Vikan - 13.03.1958, Side 13
,,Auminginn,“ sagði Joe. Hann stðð við hliðina
á mér, hálfklœddur. „Er þessi bölvuð greifynja
þín brjáluð?"
„Ég held að hún sé dauð,“ sagði ég. „Klæddu
þig í. Ég ætla að fara og sjá, hvort við getum
nokkuð gert.“
Hluti af þakinu féll saman, þegar ég hélt út að
togbrautinni. Neistar og gufustrókar þyrluðust
upp í næturhimininn, síðan bar vindurinn gufuna
burt. Carla lá á kafi í snjó, nálægt pallinum. Hún
hreyfðist ekki. Rauð treyja hennar ljómaði. Ég
sneri henni við. Augu hennar störðu út í nóttina.
Andlit hennar var þakið snjó, og það var blóð-
blettur í snjónum, þar sem hún hafði legið. Kúla
hafði rifið öxlina á henni. Tvær kúlur höfðu lent
í brjósti hennar. Blettirnir voru dekkri en treyj-
an. Hún var dauð.
Ég fór yfir pallinn, þangað sem Mayne lá. Hann
lá beint undir þeim stað, þar sem eldurinn var
hvað mestur. Stórar eldtungur læstu sig um tré-
verkið. Eldtungurnar voru eins og laufin á ein-
hverju fjarrænu blómi, sem skulfu af lostafullum
ákafa. Ég sá strax, að það var ekkert hægt að
gera fyrir Mayne. Lik hans var eins og sviðið
hrúgald i bráðnum snjónum. Hann lá í ákaflega
afkáralegri stellingu. Og þar sem fötin voru
brunnin af honum, gat að líta brunnið hold, sund-
urtætt af höglum. Þetta var óhugnanlegur dauð-
dagi.
Joe kom til min. ,,Dauður?“ spurði hann.
Ég kinnkaði kolli. „Við getum ekkert gert.
Farðu og náðu í myndavélarnar þínar. Ég skal
hjálpa þér.“
Joe hreyfði sig ekki. Hann starði á logandi
skálann. Síðan kvað við hár brestur. Loftið á
herbergi Mayne féll saman. Við stauluðumst
gegnum snjóinn á síðustu stundu. Logarnir læstu
sig um rústina með miklum ofsa. Neistar flugu út
í nóttina. Nokkrir sviðnir bjálkar féllu á lík
Maynes. Þeir stóðu stundarkorn upp á endann,
en féllu síðan upp að húsveggnum, það logaði í
þeim, en það sem hafði fallið í snjóinn ólgaði og
sauð. Það var byrjað að loga í trégólfinu. „Flýt-
um okkur, Joe,“ sagði ég.
En hann sagði aðeins: ,Guð minn góður. Þvílík
kvikmynd."
„Hvað með Aldo og konuna hans og önnu?“
sagði ég og hristi handlegginn á honum.
„Ha? Nú, þau búa niðri. Þau skila sér.“
Við sáum þau bak við skálann, þar sem þau
voru að draga hafurtask sitt út í snjóinn. Kon-
urnar tvær voru að minnsta kosti að því. Aldo
reikaði um, neri saman höndunum og muldraði:
„Mamma mia. Mamma mia.“ Ég geri ráð fyrir
að hann hafi ekki haft hreina samvizku, þar sem
hann hafði hjálpað Cörlu að flýja.
Víð náðum i áhöld Joes og settum þau í snjó-
inn. Það var þá, sem ég mundi allt í einu eftir
skíðunum. Án þeirra væri ég margar klukku-
stundir níður til Tre Croci. Ég staulaðist fram
fyrir skálann. Mér féll allur ketill í eld, þegar
ég sá framhliðina. Hún var öll logandi, helming-
urinn af þakinu var farinn og efri hæðin var ekki
orðin annað en logandi bjálkar, sem bentu
Iogandi fingrum sínum til mánans. Hurðin að
vélarúminu var opin, eins og Engles og Kera-
mikos höfðu skilið við hana. Hún var þegar svið-
in af hitanum. Gólfið fyrir ofan steinskúrinn var
alelda og stoðimar loguðu. Allur skálinn hlaut
þá og þegar að falla.
Ég velti mér upp úr snjónum, þangað til föt
mín voru orðin rennvot. Síðan fór ég inn um log-
andi dyrnar, með blautan vasaklút fyrir vitum
mtnum. Inni var eitt logandi helvíti. Herbergið
var fullt af reyk. Ég sá ekki glætu. Ég hrasaði
um hakann sem Engles hafði notað til þess að
brjóta upp hurðina og þreifaði mig áfram að
hominu, þar sem skiðin áttu að vera. Nokkur
skíði duttu á gólfið, þegar ég kom við þau. En
hávaðinn í þeim heyrðist varla fyrir brestunum
í viðnum fyrir ofan mig. Ég fann nokkur skíði
bundin saman. Ég tók þau upp á öxlina, og staul-
sðist út um logandi dyragættina og út i kaldan
bráðinn snjóinn.
Ég stakk slcíðunum í skafl með oddana upp og
Framhald á bls. 14
INNAN um allan yndislega plöntu-
gróðurinn, sem vex um víða ver-
öld, leynast morðplöntumar, sem ekki
aðeins eta skordýr heldur líka önnur
dýr og jafnvel menn.
Þó plantan, sem þekkt er undir nafn-
inu „Flugugildra Venusar“ sé lítil, er
hún auk þess sem hún er flugnaveiðari
ein af dásemdum náttúrunnar. Til að
seðja græðgi sína í lifandi skordýr, en
án þeirra getur plantan ekki haldið lífi,
er hún frá náttúrunnar hendi útbúin
frábærlega vel gerðri gildru, sem
samanstendur af blöðum á stilkum, og
þau mynda nokkurs konar fallegt rósa-
skraut.
Inni í gildrunni er blað á ákaflega
sterkum hjörum. Um leið og komið er
við hárin, hversu laust sem þau eru
snert, fer gildran umsvifalaust í gang.
Hjarimar skella blöðunum saman og
fíngerðar tennur, sem liggja þétt á
brúnum þeirra, læsast saman.
Áður en hið grunlausa skordýi’ hef-
ur nokkur tök á að forða sér, er það
fangað. Fyrir áhrif hára á efra borði
blaðanna, fara kyrtlar nú að gefa frá
sér vökva, og gildran opnast ekki fyrr
en skordýrið er fullmelt.
Aðrar plöntur sem veiða skordýr eru
nepenthes eða ,,krukkuplantan“, sem
vex á eyjunum í kringum Malakka-
skaga, og sarracenia, sem finnst í
mómýrum í norðurhluta Kanada og
sumstaðar nálægt hitabeltislöndum
Ameríku. Þessar morðplöntur em ákaf-
lega ,,vitrar“. Þær lokast kannski ef
þær em snertar með priki, en um leið
og plantan finnur að hún hefur fengið
einhvem óætan hlut, opnast hún aftur
og spennir gildruna að nýju.
I Bretlandi eru tvær plöntur, sem eta
lifandi skordýr. Þær hafa þó miklu ein-
faldari útbúnað en systur þeirra hand-
an hafsins. Rauðleitu blöðin á Sundew-
plöntunni em þakin fálmöngum, eins
og angarlítil kolkrabbi. Þessir fálm-
angar eða fálmhár eru límkennd, svo
að flugan situr föst um leið og hún
hefur sezt á blaðið. Meðan hún berst
um til að losa sig, rúllast blaðið utan
um fluguna og hylur hana alveg. Siðan
gefur plantan sér góðan tíma til að
njóta þessa yndæla bita sem hún hefur
náð sér í. Hin plantart starfar á p\jög
svipaðan hátt.
Þessar skordýraætur em þó aðeins
lítið brot af morðingjunum í plöntu-
heiminum. Á vatnsbökkum í Suður-
Ameríku vex hræðilegur „kolkrabbi".
Plantan lítur svosem út fyi'ir að vera
nægilega meinlaus þangað til menn eða
dýr koma nálægt henni. Þá rúllast út
langir angar, sem vefjast utanum fóm-
arlambið og það kyrkist smám saman.
I Ástralíu leynist óhugnanlegur morð-
ingi í líki trés. Tréð er ákaflega fallegt
á að líta og freistandi, þar sem það
stendur með geysistóru, skuggsælu blöð-
in, sem slúta sakleysislega eins og regn-
hlífahjálmur. En um leið og maður
gengur undir hann, lokast þykk, mjúk,
hljóðdrepandi blöð utan um mann . . .
Einu sinni óx í Kew Gartens, skammt
frá London, einhver sú hættulegasta
planta sem grasafræðingar þekkja,
Jatrophaurens. Þessi planta getur
stungið og dælt inn í sárið illkynjuðu
eitri. Margir gestir sem heimsóttu garð-
inn og snertu plöntuna í fáfræði sinni,
urðu veikir, og það varð ekki uppvíst
um orsök sjúkdómsins fyrr en eftir
mikla rannsókn. En undir eins og það
komst upp að plantan vár þessi teyni-
legi eiturbyrlari, var hún umsvifalaust
eyðilögð.
— L. E. ROTBERA
l'EISINAVIIMIK
Þorbergur Ormsson (við stúlkur 15—18 ára),
Klett, Geiradal, A-Barð. — Ómar Guðmundsson
(við stúlkur 20—25 ára), Gylfi Magnússon og
Ásbjörn Gunnarsson (við stúlkur 17—20 ára),
Hannes Bogason (við stúlkui' 18—20 ára) og
Gunnar Sigurðsson (við stúlkur 16—20 ára),
allir á M.B. Guðmundi Þórðarsyni, GK. 75, Kefla-
vík. — Margrét Ásmundsdóttir og Gréta Guð-
mundsdóttir (við pilta 19—25 ára), báðar á Hús-
mæðraskólanum á Varmalandi, Borgarfirði. —
Hallfríður I. Ragnarsdóttir, Guðrún Flosadóttir,
Edda Jóhannsdóttir (við pilta eða stúlkur 18—21
árs), Laugum, Reykjadal, S-Þing. — Kristján
Björnsen, Kristján Þórarinsson (við stúlkur 16
—17 ára), báðir á Núpsskóla í Dýrafirði. -—
Hanna Hannesdóttir (við pilta eða stúlkur 17—
21 árs), Bjarndís Indriðadóttir og Elin Jónsdótt-
ir (við pilta og stúlkur 17—20 ára), allar á
Reykjanesskóla, N-ls. — Jórun Hansen (við pilt
15—16 ára), Kósini, Klakksvík, Foroyar. -— Guð-
rún Erna Jónsdóttir (við pilta eða stúlkur 15—
17 ára), Þóroddsstöðum, ölfusi, Arn. — Ásta
Jóhannsdóttir og Guðriður Ingibergsdóttir (við
pilta 19—23 ára), báðar á Húsmæðraskólanum á
Varmalandi, Borg. — Toni Kærnested, Gtinter
Johnson, Pétur Bjarnason, Tjlfur Teitsson, Páll
Þorsteinsson, Eyjólfur Þorkelsson og Árni Gísla-
son (við stúlkur 15—19 ára), allir í Reykholts-
skóla, Borg. — Ármann Magnússon, Magnús
Ólafsson, Einar Bragi og Örn Magnússon (við
stúlkui' 17-—20 ára), allir á Bændaskólanum á
Hvanneyri. — Agnes Svavarsdóttir, Kaupvangs-
stræti 23 og Guðrún H. Gunnarsdóttir, Hafnar-
stræti 86 og Ásdís E. Axelsdóttir, Ægisgötu 15
(við pilta 17—20 ára), allar á Akureyri. — Ingi-
björg B. Jónsdóttir (við pilta eða stúlkur 15—18
ára), María Guðröðsdóttir (við pilta 15—17 ára)
og Ósk Elín Jóhannsdóttir (við pilta 17—19 ára),
allar á Héraðsskólanum á Reykjanesi, N-ls. —
Guðbjörg Helgadóttir (við pilt eða stúlku 17—19
ára), Guðbjörg Guðmundsdóttir (við pilta 16—
18 ára) Jónlna Högnadóttir (við pilta 15—17
ára) og .Tóhanna Jóakimsdóttir (við pilta 15—
18 ára), allar á Héraðsskólanum á Reykjanesi,
N-Is. — Margeir Gunnarsson (við konur 38—40
ára), Þvergötu 3, Isafirði. — Aldís Björgvins-
Framháld d bls. Uf.
Þýzk stúlka, sem nú nemur baraahjúkrun
í London, óskar eftir islenzkum pennavinum.
Hún hefur í hyggju að eyða smnarfrii sínu á
Islandi og vill gjarnan eignast hér kunningja
áður en hún kemur. Hún er frá Stuttgart.
Núverandl heimilisfang hennat er:
Miss Charlotte Raff,
The Belgrave Hospital for Children,
1 Clapham Road, London SW 9.
VIKAN
13