Vikan - 28.05.1959, Qupperneq 24
Húfa og hosur
S,y .,
wm
1
'' ' jé
.//
Efni: var gefið upp í einu í peys-
una, húfuna og hosurnar, í síðasta
tbl. „Vikunnar“, en bezt er að nota
þrinnað ,,baby“garn.
Munstrið þarf að vera deilanlegt
nieð 3+1. Prjónar nr. 3.
1. umf. 1 lykkja slétt, bandinu
brugðið um prjóninn, 1 lykkja tekin
óprjónuð, 2 sléttar, óprjónaða lykkj-
an síðan tekin yfir á 2 sl. lykkjurnar.
2. umf. — öll prjónuð brugðin.
3. umf. — 1 lykkja tekin óprjón-
uð, 2 lykkjur sléttar, órpjónaða lykkj-
an tekin yfir þær sléttu, bandinu
brugðið um prjóninn, endurtakið.
Endið prjónin nmeð 1 umf. sl.
Húfa:
Fitjið upp 80 1. og prjónið 4 umf.
garðaprjón, siðan munstur. Aukið út
með jöfnu millibili í einni 'umf. þar
til lykkjurnar verða 100 á prjón-
inum. Eftir 3% cm. er prjónað garða-
prjón og tekið úr með jöfnu milli-
bili í einni umf. þar til lykkjurnar
verða 80. Prjónið 8 umf. garðaprjón.
Síðan slétt prjón og þá eru auknar
út 12 1. með jöfnu millibili í einni
umf. Þegar prjónaðir hafa verið 2
cm. slétt prjón, er prjónuð 1 röng
umf. frá réttunni og prjónið síðan
slétt prjón þar sem áður var brugðið
(til þess að uppbrotið verði rétt þeg-
ar það er brotið upp). Þegar 14 cm.
mælast frá uppfitjun, eru felldar af
6 1. hvorum megin í annarri hverri
umf. 5 sinnum. Prjónið síðan 32
lykkjur í miðju með sléttu prjóni
og takið úr 1 1. hvorum megin með
þriggja cm. millibili. Prjónið siðan
stykkið þar til það er jafn langt af-
fellda jaðrinum og er þá fellt af.
Saumið hliðarnar saman frá röng-
unni, brjótið uppbrotið upp eftir 8
garðaprjónuðu umferðirnar. Takið
upp 75 1. neðan á húfimni, og prj.
1 umf. sl. þá 2 * 2 1. sl., prjónaðar
saman, bandinu brugðið um prjóninn,
endurtakið frá * umferðina út. Endið
með einni umf. réttri. Fellið af.
Hosur:
Fitjið upp 43 1. Prj. 4 umf. garða-
prjón, eftir það munstur, eftir 4 cm.
eru prj. * 2 1. sl., 2 1. prjónaðar sam-
an, bandinu brugðið um prjóninn,
endurtakið umf. út frá *. Næsta um-
ferð prjónuð brugðin. Setjið síðan 15
1. í hvorri hlið á öryggisnál, en lykkj-
urnar, sem eftir verða, eru prjónað-
ar með munstrinu í 4(4 sm. Prjónið
nú lykkjurnar af annarri öryggis-
nálinni, takið upp 13 1. á hliðarstykk-
inu, prjónið 1. á tánni, takið upp
13 1. og síðan lykkjurnar á hinni ör-
yggisn.
Prjónið 4 umf. garðaprjón, 6 umf.
slétt prjón og 4 umf. garðaprjón.
Eftir það eru felldar af 28 1. hvorum
megin, en lykkpurnar í miðjunni
prjónast áfram með garðaprjóni í 7
cm. Fellið síðan af 1 1. hvorum megin
í hverri umf. þangað til 5 1. eru eftir,
þá er fellt af.
Pressið stykkin lauslega frá röng-
unni með röku stykki. Saumið sam-
an, og dragið bönd í húfuna og hos-
urnar.
Hverjar eru orsakir ofþreytu?
Framhald af hls. 22.
Geta tóbaksreykingar verkað gegn
þreytu? Nikótinið í tóbaksreyknum
örfar hjartsláttinn og kemur því blóð-
inu á meiri hreyfingu. Fyrst í stað
leiðir það til þess, að heilinn fær
meira blóð og þar með blóðsykur, og
getur þetta sljóvgað þreytutilfinn-
inguna um hrið. En reykurinn inni-
heldur einnig önnur eiturefni, sem
m. a. bola súrefninu burt úr rauða
blóðkornunum. Mikill reykingamaður,
sem sýgur reykinn ofan í lungun, fær
brátt svo mikið af þessu eiturefni í
blóðið, að það vegar upp á móti hin-
um örfandi áhrifum nikótínsins.
Meðui, kaffi og önnur örfandi efni
eru dýrmæt, þegar þau eru notuð
skynsamlega, þ. e. til hjálpar í neyð
eða á þýðingarmiklum augnablikum.
En þau veita aðeins augnabliksfró-
un. Þá krefst móðir náttúra réttar
síns og það verður aldrei hægt að
setja neitt í stað svefns og hvíld-
ar.
BIFREIÐAEIGENDUR
gfafið þið húðað hreyfilinn með LIQUI-IVIÖLY slitlagi fyrir sumarið?
Hafið hugfast að ein dós af LIQUI-MOLY sem kostar kr. 37.00
myndar slitlag sem endist í 4800 km. akstur.
Það er staðreynd að LIQUI-MOLY hefur varið þúsundir hreyfla
gegn úrbræðslu, sem ekið hefur verið olíulausum allt að 60 km.
vegalengd. LIQUI-MOLY sparar benzín um 20%.
LIQUI-MOLY fœst á benzínafgreiöslum, smurstöövum,
bílaverzlunum og víöar.
LAUGAVEGI 23 — SlMI 199Jf3.
ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ H.F,
24
VIKAN