Vikan


Vikan - 13.08.1959, Side 19

Vikan - 13.08.1959, Side 19
Drengurinn kann mjög vel við sig frumskóginum og hefur nóga fseðu. , ' n.'vr ALLTAF SKlTBLANKUR . . . Framh. af bls. 12. ekki eftir mér öfiru vísi en skítblönlc- um. En nú fæ ég hærra kaup ... og fleiri vini. Það er annars ótrúlegur fjöldi fólks, sem eru vinir manns núna. Þeir hafa áreiðanlega aldrei verið fleiri. — Hefur þú hugsað þér að selja hílinn? — Ekki að svo komnu máli, að minnsta kosti ekki fyrr en maður er húinn að jafna sig á þessum ósköp- um. Svo liefi ég lika verið að hugsa um, að úr því að ég komst af án þess að eiga bíl, ætti ekki að vera erfiðara fyrir mig að komast af með það að eiga bil. Hins vegar hefir mér verið sagt, að hægt sé að fá allt að 180 þúsundir fyrir svona vagn, og svo hækkar vist næsta sending af þeim hingáð, og þá gætu þeir komizt upp í 200 þúsund. — Þú ætlar auðvitað í sumarfri á nýja bilnum? — Nei, ég liefi iiugsað mér að fara til Vínar i sumarleyfinu, i hópför- inni sent þangað heldur. Það var ég búinn að ákveða áður en bíllinn kom til sögunnar — annars liefði ég kannske heldur rennt eittlivað út á landið. — Það þarf víst eklci að spyrja þig hvort þú ætlir að halda áfram að spila í happdrætti DAS? — Nci, það er óþarfi að spyrja að því — ég er ekki nema 22 ára, og hefi fullan hug á að spila eittlivað lengur, reyna að fá íbúðina næst og svo húsgögnin fyrir 20 þúsund — þá er þetta komið og þá er ég b'úinn að fá vinning á alla miðana mína þrjá. Ó. G. P. FAGOTT OG FORNALDARLÚÐRAR Framli. af bls. 11). iiflugasta fagfélag Bandaríkjanna, og er þá nokkuð sagt. Hins vegar fór Bandaríkjadvölin ekki alvég fyrir of- ;m garð og neðan hjá mér, j)ví að ég fékk mér einkatíma hjá fyrsta básúnuleikara New York sinfóniunn- ar, afburða flinkum og góðum kenn- ara, og lærði beilmikið af honum. „Síðan hefi ég ekki náð mér á gott strik í dansmúsikinni“, sagði Björn í byrjun viðtalsins. Ekki svo að skilja að hann hafi lagt árar í bát á þeim tíma, því að — ég hefi svo sem liaft nóg að gera, bæði með sinfóniunni og i dans- nnisikinni. Var I. d. í Sjálfstæðishús- inu nokkurn tíma og hefi farið viða um Suðurland með hljómsveitir. Það var líka á þessum tíma, sem við Pétur Pétursson þáverandi útvarpsþulur fenguni liugmyndina að jiættinum „Óskaliig sjúklinga", sem ennþá er við líði. Ég var víst i eitt ár með þátt- inn, en syo tók Ingibjörg Þorbergs við honum. Hún hafði reyndar að- stoðað mig verulega við undirbúning hans meðan ég var með hann, og lá beinast við að hún tæki við. Annars fékk ég svo mörg bréf frá sjúku fólki og varð oft svo snortinn af örlögum jjess, að mér lá stundum við gráti. Ég væri sennilega orðinn taugalaus aumingi ef þessu hefði lialdið mikið lengur áfram. Loks spyrjum við Björn um eftir- minnilegasta atburðinn í hljómsveit- arferðunum út á landið. —- Það eru svo margar skemmti- legar minningar, sem maður á úr þeim ferðum. Þó held ég að mér líði seinast úr minni þegar við fórum saman fjórir á fjögurra manna bíl, sem ég átti, og höfum sennilega aldrei lcomizt nær dauðanum en þá kom iðulega fyrir. Bíllinn var yfir- hlaðinn, með hljóðfærin bundin á j)akið, og sennilega hefði enginn maður, sem vit hefir á bílum, látið sér detta í hug að leggja upp í þetta glæfrafyrirtæki. Ég get sagt ykkur eina glefsu úr ferðasögunni, j)ví að öll myndi sagan fylia lieila bók. Það bar við þegar við fórum til Siglu- fjarðar. Við voruni fyrsti bíllinn, sem fór yfir Skarðið eftir að búið var að ryðja af því snjónum, og yar ferðin vægast sagt all glæfraleg. í líakalcið- inni brotnaði eitthvað í framfjöðr- unum, og tókum við það ráð að leigja vörubíl til að flytja fjögurra manna bíiinn til Akureyrar. Við héldum af stað — litli bíllinn á palli stóra bíls- ins eins og ungi í poka kengúru, og við sitjandi i litla bílnum. Vörubíl- stjórinn hafði unnið fullan vinnudag áður en lagt var af stað og þegar liða tók á nótt, en við ókum að næturlagi, l'ór hann að syfja mjög. Við vorum liins vegar vel vakandi, enda nátt- hrafnar mestu, og sáum því grcini- lega þegar vörubillinn sveigði skyndilega i átt út af veginum. Það virtist óhugsandi annað en við ætt- um fyrir liöndum að hrapa niður af margra metra háum vegkanti. Ég man að einhver okkar greip i stýrið á litla bílnum, en auðvitað hafði það enga þýðingu. Á síðustu stundu nam vörubíllinn hastarlega staðar. Bíl- stjórinn kom út náfölur. — Svei mér l)á, ég held ég hafi verið að sofna, sagði hann. Sem betur fór hrökk hann upp i tæka tíð ■— annars hefðu fleiri sofnað, og j)að fyrir fullt og allt. Síðan geklc ferðin að óskum, og ég man upplitið á Akureyringunum þegar vörubillinn ók i bæinn með litla Jjílinn á palli hlaðinn farþeg- um. Nú sjáum við að Björn er tekinn að ókyrrast, ])ykir við sennilega bún- ir að tefja nóg. Við tökuin okkur þvi i munn orðin úr Bæjarpóstin- um: — Hvað liggur á? spyrjum við. —• Ég er að verða of seinn á æfingu, svarar Björn. — Hvað er verið að æfa? — Ég er að æfa efnilegustu hljóm- sveit, sem ég hefi haft, að ég held . .. og svo er hann rokinn þessi mað- ur, sem hefir þrívegis verið íslands- meistari í einni vigt hnefaleika, feng- ið verðlaunapening fyrir sund og yerið í mörgum boðblaupssveitum á Islandsmeistaramótinu i frjálsum íþróttum, auk þess sem hann er rak- arameistari og hljómsveitarstjóri, sem að eigin sögn hefir haft lágt um sig nú um sex ára skeið, en virðist hafa fullan luig á að koma nú fram i sviðsljósið á ný, jafnvel með hið bezta, sem hann hefir nokkru sinni gert áður. A. T. VIKAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.