Vikan - 04.09.1958, Blaðsíða 6
fyrstu flugvél, en þetta gekk
allt vel. Eftirá gleymist allt
þetta kalda, blauta og hráslaga-
lega og maður gæti þess vegna
hugsað sér að fara aftur að
sumri.
Og talið berst að skemmtana-
lífinu.
Líklega er Raufarhöfn, segir
Róbert, ekki heppilegasti stað-
urinn til að halda kúltíveraðar
skemmtanir, að minnsta kosti
ekki yfir síldartímann. í land-
legum er tilgangslaust að halda
annað en böll. Ugglaust er inn-
anum margt fólk sem bjóðandi
væri uppá annað, en þess gætir
ekki. Það má vel skemmta fyrir
staðarbúa, ég lék þama fyrir
nokkrum árum en um síldar-
tímann er tilgangslaust að troða
upp með skemmtiatriði. Að ein-
hverju leyti er þetta húsnæð-
inu að kenna. Það er eins og
því sé tjaldað til einnar næt-
ur og ekkert fyrir það gert.
Enda koma hvorki Þjóðleikhús-
ið né aðrir leikflokkar til Rauf-
arhafnar og það er fyrst og
fremst vegna þess hvað þröngt
er um vik í samkomuhúsinu.
Úr því komið er inn á leik-
list spyr ég hvað sé framund-
an.
Tiibreyting frá daglegu starfi
Viðtal við Róbert Arnfinnsson.
TTVERS vegna lagðir þú leið
þína á síldina?
Það er tilbreyting frá dag-
legu starfi, ég vildi gera eitt-
hvað óskylt. Og hvað er óskyld-
ara? Það er ágætt stundum að
Róbert — í saltinu.
gleyma allri leiklist og leikhúsi
um tíma. Undanfarið hafa leik-
árin náð saman hjá mér, ýmist
hef ég verið í sumarleikhúsinu,
leikhúsi Heimdallar eða með
einhverjum leikflokknum. Uti-
vera og líkamleg vinna eru holl
fyrir mann, sem er lokaður inni
tíu mánuði ársins.
En því þá frekar síldin?
Aðdragandinn að þessu var
sá, að í sumar var ég með Þjóð-
leikhúsinu að leika „Horft af
brúnni“ á Siglufirði um það
leyti sem fyrsta síldin kom.
Það var gaman að sjá allt þetta
fólk við vinnu og líf og fjör í
öllu. Ég orðaði það við konu
mína, að gaman væri að skella
sér í síld. Þegar heim kom hitti
ég svo tvo kunningja, sem voru
á leið til Raufarhafnar í síld
og áhuginn vaknaði aftur og
við létum verða af þessu. Kon-
an og elzta dóttirin voru líka
með. Þær hafa haft af þessu
ánægju, gagn og dálitla pen-
inga.
Þú hefur semsagt fundið
þarna á Siglufirði þetta marg-
annálaða andrúmsloft síldarinn-
ar og alla þess rómantík?
Getur vel verið. Ég var í síld
fyrir 19 árum, tvö sumur í Hrís-
ey og hef oft komið til Siglu-
fjarðar, en þarna sá ég í fyrsta
sinn líf í þessu. Það kveikti í
manni og maður fékk löngun
til að skella sér í þetta aftur.
Mikil vinna?
Stundum. Þegar hrotumar
komu. Annars vom karlmenn-
irnir í dagvinnu allan daginn
frá sjö og oftást var einhver
eftirvinna, en þegar hroturnar
komu var að sjálfsögðu unnið
dag og nótt.
Var þétta ekki erfitt?
Náttúrlega er maður óvanur
vinnunni og hún er að nokkru
leyti ný fyrir manni og tekur
því að sjálfsögðu tíma að venj-
ast henni. Fyrstu dagana þreytt-
ist maður talsvert.
Þú varst að tala um það áð-
an, að það væri gott að koma
í annað umhverfi og gleyma
leikhúsinu um stund, en er þá
ekki líka beint gagn að þessu
fyrir leikstarfsemi þína?
Jú, þetta er tækifæri til að
kynnast ýmsum karakterum, og
þeim skýtur kai.’ski síðar upp
og geta orðið manni að liði við
leikhúsvinnuna.
Frú Stella kemur inn og það
er rabbað fram og aftur um
síldina. Frúin kann betur við að
vinna í síld en tilbreytingar-
laus heimilisstörfin. Það er til-
breyting að vinna með svona
mörgu fólki.
En er þetta ekki erfitt?
Ekki eins og ég hélt. Ég
hafði heyrt um þessar löngu
tarnir og bjóst hálfpartinn við
að þurfa að fara heim með
Æfingar eru hafnar á leik-
riti Kris.tjáns Albertssonar,
,,Haust“. Þar hef ég smáhlut-
veiK. Það er nú það fyrsta, sem
ég veit um og svo verð ég vænt-
anlega í næst.a leikriti, sem hef-
ur hlotið nainið „Sá hlær bezt“
Þessi tvö leikrit veit ég um enn-
þá.
Svo beT,s'; talið aftur að síld-
inni og þac ru rifjuð upp ýmis
skemmíileg atvik. Líklega er
það rétt, sem frú Stella segir,
að eftirá g/eymist hráslaginn
— og þó, þvi Róbert segir:
Kannski var það verst að fara
heim og úr blautum gallanum
og svo í hann jafnblautan aft-
ur eftir tvo til þr já tíma, enda
er mafiur ekki eins harSur og
þeir voru á togurunun: í amla
daga þegar menn stóðu. sam-
fleytt í 68 tíma án þesa að loka
auga.
tJr síUlarverksmjðju á Siglufirði.
6
VIKAN