Vikan - 26.01.1956, Qupperneq 3
ER
getur gert
MIKILL AFLGJAFI
prúöustu stúlkur að ósvífnustu bragðarefum
ANNAÐHVORT giftistu mér eða tek-
ur afleiðingunum!“ Nokkumveginn
svona hljóma bónorðin þeirra í héraði einu
í portúgölsku Vestur-Afríku. Og það eru
stúlkurnar, sem bera upp bónorðið! Það
vill nefnilega svo til, að í þessari ætt-
kvísl er það kvenfólkið, sem stjómar.
Karlmennimir fá ekki einu sinni að hafa
frumkvæðið í tilhugalífinu!
Þegar stúlka biður karlmann að giftast
sér, jafnast það í þokkabót á við skipun.
Hann þorir ekki að hryggbrjóta hana
fyrir sitt litla líf. Geri hann það, er hann
að brjóta 1,000 ára gamla erfðavenju og
öll ættkvíslin snýst öndverð gegn honum.
Setjum nú svo, að stúlkunni fari að leið-
ast hann eða finnist hann lélegur eigin-
maður. Þá er málið jafn einfalt — frá
hennar sjónarhól að minnsta kosti. Hún
rekur hann einfaldlega út úr kofanum með
allt sitt góss — og þar með er hjóna-
skilnaðurinn kominn í kring!
Annað mál er það, að það er yfirleitt
allt með kyrrð og spekt hjá þessari ætt-
kvísl. Það kemur sárasjaldan fyrir, að
karlmennirnir reyni að brjótast undan ok-
inu.
En maður þarf svosem ekki að leita í
fmmskógum Afríku til þess að finna
stúlkur, sem ekki kalla allt ömmu sína,
þegar þær verða ástfangnar. Þess eru
dæmi, að prúðustu stúlkur hafa orðið að
hreinustu djöflum í mannsmynd, þegar
þær hafa verið á hælunum á einhverjum
karlmanninum.
Tuttugu og þriggja ára gömul ljóshærð
Berlínarstúlka beitti hálfgerðum göldrum
til þess áð leiða mann þann, sem hún
hafði augastað á, í gildruna.
Hann var sýnilega að verða leiður á
henni, þegar hún trúði honum fyrir því,
að hún væri meðlimur í leynifélagi sem
stundaði galdra og særingar. Þetta vakti
forvitni hans. Nokkru seinna tjáði hún
honum, að hann gæti fengið að ganga í
félagið og mundi inntaka hans fara fram
með mikilli viðhöfn tiltekið kvöld.
Þegar maðurinn mætti, leiddi stúlkan
hann inn í dimmt herbergi, sem ilmaði af
reykelsi. Þar þuldi hún yfir honum
,,galdraþulur“, sönglaði „galdrasöngva" og
blóðgaði loks hann og sjálfa sig á hand-
leggnum og lét blóð þeirra renna saman.
Maðurinn má hafa verið mjög auðtrúa
— að minnsta kosti maldaði hann ekki
í móinn, þegar sú ljóshærða tjáði honum,
að með því að þau hefðu blandað blóði,
yrðu þau, hvort sem þeim líkaði verr eða
betur, að vera saman til dauðadags!
Það var ekki fyrr en fimm árum seinna,
að hann mannaði sig upp í að slíta þessu
einkennilega ,,hjónabandi.“
Það vekur oftast hneykslun, þegar
aldraður maður giftist kornungri stúlku.
Pólk segir gjarnan sem svo, að hann
hljóti að vera fjáður, stúlkan hljóti að
vera að giftast honum til fjár.
Stundum er þetta herfilegasti misskiln-
ingur. Til dæmis er það í frásögur færandi,
að 67 ára gamall Englendingur þurfti
fyrir skemmstu að biðja um lögregluvemd,
vegna ásóknar tvítugrar stúlku! Hún vildi
ólm verða konan hans, gaf honum engan
frið og reyndi jafnvel að brjótast inn í
húsið hans. Þó reyndi hann með öllum ráð-
um að koma fyrir hana vitinu og vissi
ekki til þess, að hann hefði nokkurntíma
gefið henni undir fótinn.
Lagleg áströlsk stúlka varð ástfangin
af ungum bóndasyni, en með litlum árangri
— þar til henni var í orðsins fyllstu
merkingu sparkað i fangið á honum! Hún
var að söðla tvo hesta, en hann stóð rétt
fyrir aftan hana. Þegar hún hugðist ganga
aftur fyrir annan hestinn, danglaði hún
til hans hendinni — og hann svaraði fyrir
sig með báðum afturfótunum.
Stúlkan tókst á loft og sveif í fangið
á bóndasyninum. Þremur mánuðum seinna
voru þau orðin hjón.
Bresk stúlka gekk lengi á eftir banda-
rískum hermanni, áður en henni tókst að
. klófesta hann. Það getur verið, að það
hafi ýtt nokkuð undir hana, að í þorpinu
hennar gengu miklar kviksögur um allan
auðinn, sem þessi hermaður ætti í Banda-
ríkjunum.
Nema hvað kviksögurnar reyndust —
eintómar kviksögur! Það var ekki nóg
með, að hermaðurinn væri alls ekki ríkur
— hann var skínandi fátækur.
Þegar til Bandaríkjanna kom, uppgötv-
aði stúlkan, að ,,höllin“ eiginmannsins var
fornfálegur bjálkakofi á stærð við bílskúr.
Þetta var í Miðríkjunum svokölluðu.
Kofinn var svo afskekktur, að stúlkan
mátti ríða nærri þrjátíu kílómetra veg
til þess að komast í verzlun! En það skal
sagt henni til hróss, að hún gugnaði ekki.
Nú er hún þriggja barna móðir og ósvik-
in „frumbyggjakona" — og hefur hina
mestu ánægju af.
Já, það er ekki blöðum um það að fletta.
að ástin er hinn mesti aflgjafi.
Jeannine Caton heitir frönsk stúlka.
sem reyndist alveg einstaklega þolinmóð,
þrautseig og úz’ræðagóð í sambandi við
„mannaveiðar" sínar.
Meðan á stríðinu stóð, faldi hún austur-
rískan hei’mann á bæ foreldi’a sinna í
grennd við Barre-en-Ouche í Norðuz
Frakklandi. Hann hét Fritz Stangi, og'
hún varð ástfangin af honum við fyretu
sýn.
En hann var óvinahermaður, fjand-
maður Frakklands. Ef frönsku skærulið-
arnir hefðu fundið hann, hefðu þeir senni-
legast gengið af honum dauðum og refs-
að henni sem föðurlandssvikara.
Hún faldi hann í hlöðunni og tókst ein-
hvernveginn að halda felustað hans leynd-
um. Svo lauk stríðinu. Þar sem hún ótt-
aðist, að hann mundi henni tapaður, sagði
hún hozzum, að hann væri enn í hættu.
Og í tíu ár lék hún þennan leik, þ. e. hélt
honum með brögðum sem fanga sínum.
En fyrir skemmstu, þegar Austurríki
endurheimti sjálfstæði sitt, gaf hún honum
frelsi. Fritz sneri heim til Vínarborgar.
En kaus hann frelsið lengi? Ekki aldeilis’
Þegar hann var kominn í vinnu, sendi
hann eftir hinum laglega fangaverði sín-
um og gerðist fangi hans til æviloka.
Þau giftust um jóliiz og Fritz kvað vera
hamingjusamasti ,,fanginn“ í allri veröld-
inni.
— JOHN BRANDON.
NÝ TÍÐINDI
(AF LÉTTARA TAfil)
Tf/fAÐUR nokkur í Dallas, Texas,
1 ■*' hringdi til lögreglunnar fyrir
skemmstu og tjáði henni, að inn-
brotsþjófar hefðu stolið frá honum
einum buxum, þrennum samfesting-
og eldliúsvaskinum.
uni
T>REZKUR markmaður kjálka-
brotnaði fyrir skemmstu í
kappleilí. Þverslá marksins datt á
höfuðið á honum!
T^ERTUGUR bófi í Japan var fyrir
skemmstu handtekinn eftir harla
óvenjulegan glæpaferil. Hann beitti
þeirri aðferð að bregða sér inn í verzl-
anir og bjóða heimatilbúna blævængi
til sölu.
Hann bar sýnishom af vörunni
upp að nefinu á kaupmanninum —
með þeim árangri, að sá síðarnefndi
steinlá. Það var úr því auðvelt fyrir
bófann að fara í peningakassann.
Þegar hann loks náðist, kom á
daginn, að blævænguriim, sem hann
sýndi fómarlömbum sínum, hafði
verið vættur með deyfilyfi.
ANAFNGREIND, frönsk vinnu-
kona var fyrir skemmstu dæmd
í 15 mánaða fangelsi. Ástæða: Hún
braut upp fjárhirzlu húsbónda síns
á meðan hann sat að snæðingi me>ð
lögreglustjóranum.
JAPANSKUR kennari, sem fyrir
fjórani áram flutti að heiman frá
konunni sinni, var fyrir skemmstu
handtelíinn fyrir bókarstuld. Nafnið
á bókinni: „Ævisaga manns, sem
hræddist konuna sína.“
3