Vikan - 06.02.1958, Síða 2
_______/77 e &/_
^/—íL/lrLPP
SÉRA John Updegraff, sem
er formaður Prestafélags-
ins í Miami í Bandaríkj-
unum, er öskuvondur.
Ástæðuna sjáið þið á
myndinni hérna fyrir
neðan. Það er verið að
gefa þessi skötuhjú sam-
an. Og eins og þið sjáið,
er ekki nóg með að brúð-
hjónin séu á náttklæðun-
■ um, heldur sýnist prestur-
inn líka vera í einhvers-
konar náttskyrtu undii1
jakkanum.
Sumum Bandaríkjamönnum
finnst þetta sniðugt.
EN EKKI séra John. Hann
vill láta banna öll skrípa-
stiga og framkvæmdi at-
höfnina.
3) Hjónaefnin voru splæst
saman í flugvél og at-
höfninni útvarpað.
„Það er verið að eyðileggja
helgi stundarinnar," segir
séra John.
•
GÖÐ tíðindi fyrir sköll-
ótta — vonum við.
Læknar eru farnir að
taka skalla hátíðlega. Tvö
hundruð læknar komu ný-
Iega saman á ráðstefnu
þar sem aðalumræðuefnið
var skalli. Á ráðstefnunni
kom fram að bandarískur
læknir að nafni Lubowe
þykist hafa læknað all-
marga ,,skallasjúklinga“
með hormónagjöfum.
En aðferðin er enn á til-
raunastigi.
•
Nlí ER ný uppfinning að
koma á markaðinn, sem
við Islendingar eigum
kannski eftir að njóta
góðs að — eftir svosem
Líka uppi í loftinu og niðri á liafsbotni
læti í sambandi við hjóna-
vígslur. Hann vill láta
banna hjónavígsluna, sem
tveir tamningamenn (ann-
ar er að sjálfsögðu kona)
nú hafa í bígerð, og sem
þannig er hugsuð að
hjónaefnin ætla að ríða
út á skeiðvöll og svo á
presturinn að koma ríð-
andi á eftir þeim og gefa
þau saman á meðan öll
hersingin ríður í hringi á
skeiðvellinum.
Hér eru síðustu dæmin um
óvenjulegar bandarískar
hjónavígslur:
1) Hjónaefnin klæddust
kafarabúningi og voru
gefin saman á hafsbotni.
2) Hjónaefnin klifruðu upp
í flaggstöng en prest-
urinn klöngraðist upp í
hálfa öld. Bandaríkja-
menn eru að byrja að
sjónvarpa kvikmyndum
beint úr kvikmyndahús-
um inn á heimilin. Til-
raunin er gerð á Long Is-
land í New York.
Þetta gengur svona fyrir
sig:
Ef mynd kemur í bió, sem
mann langar að sjá en
vill ekki af einhverjum
ástæðum fará út til þess
að sjá, labbar maður sig
bara niður í miðasöluna,
borgar tuttugu krónur
og fær fyrir það merki.
ÞEGAR sýningarstundin
rennur upp, stingur mað-
ur merkinu í rauf á ör-
litlu galdratæki, sem
kvikmyndahúsið hefur
látið festa á sjónvarps-
tækið manns frítt og ó-
keypis. Myndin blasir þá
við manni alveg eins og
maður sæti í bíóinu, og
nú getur öll fjölskyldan
séð hana samtímis og án
þess að þurfa að fara út í
vonda veðrið.
Eftirmáli: Það er ekki
hægt að „svindla sér inn“
með því að nota bíómerk-
ið tvisvar. 1 fyrsta lagi
er ekki hægt að ná því
úr „galdrakassanum" án
þess að brjóta hann upp,
og í öðru lagi eru gefin
út ný og breytt merki
þegar skipt ei* um mynd.
•
ÞAÐ blasti hérna við okkur
á Vikunni fyrir skemmstu
mynd af broshýrri kín-
verskri stúlku i khaki-
treyju og með kastskeyti
á höfðinu. Þetta er ein-
kennisbúningur bílfreyja
í Taipei á Formósu.
En hversvegna stúlkan er
svona skælbrosandi, það
er ofar okkar skilningi.
I fréttinni, sem fylgir
myndinni, er nefnilega
skýrt tekið fram, að
stúlkan hafi fyrir
skemmstu verið sektuð
um fimmtíu krónur fyrir
að aftra verðandi við-
skiptavini, sem henni
fannst hafa of mikinn
farangur, inngöngu í
strætisvagn — með því
að bíta hann í hendina.
Dómarinn lét þau orð falla
um framkomu bílfreyj-
unnar, að svona lagað
væri „alls ekki kvenlegt“.
•
'STUNDARÐU fjárhættu-
spil ? Varaðu þig þá á
rauðeygðum mönnum!
Augnlæknir að nafni Geor-
ge N. Jessen upplýsir, að
óvandaðir f járhættuspil-
arar séu farnir að nota
sérstaka gerð af sjón-
glerjum eða sjónhimnum,
sem hægt er að smeygja
yfir augnahimnuna og
gerir svindlurunum kleift
að lesa ósýnileg merki á
bökum spilanna.
En sjónglerin valda þvi, að
augun fá rauðleitan blæ.
LOKS er þess að geta,
að sama daginn sem
Buddy nokkur Cole og
kona hans fengu skilnað
í Los Angeles, skunduðu
þau til borgardómarans
og létu splæsa sig saman
aftur.
„Gamla hjónabandið dugði
bara alls ekki,“‘ sagði
Buddy í viðtali við blaða-
menn. „Nú byrjum við
upp á nýtt.“
Ástæða okkar til skrifa
þessara er að vísu nokkuð
brosleg, en okkur langar til
að fá skorið úr deilumáli,
sem upp hefur komið á milli
okkar nokkurra stúlkna.
Þrætueplið er; Mega flug-
freyjur hafa falskar tenn-
ur.
Viö liöfum boriö þessa
spurningu undir fulltrúa hjá
öðru flugfélaginu og svariö
var þetta: Það er œskilegt
að flugfreyjur hafi sínar
eigin tennur, en þó álítum
við betra að þœr hafi falsk-
ar en engar.
Við viljum boeta við, að
tennur eru ekki alltaf
taldar til fegurðarauka. T.
d. sagði Rúna Brynjólfs-
dóttir tiskusýningardama í
London okkur, þegar hún
kom í viðtal til Vikunnar,
að sýningarstúlkur í Lond-
on létu alveg hiklaust draga
in sér alla jaxlana, til að
verða kinnfiskasognar og
„interessant".
Geturðu gefið okkur upp-
lýsingar um það hvað kennt
er í Húsmæðraskóla Suður-
lands? Geta ekki norðlenzk-
ar stúlkur fengið þar skóla-
vist? Hvað er það langur
skóli ?
1 Húsmœðraskóla Suður-
lands á Laugarvatni eru
stúlkur víðs vegar að af
landinu. Það er 7 mánaða
skóli og námsefnið er mikið
til það sama og í öðrum
húsmœðraskólum, en lögð
meiri áhersla á íþróttir og
útiveru en í flestum hinna.
Aftur á móti var a. m. k.
ekki kenndur vefnaður þar,
livort sem nú er farið til
þess eða ekki.
Ég sé að þú birtir stund-
um kvæði. Viltu birta fyrir
mig kvæðið Ást eftir Sigurð
Nordal. Ég hef hvergi get-
að fundið það á prenti. Ein
vísan er svona . . .
Ljóðið fundum við í kver-
inu „Islenzk ástarljóð“. Það
mun vera gert árið 1917.
Sólin brennir nóttina
og nóttin slökkvir dag,
Þú ert atlivarf mitt fyrir
cg eftir sólarlag.
Þú ert yndi mitt áður
og eftir að dagur rís,
svölum í sumarsins eldi
og sólbráð á vetrarins ís.
Svali á sumardögum
og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli
og söngur ef allt er hljótt.
Söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og
grasið
og guð á himnum að vin.
Þú gafst mér skýin og fjöllin
og guð til að styrkja mig.
Eg fann ei hvað lifið var
fagurt
fyrr en ég elskaði þig.
Ég fœddist til Ijóssins
og lífsins,
ég lœrði að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað,
fyrr en með sjálfum mér.
Ást mín fœr dldrei fölnað,
því eilíft líf viér hún gaf.
Aldirnar hrynja sem öldur
um endalaúst tímans haf.
Aldir og andartök hrynja
með undursamlegum nið;
það er ekkert í heiminum
öllum
nema eilífðin, guð — og við.
Yerðlaunagetraunin
Sseðill í verðlaunakeppni Vikunnar:
Finnið happdrættis-
I skuldabréfin á forsíðunni
Tala happdrættisskuldabréfanna er
......... að þessu sinni.
Nafn...............................
Heimilisfang ----------------------
Otgefandi VIKAN H.P, Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.