Vikan - 13.02.1958, Side 3
Hvernig þú átt að krækja þér i mann!
Æ öferðir ag
tœkni
Hvernig maður hefur
upp á mannsefninu
1. Farðu í kvöldskóla — veldu þér
námsefni, sem karlmenn hafa
áhuga á.
2. Gangtu í ferðafélag.
3. Lestu dánartilkynningarnar —
þá veiztu hvað ekkjumennirnir
heita.
4. Legðu land undir fót í sumar-
fríinu þínu frekar en að halda
kyrru fyrir á sama stað.
5. Farðu niður að Tjörn og gefðu
öndunum.
6. Fáðu þér vinnu í læknaskóla.
7. Þú skalt gerast hjúkrunarkona
eða flugfreyja -— dæmin sanna
að þær pipra sjaldan.
8. Vertu viðmótsþýð við alla —
þeir eiga kannski ógifta bræður.
9. Vertu vingjarnleg við ófríða
karlmenn — friðleikinn er ekki
fyrir öllu.
10. Láttu vini þína vita að þig langi
að giftast. Haltu því ekki leyndu.
11. Farðu ein á knattspyrnuleiki.
12. Forðastu að vinna hjá fyrirtækj-
um þar sem kvenfólk er í meiri-
hluta.
13. Skiptu öðru hvoru um íbúð.
14. Fáðu þér vinnu í búð sem selur
veiðistangir og íþróttaáhöld.
15. Búðu í litlum hótelum þegar þú
ert á ferðalagi, þvi að i þeim er
auðveldast að kynnast fólki.
Hvernig maður dregur
að sér athygli hans
16. Reyndu að misstíga þig þegar þú
gengur inn í herbergi þar sem
hann er fyrir.
17. Vertu óhrædd við að hringja á
hann endrum og eins.
18. Gangtu með plástur. Fólk spyr
alltaf, hvað hafi komið fyrir.
19. Græddu sand af peningum.
20. Farðu til hans og segðu hon-
um, að þú þarfnist ráðlegginga.
21. Lærðu að baka góðar kökur.
Farðu með nokkrar í vinnuna
og gefðu piparsveinunum.
22. Hlæðu að skrítlunum hans.
23. Stattu úti í horni hábeljandi.
Sennilegast kemur hann til þín
og spyr hvað sé að.
24. Fáðu þér fallegri gleraugu —
gleraugu þurfa ekki að vera til
óprýði.
25. Ef þú litar hár þitt, þá haltu
þér við sama litinn.
26. Segðu honum að hann sé lag-
legur.
27. Gættu heilsu þinnar. Karlmenn
foi'ðast heilsuveilt kvenfólk.
28. Klæddu þig öðruvísi en hinar
stúlkurnar á vinnústaðnum.
29. -Gættu tungu þinnar.
30. Megraðu þig ef þörf krefur.
Cpumingin er: Hvernig áttu að krækja þér í mann?
^ Ætlun okkar er: að hjálpa þér að finna svarið.
Eitt víðlesnasta kvennablað Bandaríkjanna, McCALL’s,
efndi fyrir skemmstu til „ráðstefnu“ um þetta efni. f»að
fékk sextán konur og karla til þess að mæta á skrifstofu
blaðsins og ræða málið. Meðal þátttakenda voni: vinsæll
dægurlagahöfundur, sambúðarsérfræðingur („marriage
consultant“ lieitir það á enskunni), flugfreyja, lögreglu-
stjóri, húsmóðir, bankastjóri, sálfræðingur, piparsveinn,
verkfræðingur og nýgift stúlka.
Viðfangsefni dagsins var þannig lýst fyrir þátttakend-
um:
I FYKSTA LAGI: Að þeir ættu að koma með tillögur
um, hvaða aðferðir kvenfólk gæti notað til þess að krækja
sér í karlmann.
í ÖÐKU LAGI: Að það væri ekki ætlunin að skegg-
ræða tillögurnar, vega þær og meta, heldur bæri að leggja
alla áherzlu á að sem allra flestar kæmu fram.
OG I ÞRIÐJA LAGI: Að frumlegar uppástungur væru
þegnar með þökkum.
Svo var bjöllunni hringt og fundur settur, og þegar
honum lauk, voru komnar frain hvorki meira né minna
en 404 uppástungur um „aðferðir og tækni.“
McCALL’s valdi úr 129 og birti þær. Vikan hefur svo
enn stytt listann og birtir hann hér með.
Og við vonum, kæra kvenfólk, að hann verði ykkur
að liði!
39. Hrósaðu honum í eyru vina
hans.
40. Sendu móður hans afmælis-
kveðju.
41. Ekki tala um hve mörg börn
þú viljir eiga.
42. Reyndu að hafa áhuga á tóm-
stundagamni hans.
43. Stoppaðu ekki við hvern búðar-
glugga, þegar þið eruð úti að
ganga.
44. Segðu honum ekki hvað fötin
þín kosta.
45. Lærðu að sauma og sýndu hon-
um hvað þú ert myndarleg.
46. Láttu hann aldrei gruna, að
hann sé sá eini, jafnvel þótt þú
verðir að sitja heima tvö þrjú
kvöld á viku.
47. Reyndu að sýnast dálítið kost-
bær, þegar hann býður þér út.
48. Kynntu þér hvaða stúlkum hann
hefur gefizt upp á. Láttu þig
ekki henda sömu skyssurnar.
49. Ekki taia um gömlu kærastana
þína.
50. Ekki reyna að siða hann — það
er að segja fyrr en þið ei'uö gift'.
51. Láttu fara vel um hann, þegar
hann kemur í heimsókn.
52. Lærðu að spila bi'idge.
53. Ekki segja vafasamar skrítlur.
54. Vektu athygli hans á þeirri stað-
reynd, að dánartala piparsvema
er helmingi hærri en giftra.
31. Franskar konur kunna að seiða
með augunum. Æfðu þig fyrir
framan spegil.
32. Gættu þess að saumarnir á sokk-
unum þínum séu á sínum stað.
33. Mundu að hreinlæti er dásamleg
dyggð.
34. Notaðu öskubakkann; di'eptu
ekki í sígaiettunni i undirskál-
inni!
35. Vei’tu ekki of áköf — flaðraðu
ekki upp um hann.
36. Ástundaðu siðgæði.
37. Ekki kvarta og kveina — karl-
menn forðast konur sem veina.
Hvernig maður
klófestir hann.
38. Láttu foreldra þína ekki urn-
gangast hann eins og „öruggan
tengdason".
Veiztu — ?
1. Hvað hét afi Nóa gamla?
2. Hvað voru mörg ár á milli 1. jan. ár-
ið 10 f.Kr. og 1. janúar árið 10 e.Kr. ?
3. Hvaða stúdent á titilinn stúd.perpet. ?
4. Hvaða mál er talað í smáríkinu An-
dorra?
5. Hvar á landinu er Skinnalón?
6. Hvaða tvö ríki innan samveldislanda
Bretaveldis urðu sjálfstæð ríki á sið-
asta ári?
7. Kvikmyndaleikarinn Spencer Tracy
vann óskarsverðlaunin tvö ár í röð.
Fyrir hvaða myndir fékk haim þau?
8. September þýðir sjöundi mánuðurinn,
en þó er september níundi mánuður
ársins. Hvernig stendur á því?
9. Hvað kostar undir flugpóstbréf (1—
20 gr.) til eftirtalinna landa: Dan-
merkur, Bretlands, Rússlands, Banda-
rikjanna?
10. Gáta: Hvert er það tjald,
sem turnum er hærra,
viðára ummáis
en veldi jarðhnattar.
Taugar þess ná
í metal og málma
og; gegnum vefjast
öll elimenta.
S V □ R I N
'SnjOT; 'ox — BuuBCxnJnpuBa 1!1 SS'f
J ddn gf'z ?JJ So spuBjsBnH jjj qz's 'spuBj
-FJa i!i Sf'K ‘.injjjouiuBa iíi gg'z 'jx '6 —
'nujjB jj uujjnönuBtu jpunpfs .taqiunjdas
flJBA pqj 'jBnupui njj i idjxjs jba nuj.ilí
3o zjbui I JöBfjAq jbjbSbp bjjsj3AU'9.i bSoi
-Bunjddn öjh '8 — '(joij puAs öjjoa jjsoxj
bisuujui gB jnjoq uaxoj, s.Coa) 'uaxoj, s.Coa
So snooSBjnoo sutBjdBO 'L — bAbjbm
So (njjjjjy i ujpuojisjjnD .inQB) bubijd '9
— 'niipiSBJjijBJioM v '9 — 'jbui Bjoqujdo
öiq jjjjjo os jjBtj oq 'njjsucjjj bjbj jjujb
-pqj Jiuins uo ‘(BjjsuBds jjjjjo) bjjsupjbibh
> --- 'UUIlUOpniSJBejJIja '£ -- 'JJl IJJXJO .IBA
o QIJB JAq 'JB 61 'Z — 'lUOJBSnpOJAI 'I
Örþrifaráð — öllum
vopnum beitt
55. Fáðu þér byssuleyfi.
56. Sé móðii' þin feit, þá segðu ho»-
um að þú líkist föður þlnum. Hf
hann er líka feitur, þá segðu
bara að þú sért tökubarn!
57. Farðu á togara.
58. Settu auglýsingu i blöðin með
mynd þinni og símanúmeri.
58. Málaðu nafn og símanúmer á
þakið og bættu við: „Flugmen*
velkomnir.“
59. Komdu af stað flugufregnun*
um hve umsetin þú sért.
60. Láttu mömmu þína taka leigj-
endur — karlmenn auðvitað.
61. Fáðu þér vinnu í búð sem sel-
ur hárkollur. Það er tiltöluleg*
auðvelt að klófesta sköllótta
menn.
62. Fai'ðu niður að höfn á mesta
annatímanum — og dettu í sjó-
inn.
63. Settu upp bílaverkstæöi — við-
skiptavinirnir verða flestir karl-
menn.
64. Stattu upp fýrir karlmönnum i
strætisvagninum.
65. Gerðu óskunda - - og haltu áf ram
að gera óskunda — þar til yfir-
völdin neyðast til að senda þig
þangað þar sem þú getur verið
ein um hituna — nefnilega á
Litla Hraun.
VIKAN
3