Vikan


Vikan - 01.03.1956, Page 13

Vikan - 01.03.1956, Page 13
vill engar málalengingar. 1 dag verða elskhugarnir mínir að byrja þar sem fyr- irrennarar þeirra enduðu 1935. Það er ekkert eiginlegt bónorð. Þessu er hreyft ósköp hversdagslega í venjulegu samtali. 1 nýjustu bókinni minni segir hann: „Vertu ekki að stríða mér . . „Ég er ekkert að stríða þér, mér er alvara,“ svarar hún. „Viltu með öðrum orðum giftast mér?“ „Já, það er það sem þú vilt, er ekki svo?“ „Þú veist það ósköp vel.“ „Þá skulum við trúlofast.“ Þetta er hálfgerður viðskiptasamning- ur. Jafnrétti kynjanna. Rómantíska glingr- ið er horfið. Nú er það kvenhetjan sem stjórnar ferð- inni. Og nútímastúlkan veit ósköp vel, að öll háfleygu orðin og allar skrautlegu lýs- ingarnar eru komnar úr tízku. Henni er það fullkomlega ljóst, að kær- astinn ætlar sér alls ekki að vera neinn þræll hennar. Stúlkurnar í nútímabókunum virðast ekkert sérstaklega áfjáðar í, að þær séu gerðar að einskonar guðdómlegum verum. Ungfrú 1956 er ansi raunsæ; hún veit að lífið er ekki eintómur dans á rósum. Karlmennirnir í bókunum mínum eru líka steinhættir að lofa stúlkunum gulli og grænum skógum. Þeir segja einfald- lega: „Það kemur til með að ganga á ýmsu hjá mér næstu árin; viltu slást í förina?“ Og þær svara venjulega: „Gott og vel, það er bezt ég reyni það.“ Heimurinn hefur tekið miklum breyt- ingum síðan fyrir stríð. Fyrir stríð höfðu elskendur tíma til að elskast. Það lá ekkert á. Það var nógur tími til undir- búnings. Það var hægt að semja nákvæm- ar framtíðaráætlanir, án þess að eiga það á hættu, að atburðarásin gerði þær einsk- is virði. Svo giftu ungu hjónin sig og fóru í brúðkaupsferð og settust að í for- kunnarfögru litlu húsi. En lítið nú á hvernig unga fólkið má lifa í dag! Enginn tími til neins. Sífelld hlaup, sífelld barátta. Um að gera að grípa tafarlaust þau tækifæri sem gef- ast — annars eru þau töpuð. Það er ekki beinlínis árennilegt að ætla að lifa kyrrlátu, rómantísku lífi við sí- vaxandi dýrtíð, húsnæðisskort og ótal aðra erfiðleika. Þetta er ekki beinlínis ungu fólki hvatning til að gifta sig. Hvað stoða nú fögru orðin og háfleygu setn- ingamar? Maður verður að líta á heim- inn eins og hann er. Nú giftir unga fólkið sig ósjaldan með nokkur hundruð krónur í vasanum og leig- ir sér herbergi með aðgangi að eldhúsi (ef heppnin er með) eða holar sér niður í bragga. Oft á tíðum verða bæði að vinna úti. Engin bjarteyg, hlægjandi húsfreyja sem tekur eiginmanninum opnum örmum í dyrunum, þegar hann kemur heim að loknu dagsverki. Bara tvær þreyttar mann- eskjur, sem elda sér kvöldverð í sam- einingu og reyna eftir beztu getu að láta ekki þreytuna koma sér í slæmt skap. Heimurinn er í hálfgerðu öngþveiti. Framtíðin er óviss. Menn hafa lítinn tíma til hvíldar og skemmtana. Hvað þýðir þá að vera að skrifa um hárómantískar draumaverur? Eða að gera söguhetjuna svo gamaldags, að hún verður þrautleið- ingleg, óraunveruleg og heldur heimsk? Það er sagt, að rómantískar bókmennt- ir eigi að hjálpa lesandanum að flýja raun- veruleikann um stundarsakir. En flótta- leiðin verður að liggja inn í þessháttar líf, sem gæti átt sér stað á þessari atom- öld. Ég vona, að söguhetjur mínar séu nú þannig úr garði gerðar, að hægt sé að trúa á þær. Þó finnst mér engin ástæða til að varpa fyrir borð allri viðkvæmni eða nema burtu allan lit. Stefnan virðist að vísu vera sú, en ég held naumast að hún geti verið til góðs. Ástin og rómantíkin hefur alltaf verið og mun alltaf verða sykurhúðin á þeirri beizku pillu, sem lífið er í raun og sann- leika. Við þörfnumst þessarar sykurhúð- ar engu síður í dag, þegar ástandið í heim- gengt. En það er skrýtið að hún skyldi ekki kveðja þig almennilega . . . Adrian lagði símtólið á, áður en Karrý hafði lokið máli sínu. Miriam var farin og veröldin orðin svo auð og tóm. Hvoru- tveggja kom jafn flatt upp á hann. Eink- um það að þetta tvennt skyldi vera svo nátengt hvort öðru. Dagarnir liðu. Á ytra borðinu var eng- in breyting. Adrian vann eins og áður og talaði við sama fólkið, en þó Miriam hefði aldrei talað mikið, þá var orðið svo undar- lega hljótt í kringum hann. Honum datt í hug að skrifa henni, en það varð aldrei af því. Nokkrum vikum seinna kom viðskipta- vinur inn í búðina og fór að skoða borð- spegilinn. Adrian varð strax hugsað til morgunsins, þegar Miriam hafði komið með hann, en hann verið of önnum kaf- inn til að sinna henni. Hvernig hafði hon- um getað dottið í hug að láta hana sleppa sér svona algerlega úr greipum. — Nei-sko, sagði viðskiptavinurinn allt í einu og tók eitthvað upp úr litlu skúff- unni. — Fylgir þetta með í kaupunum? Hann rétti Adrian litla öskju. Adrian opn- aði hana og stóð með tóbaksdósina henn- ar Miriam í hendinni. Hún hafði rofið þögnina á þann eina hátt sem hún gat: Þú átt hjarta mitt! Hugsaðu svolítið til mín! undir þaki. — Flýttu þér, Alan, bað hún. — Flýttu þér, elskan! En hún vissi að hann gat ekki verið kominn aftur fyrr en um sex leytið. Frances byrjaði að gráta og Pinto gamli reyndi að hugga hana. Enn sást engin hreyfing við sólbjarta brúnina. Stella velti því fyrir sér á hve löngu færi slíkt skotvopn dræpi mann og henni varð flök- urt við tilhugsunina. Dagurinn leið hægt og enn sást ekkert merki um Kikuyu mennina. Pinto sat við vögguna og varir hans bærðust í þögulli bæn, því Goabúar eru góðir kaþólikkar. Stella þorði varla að vona að fyrirætlanir hennar heppnuðust. Biðin tók á taugarnar, svo þær urðu eins og ofstrengdir fiðlu- strengir, að því komnir að bresta. Sólin fór að síga í vestri. Skyndilega var hin óheillavænlega þögn, sem ríkt hafði allan daginn, rofin af véla- dyn, og Stella vissi að þetta var Alan, sem var að skipta í lággír um leið og hann kom í lausa sandinn, sem lá upp að húsinu. — Pinto, sagði hún og augu hennar ljómuðu. — Bwana er kominn. Bamið og inum er þannig, að erfiðleikar og allskyns ógnir vofa sífellt yfir. Ég vil helst ekki, að karlmennimir í bókunum mínum verði of miklir raunsæismenn, og ég vil ekki að konurnar verði of harðlyndar. Ég vil með einhverjum brögðum láta hina róm- antísku ást lifa með sínum dramatísku átökum og göfgandi mildi. — DENISE ROBINS. Framhald af bls. 8. Um kvöldið flaug Adrian til Parísar. I vasanum hafði hann tóbaksdósina, ásamt heimilisfangi Miriam, sem hann hafði fengið hjá Karrý. Hann hafði ekki einu sinni þurft að biðja um hana. — Svo þú ætlar til Parísar? hafði hún sagt og gripið fram í fyrir honum eins og venjulega. — Þá líturðu inn til Miriam, er það ekki? Hún talaði í sínum venju- lega viðskiptatón, en einhvern veginn hafði hann það á tilfinningunni að hún væri að hlægja að honum. Kannski hafði hann haft rangt fyrir sér, þegar hann hélt að hún hefði ekkert hugmyndaflug. Snemma morguninn eftir tók hann bíl að hótelinu, þar sem Miriam bjó. Aldrei hafði honum fundizt París svona fögur. Vetrarsólin skein á Signu, naktar grein- ar trjánna, gráu brýrnar og svörtu hús- þökin. Og hún skein á Miriam, sem kom í sömu andránni út um dyrnar á hótelinu. Hann tók undir handlegginn á henni og þegjandi gengu þau saman niður mjóa götuna, niður að ánni. Þau hölluðu sér saman út yfir handriðið og horfðu niður í glitrandi vatnið, eins og allir elskend- ur í París gera — alveg steinþegjandi. Adrian gat ekki komið upp nokkru orði. Loks stakk hann hendinni í vasann og dró upp tóbaksdósina. Þá fyrst leit Mir- iam á hann og hann horfði á hana. Eftir það augnatillit og brosið sem því fylgdi, var ekki þörf fyrir nein orð. gamli maðurinn byrjuðu bæði að gráta. Þegar Alan kom, ásamt háa, unga ara- biska þjóninum sem hann hafði með sér, stóð Stella í dyrunum á bílskúrnum með riffilinn í hendinni og skammbyssubeltið um mittið. Hálfhlægjandi og hálfgrátandi sagði hún frá komu konunnar og Kikuyu- mönnunum þremur, sem hún hafði séð uppi á hæðarbrúninni. Alan lagði handlegginn utan um hana. — Þú hefur staðið þig eins og hetja, sagði hann. — Guði sé lof fyrir að þú ert heil á húfi. Hann leit órólegur yfir skjálfandi axlir hennar, upp á hæðina. — Ég get ekki skilið, hversvegna þeir réð- ust ekki á ykkur, meðan þeir höfðu tæki- færi til þess. Stella skríkti. — Kannski þeir hafi*sofið yfir sig. — Sofið yfir sig, elskan ? Maður hennar leit rannsakandi á hana og velti því fyrir sér hvort hún væri nú að fá taugaáfall af áreynslunni. — Ég steytti það sem eftir var af svefnpillunum mínum og blandaði þeim saman við niðursoðnu mjólkina, sagði hún til skýringar. Þögn er gulls ígildi stundum Ein kona cjecjn Hiau Mau Framhald af bls. 5. 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.