Vikan - 24.07.1958, Qupperneq 9
FAGREEt MUNIR
ÚR GULLI
OG SILFRI
Sendam gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVERZLUN
Laugavegi 22 A. — Simi 15272.
VHÐ8KIPTI
Framhald úr síðasta blaði
Valur- Vandar- Vöruna
SULTUR — ÁVAXTAHLAUP
MARMELAÐI — SAFTER
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSÝRA — BORÐEDIK
TÓMATSÓSA — ÍSSÓSUR
— Sendum uin allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1313. — Síml 19795 — Reykjavík.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHREINSUN'1
BJ®RG
SDLVALLAGOTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ G SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
lendum gegn póstkröfu um land aUt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa I
Söluturninum við Arnarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21 A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Olíukassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
Þá eru líka til aðrir, sem
hafa svoleiðis hraðan á, að
maður verður að vera í loft-
köstum, hornanna á milli
til að hafa við.
Sumir þeirra eru svo mál-
gefnir að þeir ætla ekki að
geta hætt að tala. — Það
er svo sem allt í lagi, ef
fátt er í búðinni, en versn-
ar nú heldur í því þegar
yfirfullt er af fólki, sem
bíður afgreiðslu.
En hvernig með heiðar-
leikann? Það kemur fyrir
að við þurfum að skrifa
hjá viðskiptavininum og í
flestum tilfellum kemur
hann og borgar. Suma sér
maður aldrei meira.
Allir góðir viðskiptavinir
okkar, og það eru þeir flest-
ir, eru ekki með óþarfa
nöldur út af verðlagi eða
gæðum vörunnar, nema
þeir hafi ástæðu til og fyrir
okkur er það ánægja að
geta alltaf látið þá fá það
bezta.
Helst vildi ég að konur
væri í meiri hluta, sem við-
skiptavinir. Þær taka eftir
verðlaginu og gæðunum og
breyta samkvæmt því í inn-
kaupum sínum. Það er ekki
svoleiðis að karlmennimir
séu með neitt röfl. Þeir
hafa bara ekki vit á hvað
þeir eru að kaupa. Það er
ekki fyrr en þeir eru komn-
ir heim, sem þeir setja allt
á annan endann og skamma
konurnar fyrir dýrtíðina.
Ungu húsmæðurnar eru
sparsamastar í innkaupum
sínum og yfirleitt fljótar að
ákveða sig.
Leiðinlegastar eru þær,
sem koma alltaf rétt fyrir
lokunartíma þó þær hafi
ekkert að gera allan dag-
inn, en ganga um heima
hjá sér. Og svo þær, sem
koma sex til sjö sinnum á
laugardögum, þegar mest
er að gera.
Kjólakaupmaðurinn: Leið-
inlegustu viðskiptavinirnir ?
Það eru þær konur, sem
koma eingöngu til að fá
hugmyndir, hvernig þær
eigi að hafa næsta kjól í
sniði. Ein frúin t. d., hélt
afgreiðslustúlkunni alveg
fyrir sig í hálfa aðra
klukkustund og fékk að
máta kvöldkjóla. Að lokum
yar einn, sem klæddi hana
með afbrygðum vel. Það
fannst afgreiðslustúikunni
líka. —
Frúin snaraðist úr kjóln-
um og sagðist ætla niður
í búðina og kaupa sér efni
og hvað hún væri fegin að
hafa verið svona heppin
með snið. Og þetta er ekk-
ert eins dæmi.
Ekki þar fyrir. Margir
okkar góðu viðskiptavinir
koma oft og athuga það
nýjasta, án þess að kaupa
nokkuð. En við vitum að
þeir koma aftur ,þegar þeir
hafa peningana til.
Og það gleður okkur að
sjá, að fólkið hefur áhuga
fyrir fötum.
Þær konur, sem hafa við
erfiðleika að stríða, hvað
vaxtarlag snertir, eru oft
skemmtilegustu viðskipta-
vinirnir. Þær sýna svo ein-
læglega gleði sína og þakk-
látsemi, þegar þær fá eitt-
hvað, sem klæðir þær.
Þær bestu? Það eru þær,
sem sýna bros sitt og skiln-
ing. Fyrir þær er engin
fyrirhöfn of mikil.
Hárgreiðsludaman: Á hár-
greiðslustofuna hélt ég að
kæmu bara geðgóðar og
glaðar konur. En það er nú
ekki alltaf, segir hún. Þær
koma líka sem eru geð-
stirðar og hafa fyrir ávana
að berja sér.
Sumar hafa alltaf eitt
og annað til að setja út á
unnin verk, en samt koma
þær nú alltaf aftur.
Ég er með árunum farin
að hafa meðaumkvun með
þeim, því ég geri ráð fyrir
að þær séu bara svona alls-
staðar og geti ekki að því
gert.
Leikarar: Fyrir þá er það
kannske ennþá meira virði,
að ná sambandi við fólkið,
en fyrir kaupmanninn. Þó
það virðist, sem allir séu
steyptir í • sætin, á áhorf-
endasvæðinu, er ekki þar
með sagt, að leiksýningin
hafi mistekist.
Það er svo misjafnt, eftir
því hvar í heiminum stykk-
ið er sýnt.
Sumsstaðar er það ekki
siður að láta tilfinningar
sínar í ljós. — Þegar mað-
ur ekki þekkir til, getur
manni brugðið. En eftir
sýninguna kemst maður að
því, að allir hafa skemmt
SHO
G. K.
sér prýðilega. Og við hlökk-
um til að koma aftur.
Stundum þegar um er að
ræða stykki, alvarlegs efn-
is, kemur fyrir að maður
heyri kurr í unga fólkinu,
— en nái maður þvi, að fá
það til að hlusta, er áhugi
þeirra vakinn og þau lifa
sig inn í það, sem fram fer.
Hjá lœkninum:
Þá geðstirðu, einnig þá
sem haldnir eru eilífum
barlómi, þekkja læknarnir
vel. Svo eru það líka aðrir
sjúklingar. Það eru þeir,
sem eru vingjarnlegir og
kurteisir í framkomu. Og
svo þeir, sem haldnir eru
lífskrafti og þeir, sem eru
mótstöðulitlir.
Sjúklingurinn verður að
hafa það hugfast, að tala
hreinskilnislega við lækni
sinn. Hann er ekki ókunn-
ugur embættismaður heldur
vinur hans, sem gerir allt
til að hjálpa.
Danskur kvenlæknir seg-
ir: Þegar sjúklingur situr
andspænis lækni sínum, þá
er hugsun læknisins, að
þarna sé einmitt manneskj-
an, sem hann vilji allt gera
fyrir og hjálpa.
Hvað samtalið tekui'
langan tíma hefur ekkert
að segja. En með því kem-
ur allt ósjálfrátt fram, sem
læknirinn þarf að vita og
eftir verður skýr mynd af
sjúklingnum. Hæfileikinn
kemur með árunum að geta
hlustað svo sjúklingurinn
finni að maður er honum
heill og vill skilja hann og
hjálpa. Þvi er það, sem
sjúklingurinn má aldrei
verða bara númer á spjald-
skrá.
Við vitum að það liggja
ástæður til alls. — Og þá
ekki síður fyrir óánægju
eða barlómi.
Hver er svo munurinn á
kvenmönnum og karlmönn-
um, sem sjúklingum ?
Jú. Karlmenn virðast í
fljótu bragði ímyndunar-
veikari en kvenfólkið. —
En það ei' ekkert nema gott
um það að segja. Þeirra
sjúkdómur er þvi oft á
byrjunarstigi.
Kvenfólkið þolir og sætt-
ir sig frekar við þjáningar
en karlmenn en af því leiðir
að þær leita læknishjálpar
stundum of seint.
En ekki þar fyrir, það
eru ekki síður til menn, en
konur sem bera sig með
sérstökum kjarki og dugn-
aði í meiriháttar veikind-
um.
Læknirinn segir mikinn
mun á undanförnum árum
hvað allt hreinlæti snertir
hjá fólki. Það hugsar um
að þrífa sig og föt sín. —
Eins hefur það meiri áhuga
fyrir hollustu í mataræði.
En fólk er ekki eins sjálf-
stætt og áður fyr. Það er
sent eftir lækni, bara
vegna smávegis hita, eða
það hefur fengið kvef í nös.
— Það var ekki eins al-
gengt áður fyr.
Er fólkið með geðillsku,
ef það þarf að bíða of lengi
á biðstofunni? — Sumir eru
það sjálfsagt. — En við
gefum hverjum og einum
Það er ekki óalgengt, að
bæði börn og fullorðnir,
verði einhverntíma á æfinni
fyrir því, að drekka eða
borða eitthvað, sem veldur
eitrun í líkamanum og jafn-
vel dauða ef ekkert er að-
hafst í tæka tíð. — Slíkt,
er oft bein afleiðing hugs-
unarleysisins og kæruleys-
is.
Hér eru nokkur dæmi:
Terpentina er ekki óal-
geng í notkun á heimilum
og finnst oft á ótrúlegustu
stöðum í húsinu. — Henni
er ekki sjaldan hellt á gos-
drykkja- eða saftflöskur, án
þess að skipta um miða.
Börn smakka, borða og
drekka það sem er í slíkum
flöskum eða öðrum pökk-
um, sem þau kannast við,
sem eitthvað hefur að
geyma og er ætilegt. — Það
var líka lítið barn, sem
drakk rottueitur, sem
geymt var í bolla. Annað
fann rauðlituð korn og hélt
þau vera einhverja nýja
tegund af brjóstsykri. En
þau voru til að útrýma
smámúsum. —- Lítið barn
tók skeið og sleikti. En hún
hafði verið notuð til að
blanda eitruðum blóma-
áburði.
Tetraklor er ágætt til
hreinsunar og ekki óal-
gegnt á heimilum. Það er
scrlega eitrað og ætti ekki
að nota nema utandyra, eða
þar sem sérlega góð loft-
ræsting er.
Það nær engri átt að
geyma eitur i eldhússkáp-
góðan tíma, svo hann hafi
ekki á tilfinningunni að
hann verði að flýta sér allt
hvað af tekur, sem getur
svo leitt til þess að hann
gleymi meiru eða minna af
því, sem hann ætlaði að
segja.
Já þannig er það þá, sem
við tökum okkur út i aug-
um annara. — Okkur
finnst allir erfiðleikarnir í
viðskiptum vera hjá okkur.
-— Við ætlumst til skilnings
illra og allsstaðar. En skyld-
um við sjálf alltaf sýna nær-
gætni og skilning í viðskipt-
um okkar við aðra?
Við skulum reyna að
minnast þess, að þeir eru
menn eins og við.
unum. Börn hafa ánægju af
að klifra upp á stóla og
borð og ná í það, sem er að
finna og smakka.
Þegar um eitranir er að
ræða, verður að ná í lækni
strax. Aðeins læknirinn
getur vitað hvað þarf að
gera í hverju tilfelli. — Ef
sjúklingurinn þarf að fara
á sjúlcrahús til aðgerðar þá
munið að taka ílátið með
eitrinu með. Þá veit lækn-
irinn samstundis hvað á að
gera. Eitranii' eru margs-
konar og þurfa því mis-
jafna meðhöndlun.
En meðan beðið er eftir
hjálp, er hægt að reyna að
fá sjúklinginn til að kasta
upp, með því að setja
fingurna niður í kok. Eins
má revna að gefa sjúkl-
ingnum mjólk.
1 apotekum er hægt að fá
,,kol,“ sem er duft, ágætt
að eiga í meðalaskápnum
og gott við margskonar
eitrunum.
An áhættu er óhætt að
gefa af því 10 gr. sem
hrærð eru út i vatni.
Jafnvel þó sjúklingurinn
nái bæði að kasta upp og fá
þessa blöndu, er það ekki
nóg. Það getur eitthvað
verið eftir og því má ekki
sleppa þvi að ná í lækninn.
Munið því, að hafa öll
meðul og eiturlyf í sínum
réttu umbúðum og lokuð
kirfilega inn í slcáp þar,
sem hver og einn getur
ekki haft aðgang að þeim.
Með því er auðvelt að fyrir-
tygg’ja þvílík slys.
EITRANIR
%
srjön\rsn\
VATNSBERINN:
(20. janúar—18. febr.)
Ef þér hafið það á tilfinning-
unni, að þér hafið staðið vel í
stöðu yðar, Þá getið þér farið
fram á kauphækkun, eða kraf-
ist þess að verða hækkaðir í
stöðunni.
Ef þér fáið löngun til að gera
einhvem að trúnaðarvini á
næstunni, þá varið yður á vin-
konu yðar, sem hefur svart hár,
þar sem þér hafið rekist á, að
hún er ekki áreiðanleg.
Manneskja, sem hefur ekki
lifað sólarmegin í lífinu mun
leita til yðar um hjálp. Neitið
henni ekki um hana. — 1 þess
stað munið þér eignast góðan
vin allt yðar líf.
FISKARNIR:
(19. febr.—20. marz)
Verið viðbúin, að á næstunni
verði einhverjar breytingar í
daglega lífinu. Kannske verða
þær eitthvað í sambandi við ó-
vænt ferðalag, eða enihverjar-
breytingar innan fjölskyldunn-
ar. — Kannske fáði þér mót-
vindi í yðar aðal áhugamál. —
En þér skulið samt láta til
skara skríða og framkvæma
hlutina eins og ákveðið var.
Föstudagur verður sérstakur
gleðidagur.
HRÚTSMERKIÐ:
(21. marx— 20. apr.)
Gerið yður engar grillur út
af smámunum, því þér þurfið á
allri yðar orku að halda, ef þér
ætlað að klára verkefnið, sem
þér hafið tekið að yður og mun
færa yður mikla gleði.
Misskilningur milli yðar og
góðs vinar, sem varð í fyrri
mánuði, getur auðveldlega lag-
ast, ef þér sýnið vilja yðar til,
að svo verði. — Varið yður í
peningamálunum og gætið
sparnaðar.
NAUTIÐ:
(21. apr.—20. maí)
Yður finnst, sem þér séuð í
sjálfheldu og sjáið enga leið til
að losna þaðan. — Hugsið með
ró um Það. Yður opnast leið úr
ógöngunum, á sérkennilegan og
einkennilegan hátt, sem yður
hafði síst órað fyrir, innan
skamms. — Einhver mann-
eskja reynir að fá yður út í rifr-
ildi við sig, en þar, sem þér vit-
ið fyrirfram, að lífsskoðanir
ykkar eru gjörólíkar og að þið
komist aldrei að niðurstöðu, þá
frá 20. júlí—21. ágúst
sleppið öllum viðkvæmum mál-
um í samræðum við hana.
TVlBURARNIR:
(21. maj—20. júní)
I ölum bænum látð tiilfinn-
ingarnar ekki endalaust hlaupa
með yður í gönur. — Reynið
heldur að leyna þeim betur, en
þér gerið, að öðrum kosti verðið
þér fyrir miklum vonbrigðum.
— Einhver reynir að standa í
vegi fyrir framtíðaráformum
yðar, en það þýðir ekkert að
ætla sér að bera hann burtu
með hamagangi, því þá verður
enginn hlutur sem fellur yður í
skaut. — Notið heldur kurteis-
lega framkomu ásamt skapstill-
ingu.
KRABBINN:
(21. júní—20. júlí)
Þér eruð með öll hæstu spilin
á hendnnii og spilið þér rétt þá
náið þér settu marki, löngu fyr,
en þér höfðuð reiknað með.
Finnst yður einhver vera yður
til trafala, þá afgreiðið hann
með virðulegri og heiðarlegri
framkomu. — Munið það, því
annars mun yður iðra Þess allt
Ifið.
Það er sendibréf, sem þér
fenguð fyrir löngu síðan. — Nú
skulið þér láta verða yðar
fyrsta verk, að svara því.
LJÓNIÐ:
(21. júlí—21. ágúst)
Mánuðurinn úir og grúir af
ástarævintýrum hjá þeim ungu
og ógiftu. — En það er ekki þar
með sagt að þau leiði til hjóna-
bands. — Takið þau því ekki of
hátíðlega. — Þér fáið góðar
fréttir í byrjun næstu viku. —
Takið atvinnu yðar ekki, sem
aukavinnu. — Aðeins með
dugnaði og útheldni náið þér
áfram í lífinu.
MEY J ARMERKIÐ:
(22. ágúst—22. sept.)
Já, því miður. Það fer ekki
hjá því, að margt gengur á
afturfótunum næstu viku, fyrir
yður. — T. d. verðið þér, en þó
alveg óvart, fyrir því, að koma
vinkonu yðar i svo vont skap,
að það virðsti ekki séð fyrir
endann á því, hvenær hún losn-
ar úr því aftur. — Við þetta
bætast smávegis örðugleikar
öðru hvoru, svo þér þurfið sann-
arlega á skapstillingu yðar að
halda. — Er henni fyrir að
þakka, birtir líka upp svo um
munar eftir vikulokin og end-
ist lengi.
VOGASKÁLIN:
(23: sept.—22. okt.)
Munið: Það er í dag, sem þér
lfið en ekki í fortíðinni. Hættið
því þessum eilífu samlíkingum
milli nútíðar og fortíðar, því
enginn borðar brauðið í dag,
sem hann átti fyrir tíu árum.
Ljúkði því nú við eitthvað af
því, sem þér ætluðuð fyrir löngu
að vera búin að gera. — Og sjá-
ið til. Skapið tekur stórum
breytingum til hins betra og
dugnaðurinn eykst um helming.
— Fáið yður svo nýjan hatt,
þér hafið góð efni á því í næstu
viku.
-
SPORÐDREKINN:
(23. okt.—22 nóv.)
Þér látið aðra nota krafta
yðar um of. — Hvílið yður á
því um stundarsakir, og snúið
yður að yðar eigin málum. —
Ef þér eigið heimili, þá helgið
því kröftum yðar og þér munið
hljóta mikla gleði af Því. —
Vandið framkomu yðar, því þó
yður finnist það vera vitleysa,
þá samt, ef þér gerið það ekki,
getið þér auðveldlega komist
mlili tannanna á slúðurberum.
Eldri frænka yðar bíður með
óþreyju, að þér skilið henni
því, sem þér fenguð lánað fyrir
nokkru.
BOGAMAÐURINN:
(23. nóv.—20. des.)
Það hendir yður mikið happ
í peningamálum, næstu viku.
Notið þá á skynsamlegan hátt.
— Atvinnuhorfur eru í blóma.
— Þar virðist, að fyrir atbeini
einhvers góðs vinar, fáið þér
stöðu, sem þér hafið lengi ósk-
a.ð eftir. 1 ástamálum, er yður
bezt að koma til dyranna eins
og þér eruð klæddir. — Spilið
úr spilunum og munið að fylgja
réttum lit.
STEINGEITIN:
(21. des.—19. jan.)
Hvílið yður í nokkum tíma
frá skemmtanalífinu. — Þér
þurfið þess með. — Verið ekki
með_ afskipti af málum annara.
— I vikunni gæti skeð að Þér
yrðuð fyrir einhverjum leiðind-
um. — En þeir, sem sjá skop-
legu hliðarnar á tilverunni,
sleppa. — Happadagur yðar
verður 20. júlí.
8
VIKAV
VIKAN
9