Vikan - 04.09.1958, Page 15
Einn gegn öllum
Framhald af bls. 12.
Clapp og Thursday hölluðu sér yfir gripina. Ungi maðurinn í hvíta
sloppnum benti á myndirnar, alvarlegur í bragði, eins og prófessor, sem
er að halda fyrirlestur. „Þessar myndir eru frá Long Beach. Þær eru allar
af sömu kúlunni — kúlunni, sem grafin var undan hjarta Mace. 32 caliber.
Þessar þrjár eru kúlur, sem ég skaut úr byssunni, sem þú lézt mig fá í
kvöld.“
,,Byssa Leos Spagnoletti,“ muldraði Clapp.
Keating brosti skyndilega aftur. „Einmitt! Ég margfór yfir það — og
allt kom frá byssu Leos. Hann hefur drepið lækninn í Long Beach, það er
eitt sem víst er.“
„Það er að segja, kúlan, sem drap Mace, kom úr byssunni það er dálítill
munur.“
Glottið hvarf næstum af vörum Keatings. „Auðvitað."
Clapp glotti til hans og segði: „Vel gert, samt. Þakka þér fyrir að koma
hingað svona seint. Þú ættir að fara heim og sofa.“
Ungi maðurinn sagði: „Já, takk, lögregluforingi. Góða nótt.“ Skellur-
inn í hurðinni bergmálaði eftir auðum göngum lögreglustöðvarinnar.
Thursday hló. „Já, .takk lögregluforingi.“
„Keating er ágætur. Ég vildi að hann yrði alltaf svona áhugasamur."
Clapp leit aftur á kúlurnar og síðan á myndirnar. „Þá er eitt morðið upp-
lýst, býst ég við. Og um leið vitum við næstum því hverju var stolið úr
Panda í kvöld.“
„Perlunum," muldraði Thursday og settist aftur.
„Jamm. Ég held að Angel hafi sagt Spangolettunum frá því, að Elder
og Mace væru í félagi með Clifford. Þegar Mace fór til Long Beach, var
Leo á hælum hans. Mace náði í töskuna og síðan heyrðist bang í byssu
Leos!“
Thursday kinkaði kolli. „Nú hefur heyrzt ,,bang“ i byssu einhvers
annars — og einhver annar er með perlurnar. Hver?“
„Þetta fer að skýrast. Spagnolettarnir náðu Clifford úti á bersvæði og
losuðu sig við hann. Ljóshærða kærastan hans er á bandi Spagnolettanna.
Þá er aðeins barátta milli tveggja flokka — Spagnolettarnir öðru megin
og herra Saint Paul hinum megin.“
„Gleymdu ekki Stitch Olivera."
Framhald í nœsta blaði.
Verzlun Hjalta Friðgeirssonar
RAUFARHÖFN. Sími 9.
Sel jum allar:
NÝLENDUV ÖRUR
VEFNAÐARVÖRUR
SJÓ- OG VINNUFATNAÐUR
SMÁVÖRUR, ýmiskonar
TÓBAKSVÖRUR
SÆLGÆTI o. m. fl.
. Lögð er áherzla á hverskonar fyrirgreiðslu
við sjómenn og aðra á síldarvertíðinni.
Komið og sannfærist um verðlag og vörugæði
RAFLYSIIMG H.F.
Sími 313 — Aðalgötu 14. — Siglufirði.
Allskonar
raflagnir
í hús,
skip
og báta.
Gerum uppdrætti að raflögnum.
Dýptarmælaþjónusta.
Sparisjóður Raufarhafnar
og nágrennis
RAUFARHÖFN
Venjuleg sparisjóðsstörf
★
Annast innheimtustörf
★
Jóhann Jóhannesson
RAFTÆKJAVERZLUN.
Símar 231 og 365. — Siglufirði.
Framkvæmir:
VIÐGERÐIR OG
RAFLAGNIR í
HÚS,
BÁIA og
SKIP.
VIKAN
15