hefur upp á að bjóða, hefur komið
talsverðu losi á mannfólkið. Fregnir
herma, að fjöldi sjómanna og verka-
manna af Norðurlandi sé ýmist far-
inn til Suðvesturlandsins eða i þann
veginn að leggja upp. Dæmi: Frá
Dalvík munu alls fara fjórir bátar
suður á vertíð og um 70 manns fylgja
þeim. Frá Húsavík fara þrír stærstu
bátarnir, á þeim verða 30—40 manns
og auk þess, fer sennilegast úr pláss-
inu álíka margt verkafólk. Og frá
Ólafsfirði eru þegar farnir um 40
í atvinnuleit.
Forsíðumynd: Þorsteinn Jósepsson.
3