Vikan - 28.05.1959, Qupperneq 2
Þær vélar, sem endurbyggðar eru hjá okkur, eru með „merki-
plötu" sem tilgreinir öll mál á þeim slitflötum sem endurnýjaðir
hafa verið, og hvenær verkið var unnið.
AT H .:
Endurbygging vélarinnar kostar aðeins brot af verði
nýrrar.
BRAUTARHOLTI 6 - SÍMAR 19215 - 15362
POSTURINN
Mánudagsblöð.
Kæra Vika.
Mikið finnst mér það asnalegt, að engin blöð
skuli koma út á mánudögum og alveg fyrir neð-
an allar hellur, þegar ekki sést blaðsnepill í
marga daga yfir stórhátíðar. Blöðin hafa skánað
heldur upp á síðkastið, þau birta meira efni, sem
fólk hefur alniennt gaman af að lesa, en minná
af þessum hræðilega leiðinlegu pólitísku lang-
hundum. Líklegt þykir mér þó, að pólitískur
skjálfti fari nú að grípa um sig meðal ritstjór-
anna, og blöðin verði aftur ólæsileg um stundar-
sakir og þá er auðvitað ekki að harma það,
þótt þau komi ekki út á mánudögum. En annars
í alvöru, hvernig stendur virkilega á þessu?
Páll.
SVAR: Já, vist er hörmung til þess að vita,
að dagblöðin skuli ekki koma út alla daga vik-
unnar, en það má skrifa á reikning prentara,
þeir vilja ekki vinna á sunnudögum.
o---o
Barnapíuskortur.
Kæri Póstur.
Ég er alveg í hreinustu vandræðum með börn-
in mín. Við eigum tvö börn, hjónin, og þegar
við ætlum að fara út að skemmta okkur, er
varla hægt að fá nokkurn til þess að passa börn-
in. Annaðhvort þarf maður að nauða á einhverj-
um frænkum eða skyldmennum eða fá hálfókunn-
ugar stelpur til þess að passa þau. Nú, svo er
maður alltaf á nálum, að eitthvað komi fyrir
heima, og fyrir bragðið skemmtir maður sér ekki
neitt. Ég hef heyrt, að í Ameríku, til dæmis, taki
skólabörn sig saman og sitji yfir börnum. Væri
ekki hægt að koma svoleiðis á hérna. Þá gæti
maður bara hringt í einhver númer og fengið
einhvern til þess að fylgjast .með börmmum. Nú,
svo mundu skólakrakkarnir slá tvær flugur í einu
höggi, bæði fá peninga og líka geta lesið.
Ung móðir.
o---o
Naktar gyðjur.
Vikan.
Vildir þú segja okkur af hverri styttan er
í garðinum fyrir framan Kennaraskólann. Með
fyrirfram þökkum,
Tveir forvitnir.
SVAR: Styttan er af rómverskri gyðju, sem
nefnd er Pómóna. Hún var gyðja garðyrkju hjá
Rómverjum. Auk þess má geta þess, að um-
rœddur garður er kendur við Einar Helgason,
garðyrkjumann.
o----o
Sterkur bjór.
Pósturinn.
Það er ljóti fjandinn, hvernig brennivínsmálin
hjá okkur eru í megnasta ólestri. Ég las helv . . .
hressilegt bréf í Póstinum frá „Aðfluttri", þar
sem hún ræðst á sprúttsalana og vill láta ganga
milli bols og höfuðs á þeim. Rétt mun það vera
og deginum ljósara, að þeir eru hin mesta plága
heiðarlegu fólki og væru betur neðan- en ofan-
jarðar. En ef maður lítur á málið með ofurlítilli
skynsemi, hlýtur hver maður að sjá, að feillinn
er fyrst og fremst þjóðfélagsins og þessara leið-
inlegu og sígalandi templara. Það er mikil skelf-
ing til þess að vita, að á miðri tuttugustu öld,
skuli viti bornir menn, jafnvel þó svo að þeir séu
nú templarar, halda fram áfengisbanni. Nei, það
sem á að gera, er að kenna Islendingum „vín-
kúltúr" eins og annan „kúltúr" og það er þeirra,
sem eru uppalendur. Vitaskuld fylgir hætta vín-
inu, enda má segja að allri menningu fylgi nokk-
ur hætta, þess vegna ber að stefna að því, að
Islendingar verði menn til þess að fara með vín
og njóta þess. Til þess að losna við leynivín-
salana ætti að hafa „Ríkið“ opið til 10 eða 11
á kvöldin og auk þess ætti að brugga og selja
áfengan bjór. Burt með leiðindar kerlingarþvaður
og fanatík!
Heimamaður.
/
SVAE: Vikan birtir með mestu ánœgju þetta
bréf og gaman vœri að fá skoðanir fleiri á þessu
máli.
o----o
Hrói Höttur'.
Til vikunnar.
Þar sem mér dettur Vikan alltaf í hug, þegar
rætt er um fanga, skrifa ég þetta bréf til ykkar.
Þið virðist hafa komið af stað hinni svonefndu
fangarómantík og nú er svo komið, að viss stroku-
fangi er orðinn mesti „sjarmör" ungstúlkna, og
smástrákar rífast um það, hver þeirra eigi að
vera „Hann“ í bófaleikjum sínum. Til skamms
tíma deildu þeir með sér hylli ungmenna, starfs-
VTKAN