Vikan


Vikan - 01.03.1956, Side 2

Vikan - 01.03.1956, Side 2
líflegra hlutverk sem norður-afri- könsk söngkona i nýrri mynd „Port Afrique." Hún er gift dægurlagasöngvaran- um Vic Damone og á litinn son. SVAR til „Tveggja bústinna“: Cidar vinegar er edik, sem gert er úr eplasafa, en edik er t. d. líka hægt að búa til úr vínþrúgum. Við treyst- um okkur ekki til að segja neitt um það, hvort slikur vökvi sé hættu- legur heilsunni eða hvort hann hafi nokkur megrandi áhrif. Er það rétt að James Dean sé dáinn ? SVAR: Já, hann fórst í bílslysi. En þó hann sé horfinn éru til tvær kvikmyndir, sem hann hefur leikið í, og fengið alveg frábæra dóma fyrir. Önnur er „East of Eden,“ eftir skáldsögu Steinbecks. James Dean þótti semsagt ákaflega efni- legur upprennandi leikari (stund- um kallaður annar Marlon Brando), þegar hann fórst í bílslysi, skömmu eftir að hann hafði leikið annað svip- að bílslys. Við erum tvœr stöllur, sem höfum hugsað okkur að fara til Danmerk- ur, og vera þar einhvern óákveðinn tíma og œtlum að leita ráða hjd þér. Okkur langar til að fá einhverja vinnu, helzt á sjúkrahúsi. Við höf- um báðar gagnfrœðapróf. Hvert eig- um við helzt að snúa okkur til að fá upplýsingar um vinnu, og það sem til þarf. Hvenaer er hentugasti tím- inn til að fara út? SVAR: Danska sendiráðið í Reykjavík getur vafalaust gefið ykk- ur aliar upplýsingar varðandi vinnu- leyfi, líkurnar fyrir vinnu o. s. frv. Síðan getið þið skrifað einhverri vinnuráðningarstofu í Danmörku. Sendiráðið getur sennilega líka gefið ykkur nafn á eihverri slíkri. Mig langar til að skrifast á við Fœreying. Er ekki eitthvert blað í Heill árgangur fyrir aðeins 45 kr. Timaritið SAMTÍÐ1I\! flytur ástarsögur, kynjasögur, kvennaþætti, margs konar get- raunir, bráðfyndnar skopsögur, víðsjá, vísnaþátt (Skáldin kváðu), samtalsþætti, ástarjátningar, bridgeþætti, skákþætti,, úrvals- greinar, nýjustu dægurlagatextana, ævisögur heimsfrægra manna o. m. fl. 10 hefti árlega fyrir aðeins 45 kr. Nýir áskrifendur fá 1 eldri árgang í kaupbæti. Póstsendið i dag meðfylgjandi pöntun: Ég undirrit....... óslca að gerast áskrifandi að SAMTlÐINNI og sendi hér með árgjaldið, lf5 Icr. Heimili .......................................................... Utanáskrift okkar er: SAMTfÐIN, Pósthólf 75, Reykjavtk. Kœra Vika! Um daginn hafði ég þá ánœgju, að segja hóp af skátastúlkum, frá lslandi og Islendingum. Og urðu þcer svo hrifnar af myndum og lýsing- um, að þœr vilja endilega komast í bréfasambönd við jafnöldrur sinar á Islandi. Vona að þið sjáið ykkur fœrt að birta þetta. Bréfin geta sendst til Skátaforing- ans — Mrs. William Walker Malbon Mills Rd. Skowhegan, Maine U. S. A. Með fyrirfram þakklœti. Helena R. Morél. p.s. Skátaforinginn er hálf íslenzk, amma hennar hét Fríða Johnson — fœdd á lslandi. Geturðu ekki sagt mér eitthvað um ítölsku leikkonuna Pier Angeli? Er hún gift? Á hún börn? SVAR: Anna María Pierangeli fæddist á Sardínu fyrir 23 árum. Faðir hennar var húsameistari, en móðir hennar áhugamanneskja um leikhúsmál. Sjálf ætlaði hún að læra innanhússkreytingar. En ameríski kvikmyndastjórinn Arthur Loew sá hana hjá kunningum hennar og bauð henni aðalhlutverkið í kvikmyndinni Teresa. Eftir það felldi hún Anna María framan af nafni sínu og féllst á' að flytja til Hollywood. Eg var alveg dauðskelkuð," segir hún. „I augum okkar Itala var Hollywood hræðilegur staður, fullur af fólki með falskt hár. En strax og ég kom þangað, hitti ég aðeins fólk, sem var vingjarnlegt við mig og hrósaði Teresu. Mér geðjaðist prýðilega að Hollywood — hvaða önnur leikkona hefur líka þannig samning að hún megi eyða þremur mánuðum á ári á Itallu?" Fram að þessu hefur Pier Angeli leikið hlutverk „lítillar litlausrar músar,“ klæðzt ljótum fötum og verið með þjáningarsvip í gegnum allar sínar myndir, en nú hefur hún fengið Fœreyjum, sem ég get sett nafn mitt í ? Sé svo, geturðu þá sagt mér hvað þau lieita? SVAR: Við munum í svipinn eftir tveimur færeyskum blöðum: „14. september" og „Dimmalætting," en ekki vitum við hvort þessi blöð hafa dálka fyrir bréfasambönd. í>að væri samt reynandi að skrifa þeim. SVAR til K.R. Þú nefnir ekki hvers konar blöðum þú ert að leita að; myndablöðum, fréttablöðum, sögublöðum, tízkublöðum o. s. frv. 1 Frakklandi, Sviss og á Spáni eru hundruð slíkra blaða. Þú ættir að líta á þau erlendu blöð, sem fást (t. d. hefur Bókaverzlun Snæbjarn- ar Jónssonar talsvert úrval af blöð- um frá latneskum þjóðum) og velja þér eitthvert þeirra. Framhald á bls. 19. MUNIÐ NDRA MAGASIN FORSÍÐUMYNDIN er af Katli Jenssyni óperusöng- vara, í tilefni af því að söng- varinn hélt nýlega söngskemmt- un í Gamla Bíó við mikinn fögn- uð áheyrenda. Á söngskránni voru lög eftir innlenda og er- lenda höfunda. Húsfyllir var á skemmtuninni og var söngvar- inn hvað eftir annað kallaður fram og varð að syngja aukalög. Ketill mun endurtaka söng- skemmtunina á næstunni. BRÉFASAMBÖND Birting; á nafni, aldri og heimiiisfang:i kostar 5 krónur. Ingi Hermannsson og Geir Baldurs- son (við stúlkur 16—22 ára) báðir í Skálavík, Mjóafii'ði, N.-Is. — Ölaf- ur Benediktsson og Hörður Haralds- son (við stúlkur 16—25 ára), báðir á Sauðafelli, Miðdölum, Dalasýslu. — Vigdís Jóhannsdóttir (við pilt 18—22 ára), Syðra-Lágafelli, Miklaholts- hreppi, Snæf. — Hildur Júlíusdóttir (við pilt eða stúlku 15—16 ára), Skipagötu 1, Akureyri. — Sigurjón Skúlason (við stúlku 14—15 ára), Hlíðardalsskóla, ölfusi, Árn. — Valur Snorra (við stúlku 17—19 ára), Tún- götu 23, Vestmannaeyjum. — Reb- ekka Sigurjónsdóttir, Kristín Jóns- dóttir (við pilta eða stúlkur 18—22 ára) og Kristín Runólfsdóttir (við pilta eða stúlkur 16—18 ára), allar í Vinnufatagerð Suðurlands h.f., Þykkvabæ, Rang. — Halldór S. Kristjánsson (við stúlku 15—17 ára), Hótel Selfoss, Selfossi, Ám. — Mar- grét Lárusdóttir, Vitastíg 5 B, Sig- urbjörg Halldórsdóttir, Suðurgötu 46, Jóhanna Þórðardóttir, Kirkju- braut 12, Kristín Tómasdóttir, Brekkubraut 15, Hafdís Daníelsdótt- ir, Jaðarsbraut 11, Jónína Ingólfs- dóttir, Vesturgötu 94, Erla Karlsdótt- ir, Háholti 11, Fanney Hannesdóttir, Suðurgötu 87, (við pilta og stúlk- ur 15—20 ára), allar á Akranesi. — Ija Guðmundsdóti r, Hjala Jóns, Hia Gvends (við pilta 18—20 ára), allar í Busthúsum, Sandgerði, Gull. — Sig- ríður Auður Þórðardóttir (við pilta og stúlkur 13—14 ára), Tilrauna- stöðinni á Sámsstöðum, Fljótshlíð, Rang. — Ásgrímur Þorsteinsson (við stúlkur 25—40 ára), Borgum, Grímsey. Kynning á nýjum dægurlögum Félag dægurlagahöfunda efnir til kynningai' á nýjum íslenzkum dæg- urlögum í Austurbæjarbíói n. k. föstu- dagskvöld. Þar koma fram margir vinsælustu söngvarar okkar og auk þess verða ýmis skemmtiatriði t. d. Ieikþáttur, gamanvísur og töfrabrögð. Hér birtum við tvær myndir af söngfólki sem kemur fram á skemmt- uninni. Ingibjörg Þorbergs og Jón Múli syngja saman nýtt lag eftir Bjarna Gíslason. Allir kannast við söng Ingibjargar og nýtur hún ein- stakra og vaxandi vinsælda. Jón Múli er í hópi vinsælustu útvarpsmanna og rödd hans þekkjum við öll af lestri frétta og tilkynninga. Þetta er í fyrsta sinn sem Jón kemur fram sem dægurlagasöngvari. Hann syngur lag eftir Árna Isleifs- son sem heitir „Þetta er ekki hægt.“ Hulda Emilsdóttir og Sigríður Guð- mundsdóttir komu fram á skemmtim „Islenzkra tóna“ og fengu þar prýði- legar undirtektir. Síðan hafa þær sungið á fjölmörgum skemmtunum og njóta sívaxandi vinsælda. Þær syngja Nótt eftir Halldór Stefánsson og Stjarna lífs míns eftir Valdimar Auðunsson. Útgefandi VXKAN H.F., Reykjavík. Ritstjóri og ábyrgðarmaður; Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 3C5. 2

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.