Vikan


Vikan - 21.06.1956, Side 5

Vikan - 21.06.1956, Side 5
sportfatnaði og' eyddi heilum degi með íþrótta- mönnum á 'æfingu úti á íþróttasvæði Suður- Kaliforníu háskóla. Á einni af þessum myndum krýpur hýn tilbúin til að leggja af stað í hlaup, og við hlið hennar stendur þjálfarinn frægi Dean Cromvvell með byssu í hendinni. Greta er i stutt- um hvitum hlauparabuxum, svartri peysu, sport- sokkum og gaddaskóm. Hárið á henni fellur niður yfir hægra augað, þegar hún lítur upp og hlær. Á öðrum auglýsingamyndum er hún að leika á guitar, sýna skinnfóðraðan loðjakka eða að heilsa indverskum fursta og fylgdarliði hans við komuna til Metro-Goldwyn í Hollywood. Það var ekki af ástæðuiausu að hún var í fyrstu ,, uppáhaldsbarn' ‘ auglýsingadeildai'innar. Það var ekki henni að kenna þó viðtölin við hana væru ekkert sérlega frumleg. Hún gerði sitt bezta. En hún átti við mikla erfiðleika að stríða. Eins og flestir Svíar þjáðist hún af minnimáttarkennd. Það er alltaf hættulegt að gera einkenni heillar þjóðar að algildri reglu, en Sviar viðurkenna það sjálfir að rótgrónar höml- ur geri þeim erfitt um vik þegar þeir koma opinberlega fram. í samanbui'ði við nágranna sína, hina snarlegu Norðmenn og hjartanlegu Dani, eru Svíar þunglamalegir, varkárir og tor- tryggnir í' garð ókunnugra. 1 raun og veru getui' Svíi verið jafn elskulegur og hver annar, en skaplyndi hans heldur aftur af honum og gerir hann ósjálfrátt formlegan í framkomu. Greta var sænsk alveg fram í fingui'góma. 1 æðum hennar rann ekkert framandi blóð. Hún var líka óþjál, þegar hún hitti blaðamennina. Jafn feimin og hún var, tók hún þessi blaða- viðtöl nærri sér. Auk þess gat hún ekki með nokkru móti talað um sjálfá sig, eins og félag- ar hennar í leikskólanum höfðu fyrii' löngu kom- NÝ TÍDINDI (AF LÉTTARA TAGI) ROY M. WOLFF heitii' tannlækn- ir í Clayton í Missouri. Hann komst að þeirri niðurstöðu, að allur hviti liturinn í tannlækningastofum gerði sjúklingana hrædda, og þó eink- um börn. 1 stað hvíta læknasloppsins, tekur Wolff nú á móti í litskrúðugri sport- skyrtu, gulum buxum og grænum skóm. Aðstoðarstúlkan hans er i bláum slopp og bláum skóm og vegg- irnir eru málaðir í skærum, fjörleg- um litum. Sjúklingatala tannlæknisins hefur tvöfaldast á skömmum tíma. KUNNINGJAR Spiros Galanopoul- os í gríska þorpinu Lambeti skildu ekkert hvað orðið hafði af honum. Það var alltaf viðkvæðið, þegar nafn hans vai' nefnt: „Hvert í ósköpunum skyldi hann hafa farið.“ Fyrir skemmstu kom á daginn, að hann var raunar ekki fjarri. Nafn- laust bréf hafði það í för með sér, að lögreglan gerði húsi'annsókn i einu af húsum þorpsins. 1 kjallar- anum fann hún týnda manninn. Ætt-' ingjar hans höfðu læst hann þar inni, eftir að þeii' lentu í deilum við hann — fyrir fimmtán árum! FR.O Addolorata Carbonelli í Pie- dimente á Italíu þjáðist af þrá- látri magapínu. Hún var að lokum skorin upp —- og í maga hennar fannst lyklakippa með þremur litlum lyklum! Þegar hún var innt eftir því, hvern- ig lyklarnir væru þarna komnir, kvaðst hún hafa gleypt þá, til þess að maðurinn hennar kæmist ekki í peningaskáp þeirra hjóna og sóaði öllu sparifé þeirra. izt að raun um. Hún var sér líka óþægilega með- vitandi um menntunarskort sinn. Þetta varð allt til þess að viðtölin við blaðamennina urðu hrein- asta kvalræði fyrir hana. En það lágu líka aðr- ar ástæður til þess. Stiller, sem hafði fyrirlitn- ingu á fréttariturum, hafði ráðið henni til að umgangast þá af mestu varkárni. Það var þess- vegna ekki undarlegt þó Greta hefði lítil og ópersónuleg áhrif á amerisku blaðámennina, þeg- ar hún hitti þá í fyrsta sinn. En bandarískir blaðamenn eru uppfinninga- samir, einkum þeir sem skrifa í hin vinsælu leikarablöð. Með því að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, tekst þeim að gefa hverri stjörnu sinn. persónulega blæ. Það mikilvægasta fyrir hverja stjörnu eru séreinkenni hennar. Þegar Þeir fundu upp allskyns auglýsinga- brellur handa Gretu. Meðal annars tóku þeir af henni mynd við hliðina á ljóni! Greta kom til Hollywood var Mary Pickford t. d. „hin litla kærasta veraldarinnar“ og Clara Bow „stúlkan með það“. Það var erfitt að eiga við hlédræga, ópersónulega, feimna og í raun- inni næstum steinþegjandi ókunnuga stúlku, sem engin séreinkenni hafði. En „persónuleikahöf- undarnir" hófu baráttuna. Meðan á töku „Freistarans11 stóð, hafði meðeig- andi í blaðinu Motion Picture Magazine sem hét Rilla Page Palmborg, viðtal við hana. Maðurinn hennar, sem var sænskur, var viðstaddur og túlk- aði samtalið- Samt sem áður skrifaði blaða- konan í greininni: „Það er aðdáunarvert að heyra hve vel hún talar ensku, þar sem hún kunni ekki eitt einasta orð í henni þegar hún kom.“ Þar mátti lika lesa það, að Greta talaði með „yndis- legum“ hreim og að röddin væri „djúp og á lágu tónunum".' Hún var líka kölluð: ,,há, hlédræg og óörugg“, og sagt — að hún hefði verið i ein- faldri dragt, sem hefði þurft pressunar við. Augu hennar voru falin undir grænum bráhár- um . . . og hún hafði kvartað undan því að Kali- forniusólin færu í augun á sér. Ekert markvert gerðist eða kom fram í sam- talinu. Greta sagði, að hún hefði orðið alveg ut- an við sig, þegar Stiller var vikið frá, en gerði engar aðrar athugasemdir um það. Hún sagði að í Ameríku væri allt svo stórt og ólíkt þvi sem það væri heima og að vinnustofur Metro-kvik- myndafélagsins væru svo stórar að hún yrði alveg rugluð þar. „Eg mundi villast í þeim, ef mér væri ekki vísuð leiðin.“ Ennfremur sagði hún, að hún hefði fram að þessu haft of mikið að gera til að hafa heimþrá. Og um Bandarikin sagði hún: „Allir ‘eru á svo miklum hlaupum. Okkur ligg- ur ekkert á í Svíþjóð. 1 Ameríku er allir svo hamingjusamir. Hvernig stendur á því að þið eruð öll svona hamingjusöm? Ég er ekki alltaf hamingjusöm. Bara stundum! Þegar ég er gröm, verð ég ónotaleg. Eg hörfa þá inn í sjálfa mig og segi ekki eitt einasta orð“. Hvað hlutverkum ,hennar viðvék þá sagði hún aðeins að hún vildi einhverntíma fá að leika „góða stúlku“. Á þessu lítilfjörlega samtali, sem ekki var á nokkurn hátt leyndardómsfullt eða tvírætt, byggði blaðakonan grein sína, sem birtist níu mánuðum eftir að Greta kom til Hollywood, undir fyrir- sögninni: „Greta Garbo á eftir að hrífa áhoi'f- endur sína, en ég þori að fullyrða að hún verð- ur alltaf að meira eða minna leyti óráðin gáta.“ Og til að undirstrika þetta, stóð ofan við grein- ina þessi ósanna en lokkandi setning: „Dular- fullur útlendingur.“ Nú var helgisögnin um hana komin af stað. 13. K.VI LI. Og þegar sagan var komin á kreik ýtti til- viljunin undir hana. Strax eftir leik sinn í „Freistaranum“, var Greta látin leika á móti John Gilbert í „Iðrun“, mynd sem gerð var eft- ir skáldsögú Hermanns Sudermann. John Gilbert var frægur sem „mesti elskhugi kvikmyndanna". Varla var myndataka byrjuð, þegar orðrómurinn um ákafa ást Gilberts- og hins nýja mótleikara hans fékk byr undir báða vængi. Stjórnandi myndarinnar, Clarence Brown, lét á sér skilja, að aldrei hefði hann séð aðrar eins ástarsenur, eins og milli Gretu og Gilberts. Hann lét fylgja skýringu á því. „Ég vinn ineð hreint og ósvikið hráefni," sagði hann. „Þau eru bæði stödd á rósaskýi uppi í sjöunda himni ástarinnar og halda að enginn sjái þau.“ Áður en fyrsta kafla í „málinu Greta-Gilbert“ var lokið, vai' það orðið að alþjóðlegri merkis- frétt og ótrúlega umfangsmikið. „Þegar ást þeirra blómgaðist sem bezt“, skrifar slúðurdálka- ritarinn Adela Rogers St. John, „var Gretu og Gilbert skipað í flokk með ódauðlegum elskend- um, eins og Romeo og Juliu, Dante og Beatrice, Antoniusi og Kleopötru. Þetta var persónugerð ást milli manns og konu, eins ög Shakespeare gerði hann þegar hann skrifaði sonettur sínar til dökkhærðu konunnar”. Þó Gilbert þoli varla samanburð við Romeo, Dante og Antonius, þá var hann samt sem áð- ur þekktur maður á þriðja tug aldarinnar. Hann var afburða glæsilegur í útliti, med dökkt hár, logandi augnaráð og blikandi hvítar tennur, enda var hann vafalaust vinsælasti leikari þöglu kvikmyndanna. Þegar hann kynntist Gretu, árið 1926, greiddi Metro honum 10.000 dali á viku. Undir stjórn Erichs von Stroheim hafði hann náð ótrúlegum vinsældum sem Danilo í „Kátu ekkjunni“, en hún gaf fjórar milljónir dala í aðra hönd og í henni voru djarfari ástarsenur en nokkurn tíma höfðu sést. Gagnrýnendurnir sögðu að þær einkenndust af „raunsæjum til- finningum og ástríðum“. En velgengni hans varð ennþá meiri í . Skrúðgöngunni miklu", som hvað gróða sv.erti k 'm næst á eftir „Frumbyggja- vagninum". „Það var nú hlutverk, sem vert er að tala um,“ sagði Gilbert um þátt sinn í „Skrúðgöngunni miklu", „Allt annað er bara smjör". En i raun og veru var John Gilbert bitur og óhamingjusamur maður, sem aldrei hafði ætlað að verða leikari. Foreldrar hans höfðu til- heyrt þriðja flokks leikflokki; þau höfðu skilið þegar hann var lítill og æska hans var auðug af fátækt og vesæld •— oft saddi hann hungur sitt með því að róta í öskutunnunum. Skólaganga hans var glóppótt og henni lauk, þegar hann var fjórtán ára gamall, alveg eins og menntun Gretu. Eftir að hafa unnið margvísleg störf, hafnaði hann sem leikari í kvikmyndunum með 15 dala tekjur á viku, en frá upphafi ætlaði hann sér að vera kvikmyndastjórnandi. Til að fá hann til að halda áfram að leika, var honum oft lofað tækifærum til að taka kvikmynd, en hann fékk aldrei að standa á bak við myndavélina — hann var of dýrmætur fyrir framan hana. Þetta olli honum vonbrigðum, sem hann komst aldrei yfir. 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.