Vikan


Vikan - 28.05.1959, Page 10

Vikan - 28.05.1959, Page 10
SMASAGA ÞOR Úti ríkti nóttin, svört og köld. Vindurinn næddi nm húshornin, svifti fölnuðu luafinu af trjánum. Þeytti þyrlaði eftir götunum og í andlit því undan sér, sneri því í hringi og manna, sem gengu bognir móti storm- inum heim á leið. Svört ský fóru hraðbyri. Það var að koma rigning. 1 húsunmn húkti fólkið við eld- stæðin og starði þögult í eldinn sem logaði glatt. 1 stóra húsinu gamla, við Þorpsgötu, bjó frú Emma. Hún var ekkja og lifði þarna ein, utíin hún leigði ungum manni herbergi uppi á loftinu. Frú Emma hafði einv- ig kveikt upp eld í arni og sat nú fyrir framan eldstæðið og hlustaði á snarkið í eldinum sem rann saman við vindgnauðið fyrir utan, svo varð draugaleg hrynjandi tóna. Á litlu borðí við stólinn var tebolli og öðru hverju rétti hún hendína eftir boll- anum og sötraði di'ykkinn. — Henni leiddist. Á svona kvöldum draga menn sig saman og er huggun í því að hafa einhvern hjá sér, að minnsta kosti til að þegja með. Draugaleg og stormasöm haustkvöldin gefa mönnum ekki andriki, oft vill verða svo að sagðar eru margþeUCctar draugasögur, því þesskonar sagnir hæfa vel draugalegu vondgnauði, glamri i gluggahlerum og ískri í reykháfnum þegar vindurinn dansar trölladans uppi við opið. Leigjand- inn var ekki heíma. — Það var leið- inlegt. Það hefði verið svo skemmti- legt að hafa einhvern,, já, aðeins vita af honum þarna uppi á loftinu, þar sem nú var myrkur, — og mikið myrkur. Frú Emma stóð snöggt upp og reyndi að hrista af sér þetta slén. Hnn gekk að glugganum og svipti þungum gluggatjöldunum. frá og starði út í myrkrið fyrir utan. Hún gat ekkert séð. Hún þrýsti andlit- inu fast að rúðunni, og reyndi að sjá. Kannski gæti hún séð einhverja á ferli. Dropar fóru að myndast á rúðun- um. Það var að koma rigning. Svo var eins og himnarnir opnuðust og regnið helltist niður, droparnir skullu á {jíituna og rúðuna fyrir utan and- lit frú Emmu, mörkuðu far í rykið sem myndaðist í þurrkunum um dag- inn, hrukku frá aftur, snöggt, eins og eitthvað væri að hræðast þarna fyrir innan gluggann. Ef dró augna- bhk úr vindgnauðinu, hreyfðist fast og reglubundið, nær því syfjulegt hljóð, þegar vatnið skall á götuna. Frú Emma starði á tómið fyrir utan. En sá húh ekkert. Hún horfði hærra. Hún vissi að hún horfði á kirkjugarðinn, þótt hún sæi ekkert fyrir myrkrinu. Svona horfði hún oft að sumarlagi, þegar bjart var og óttalaust. Kirkjugarðurinn var þama sem staðreynd þess að menn deyja. — Allt í einu fannst henni sem kirkju- garður væri eitthvað sem allir áttu að hræðast og forðast. Kirkjugsu-ður minnti hana á líkkistur og líkkistur á lík og lík á hin nalmyrka dauða, sem einhverntíma koma, og þá helst þegar enginn átti von á. 1 huganum sá hún mann á ferð um götur þorp's- ins, nú á þessari stundu. Maðurinn var klæddur svörtu, með hettu á höfði og inn í hettunni var myrk- ur. Þar var ekkert andlit. Aðeins tóm, sem aldrei varð fyllt. Það fór hrollur um hana sem læsti sig um hverja taug. Hversvegna var hún hér ein ? Hversvegna haf ði maðurinn hennar horfið á brott með dauðanum? Hvar er legijandinn? Hversvegna kemur hann ekki heim? Hvað var hann að gera úti svona nótt, umvaf- inn stormi og myrkri og kulda, hann sem hafði svo hlýlegt herbergi sem kostaði hann svo lítið. Frú Emma átti mikla peninga. Hún geymdi þá i lokaða skattholinu þarna vinstra megin við gluggann. Hún gat því leigt unga manninum ódýrt. Hann var þarna aðeins til þess að hún væri ekki ein í þessu stóra húsi. Hversvegna kom hann ekki? Henni gramdist við leigjand- ann og augnablik datt henni í hug að hækka leiguna. Svo fór hún að hugsa skýrar. Hún ætti bara að fara í rúmið. Deigjand- inn mundi koma brátt. Hver var hann annars? Hún hafði aldrei hugs- að það. Líklegast af góðu fólki. Hegðun hans var slík. Hann var svo kurteis. Vel til fara, og stóri skraut- legi hringurinn sem hann bar á vísi- flngri hægri handar. Sá hringur hlaut að hafa kostað mikla peninga. Og svo glóði á rauða steininn í hringn- um, hann var stundum rauður eins og blóð. — Blóð. Nú urðu hugsanir hennar aftur myrkar. Blóð. Hvers- vegna fannst henni hugsunin um blóð svona óttaleg ? Hún tók að rýna aftur út um gluggann. — Blóð. Var þetta blóð á glugganum? eða kom þetta blóð frá garði hinna dauðu þarna fyrir handan? 1 huganum sá hún kirkjugarðinn, hún sá opnar grafir og upp úr þeim vall þykkt, moldi blandið bléð — Vindurinn hamaðist og úti var blóð. Hvaðan kom það ? Af hverju var vindur ? Af hverju var hún ein? Hvar var leigj- andinn ? Skyndilega heyrði hún þrusk og gluggatjöldin komust á hreyfingu. Svo varð allt kyrrt. Hún hlustaði, en heyrði ekkert. Hver kom? Hún var viss um að einhver hafði opnað útidyrnar og var kominn inn í húsið. Leigjandinn? Ungi maður- inn var þá kominn. Auðvitað var það hann. Hann var að klæða sig úr blautum frakkanum, hrista hattinn og hengja á snaga. Uti brá fyi-ir bjarma. Elding. Þruma. Bjarmi aft- ur. — Það var gott að hann var kominn. Þá var hún ekki ein lengur. Góði ungi maðurinn var kominn til hennar. Nei, hún var ekki einmana. Hún horfði þangað sem hún vissi að kirkjugarðurinn var. Nú óttaðist hún ekki lengur dauðann. Kirkjugarð- urinn var fallegur garður, þar sem fólk gekk skrautbúið á sumrin og las nöfn á leiðum. Nei, hún hefði þorað að fara þangað nú, í þessu veðri, í þessu myrkri. Hún hefði þorað það. Að standa ein í miðjum garðinum og hlægja hátt af hræðslu sinni áðan. Hún rétti úr sér og opn- aði munninn til þess að reka upp hlátur, en hún hló aldrei. GUÐ, hjálp, ég kafna — hver, hver er að þessu ? Hvað hefi ég gert ? Peningarnir minir í skattholinu. Hjálp guð minn hjálp . . . Úti fyrir öskraði þruma, elding lýsti upp herbergið og það varð bjart, og í glerinu sá frú Emma sjálfa sig, með starandi augu. Tíu fingur höfðu læst sig um háls henni aftan frá. Og á einum fingri var stór hringur með rauðum steini, sem var eins og blóð. Þrumurnar öskruðu, elding lýsti upp skattholið. Það rigndi blóði. iiMUiiiiitniiiiiiiiiiiiiiiimimtiiininiiiiitmiimiiiimmimiiiiiniiiuiiiiiiiiiiirtiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiimimiiim* • • Orstutt smásctga um einmana konu, og örlög hennar eina óveðursmHl. iimiimtmmmmiimiiiiiimimnmiiimiiimiiiimiiimiimiiimimmi 10 VTKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.