Vikan - 12.05.1960, Síða 4
• •
LOBITEl ER FERMINGARGJOHK
Fæst hjá:
Focus
Gevafot*
Týli h.f.
Hans Petersen
og hjá
60
verzlunum
um land allt.
Einkaumboð á Islandi fyrir Rússneskar Ijósmyndavörur:
EIRIKUR KETILSSON
Vesturveri 6. h.
Sími: 19155. BOX 1816.
RÚSSNESKAR LJÓSMYNDAVÉ LAR ERU SPÚTNIKAR I LJÓS-
MYNDAHEIMINUM.
Vændiskona á rónastig
Innfiutningur á óþverra
Ljós punktur i dagsskránni
HEIMILISFANG SÖNGVARA.
Kæra Vika.
Okkur langar til að Liðja þig um heimilis-
fang þessara söngvara: Louis Armstrong, Fats
Domino, Ricky Nelson, Paul Anka, Frankie
Avalon, Peter Kraus og Conny — og leikkon-
unnar, Pascall Petit.
MeS fyrirfram þakklæti.
Dægurlagaunnendur.
Vikan snýr sér enn sem fyrr til lesenda
sinna. Mér er það ánægja að geta veitt þeim,
sem spurði um heimilisfang Karlson stýri-
manns fullar upplýsingar, því að skömmu
eftir að bréfið með þeirri beiðni birtist,
hringdi ung stúlka til mín og bauð aðstoð
sína. Utanáskrift Karlson stýrimanns — þegar
hann er í höfn — er sem sagt þessi: Fritz
Helmuth — Saga Studio — Annettevej 19 —
Charlottenlund — Danmark.
SVAVAR GESTS AFBRAGÐ.
Kæra Vika.
Hann Svavar Gests er afbragð. Síðasti þátt-
urinn hans, grínið með skóna og Harald Á., er
sennilega það allra bezta í léttum tón, sem
komið hefur i islenzka útvarpinu, og Svavar
er búinn að ná til fullnustu þessum elskulega
og fjöruga sjarma, sem beztu þáttastjórar ná í
útlandinu, en enginn hefur náð hér á landi
nema hann. Og svo er enn eitt — það var ein-
hver fýlupúkinn að hnýta í hann fyrir gaman-
þátt hans i revíunni „Eitt lauf“. Ég er búin
að sjá hana, og ég verð að segja, að mér fannst
einmitt þessi þáttur eini ljósi punkturinn i
henni, með allri virðingu fyrir hinum höfund-
unum. Sá þáttur er einmitt bráðsnjall fyrir alla,
sem kunna að meta létt gaman, og það má segja,
að þeir hafa verið meira en litlir snillingar,
reviuhöfundarnir í gamla daga, ef þeir hafa
gert betur, edns og þessi náungi gaf i skyn.
Hann Svavar er afbragð, og alveg sama að
hverju hann leggur hendurnar.
Virðingarfyllst.
Ein af aðdáendum hans.
Ég samfagna Svavari Gests. Það er alltaf
gaman þegar eitthvað gott nær góðum til-
gangi sfnum — og fólk kann að meta það.
Svavari virðist hafa tekist að finna hinn
rétta streng og slá hann eins og bezt verður
á kosið, því að sffellt berast hrósbréf um þátt
hans og sjálfan hann.
EN EKKI FÁ ALLIR HRÓS ...
Kæri póstur.
Ein kvörtunin enn — og i öllum guðanna
bænum komdu henni á framfæri. í þetta sinn
er hún um texta — islenzkan — við bráðfallegt,
italskt dægurlag, þ. e. a. s. „Marina“. Lag þetta
er sungið inn á plötu, með þessum texta, af
Sigrúnu Jónsdóttur, og finnst mér það — væg-
VIKAN