Vikan


Vikan - 01.03.1956, Page 6

Vikan - 01.03.1956, Page 6
Múm sveif til jmrðmw* í rósóttum sumurhgóll Þessar stúlkur voru sannkallaðar hetjur LISE DE BAISSAC, einn hugrakkasti kvennjósnari banda- manna í síðustu heimsstyrjöld, var dag nokkurn að hjóla gegnum franskt þorp, þegar þýzkur hermaður þreif í hana og hreytti út úr sér: „Farðu af baki. Ég þarf að nota hjólið.“ Hún steig af hjólinu og svaraði rólega: „Hvernig dirfistu að haga þér svona! Ég bý í sama húsi og þýzki liðsforinginn, sem hér er æðst ráðandi, og ef þú hagar þér ekki eins og kurteis maður, mun ég hiklaust kæra þig fyrir honum." Þegar þetta skeði, var Lise með ýmsa hluti úr sendistöð sinni falda undir blússunni. Um leið og hún sleppti orðinu, féll einn þeirra undan blússunni. En svo hlessa var Þjóðverj- inn á dirfsku hennar, að hann flýtti sér lúpulegur í burtu án þess að taka eftir þessu. Lise var frönsk og flýði snemma í stríðinu til Englands ásamt Claude bróður sínum. I fyrstu neitaði hún að gerast njósnari, þegar brezka leyniþjónustan fór þess á leit við hana. Hún kvaðst hafa meðfædda óbeit á öllu snuðri. En henni snerist hugur, þegar fregnirnar fóru að berast af hryðjuverkum nas- ista. Hún varð ötull njósnari og skemmdarverkamaður og fór hverja ferðina á fætur annarri til Frakklands með bróður sín- um. Fyrstu ferðina fór hún í þeim tilgangi að stofna til and- spyrnuhreyfingar í Poiters. Hún var flutt með flugvél frá Eng- landi og varpaði sér niður í fallhlíf. 1 Poiters birtist hún í yERÐUB hann stjarna eða hverfur hann bara í hóp þeirra þúsunda „reikistjama", sem árlega flykkjast árangurslaust til Hollywood? Hann heitir Leslio Nielsen, er kanadiskur að upp- runa og er nú á snærum Metro-Goldwyn-Mayer. Kvikmyndafélag- ið spáir honum miklum frama, en nú hlýtur reynslan að skera úr því, hvort þær vonir, sem við hann em tengdar, rætast. Hann er búinn að leika í tveimur myndum og vinnur nú í þeirri þriðju. 1 hennl er Juno Allyson mótleikari hans. gerfi frú Irene Brisse, ekkju frá París, sem komin var til bæjarins í þeirri von, að meira væri um mat þar en í frönsku höfuðborginni, og ennfremur til þess að kynnast fornminjum héraðsins. Hún leigði sér herbergi og heimsótti prestinn, sem lét hana fá nöfnin á öðrum föðurlandsvinum, þegar hann komst að því, að hún var meðlimur í brezku leyniþjónustunni. Hún keypti sér reiðhjól og fór í langa hljólreiðatúra „til þess að skoða sögustaði og fomminjar.“ Þjóðverjamir létu hana óáreitta og grunaði síst af öllu, að hún væri að stofnsetja skæru- liðaflokka og finna hentuga staði, þar sem hægt væri að varpa til þeirra vopnum og vistum úr flugvélum. I ellefu mánuði starfaði hún þarna með hinum ágætasta árangri. Þá frétti hún frá London, að nasistar væru famir að gruna hana um græsku. Og nótt eina var flugvél send eftir henni og bróður hennar, sem stjórnað hafði svipuðum aðgerð- um í öðm héraði. Sumarið 1943 var hún að æva sig í fallhlífarstökki, þegar svo illa tókst til, að hún fótbrotnaði. En snemma árs 1944 var hún aftur komin til Normandy. Þar stofnsetti hún meðal annars einskonar skæruliðaskóla: kenndi Frökkum að nota handvélbyssurnar og marghleypumar, sem varpað var til þeirra í fallhlífum, hvemig kasta ætti handsprengjum og hvemig bezt væri að sprengja upp brýr og jámbrautalestir. Bækistöð hennar var í sama húsi og skrifstofa þýzka héraðs- stjórans! Inn um forstofudymar komu hraðboðar nasista með tilkynningar um ný skemmdarverk skæruliða; inn um bakdym- ar skutust skæmliðamir til skrafs og ráðagerða um enn meiri skemmdarverk! Dag nokkum gerði þýzki héraðsstjórinn boð eftir „frú Bou- ville“, eins og hún þá kallaði sig, og tjáði henni, að hún yrði að flytja; hann þarfnaðist herbergis hennar. Þegar þangað kom, vom þar fyrir átta þýzkir hermenn, sem þegar vom byrjaðir að flytja eigur hennar út. Allt var á tjá og timdri og þrír her- mannanna sátu á svefnpokanum hennar — sem búinn var til úr brezkri fallhlíf! „Þá var ég óneitanlega hrædd“, sagði hún síðar, „en það var ekki um annað að velja en standa sig. Ég hvessti á þá aug- um og sagði, að þýzki héraðsstjórinn hefði skipað mér að taka saman dót mitt. Þeir stóðu fýlulega á fætur og ég tók saman pjönkur mínar eins rólega og ég gat og gekk út. Þegar ég var komin úr augsýn, langaði mig samt mest að taka til fótanna." Það segir frá afrekum og ævintýrum Lise de Baissac í fróð- legri og spennandi bók, sem út kom í Englandi skömmu fyrir jól. Þar em auk þess skráðar hetjusögur fjórtán hugdjarfra njósnakvenna, sem að lokum létu lífið fyrir böðlum nasist- anna. Meðal þeirra var Diana Rowden, smávaxin og hæglát skosk stúlka, sem ögraði óvinum sínum með því að hnýta litfagran silkiborða í hárið á sér, áður en hún var leidd út til aftökunnar. Violetta Szabo átti sex mánaða gamalt bam, þegar hún var send til Frakkland. Hún sveif til jarðar í fallhlíf — klædd rós- óttum sumarkjól og hvítum bandaskóm og með eymalokka, sem hún hafði keypt í París í annarri njósnaferð. Meðal þeirra, sem lifðu stríðið af, var Odette Sansom og Christine Granville, sem fyrir stríð hafði verið kjörin fegurð- ardrottning Póllands. Hún hóf baráttu sína gegn nasistum í Budapest, varð að flýja þaðan til Palestínu, starfaði um hríð í Cairo og hafði loks aðalbækistöðvar sínar í Algeirsborg. Það er kaldhæðni örlaganna, að þessi hugrakka stúlka, sem sæmd hafði verið fjölda heiðursmerkja fyrir hetjudáðir sínar, varð eftir stríð fórnarlamb dularfulls morðingja. Hann drap hana með hníf í herbergi hennar í London. „Ástæða“ sú, sem hann gaf lögreglunni, var fjarstæðukennd og ótrúleg. Hann kvaðst hafa drepið stúlkuna, þegar hún hafi hafnað honum. Líklegast er þó, að einhverjar aðrar hvatir hafi komið honum til að drýgja morðið. Var hún kannski ennþá njósnari í þjónustu Breta? Hvað um það, morðinginn var hengdur. Yvonne Rudellat hét sú stúlka, sem einna fyrst var send frá Bretlandi til Frakklands. Hún var flutt upp að Frakklands- strönd eina niðdimma nótt í júlí 1942 og vann í nærri ár sem hraðboði skæruliðaflokks í Norður-Frakklandi. Hún varð nærri daglega að fara um eftirlitsstöðvar óvinanna, stundum á reið- hjóli með sprengiefni falið í körfu á bögglaberanum. Framhald á bls. 18. 6

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.