Vikan


Vikan - 15.09.1960, Side 23

Vikan - 15.09.1960, Side 23
VIKAIU ÚÍgcfandi: VtKAN H:F, Ritst i .. , ii.ítstjóra o • ujúý^ngarj GlsH SiscarBsBoa (ábst'.) Skipholti 23. Auglýsingastjóri: Síinitr: 33320, 3532Í, 35322. Ásbjörn Msgr.úsnon PósthóU 149. Framkvœnutastjóri: Af«rei8sla t»g areifinft: Brlmar A. KristjáaHsor, iilaðadrcifjng. iJ'kr.’braut 15. slmí 15017 Verð í lausasölu kr. 15. Áskriftarverð er Preniun: Hiiniir Ii.f. 200'kr. ársþriCjungsíega, greib'íst fyrirfrars Myadsrv.öt; Myn-!i>.uiut b.f. Þið fáið Vikuna í hverri viku I næsta blaði verður m. a.: ♦ Ný spennandi verðlaunakeppni. Verðlaunin eru ný stofuhúsgögn frá Húsgagnaverzluninni Skeifunni, sem eru að koma á markaðinn um þessar mundir. ♦ Grundarþjófasaga. — Þorsteinn frá Hamri rifjar upp gamalt afbrotamál, sem gerðist við Breiðafjörðinn. ♦ Ferð inn í fortíðina. — Smásaga eftir rússneska höf- undinn Ivan Bunin. ♦ Verðlaunamaður á verðlaunareisu. — Sagt frá Kaup- mannahafnarferð Gunnars Friðbjörnssonar, sem verðlaunin hlaut hjá Vikunni. ý „Fagurt skal mæla“. — Þáttur í greinarflokki Dr. Matthíasar. ♦ Saga úr daglega lífinu: Maðurinn minn var mér ótrúr. ♦ Bréf frá Þorsteini á Úlfsstöðum: Var Einstein óskeikull? VASAPLÖTUSPILARI. Nýjasta nýtt á markaðinum og auðvilað frá Ameríku er plötuspilari, sem ekki er slærri en 21,5x11,2 cm. og ekki þyngri en 0,9 kg. Hann spilar bæði 33 og 45 snúninga plötur og hljóðið kemur frá innbyggðum liátalara. Til þess að snúa plötunni er ekki notaður diskur eins og venjulega, lieldur tvö gúmmíhjól, sem ganga fyrir fjórum venjulegum vasabatteríum. Það er enskt •\ fyrirtæki, sem framleiða mun plötuspilarann og í Bandaríkj- ' unum mun liann kosta rúmlega 1600 íslenzkar krónur. Af hverju roðnarðu svona? Kvenfólkið kvað ekki roðna líkt því eins mikið og það gc-rði í gamla daga, staðhæfir prófessor, sem hef- ur atluigað þetta fyrirbæri í nærri fjörutíu ár. Upphaflega segist prófessorinn liafa verið þeirrar skoðunar, að kvenfólk roðnaði meira en karlar, en nú á dögum er það ekki raunin. Fyrr ineir þótli það alveg sjálfsagt, að stúlkur roðn- uðu upp í hársrætur, þegar þær heyrðu á tal karla um mál, sem þær orðuðu aldrei sjálfar. Þetta þótti kvenlegt og kitlaði karlmennskutil- finningu sterkara kynsins. Prófes- sorinn ber á móti hinni almennu staðliæfingu, að fólk roðni af því, að liorft sé á það. Þvert á móti segir hann: — Fólk roðnar til þess að vekja athygli, ]»ví að um teið og einhver roðnar, horfa allir á hann. — Mest roðnar fólk frá fermingar- aldri og fram til tvítugs. Niðursoðnar vekjaraklukkur. Þetla er alls ekki grtn, heldur rammasta alvara. — að í Ameríku selja þeir vekjara í loft- þéttum dósum. í aug- lýsingunum stendur: — Okkar- ágætu vekjara- klukkur eru ósnerlar af mannahöndum og al- veg ryk og bakteríufrí- ar. Það hlýtur að vera ólíkt notalegra að vakna við slikar klukkur á morgnana lieldur en þessar, sem við verðum að notast við hér úti á íslandit v.v.v .v.v.v.v, ♦:•>:•: »x- :•:•»: m »» .!»» V.V.V UclgUI 11111 m Ilrútsmerkið (21. marz—20. apríl): Vikan verður mUn ánægjulegri en fyrri vika, og Þér munu gefast fleiri tækifæri til þess að sinna þeim áhugamálum þínum, sem þú hefur ekki getað sinnt undanfarið sökum anna. Ungt fólk kemst i einhver vandræði út af ástvini sinum, en stjörnurnar ráðieggja því að aðhafast ekkert, heldur láta timann skera úr þessu vandamáli. Föstu- dagurinn er konum til mikilla heilla. Heillatala 7. Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Það skiptast á skin og skúrir í vikunni; endalokin verða þó ánægju- leg. Á firpmtudag muntu gera dálítið, sem virðist ekki skipta miklu í fljótu bragði, en síðar í vikunni muntu komast að því, að þetta athæfi þitt var þér afar heilladrjúgt. E’f þú lendir í deilum við einhvern kunningja þinna, skaltu varast að verða of öfgafullur. Heillalitur rautt. Tvíburamerkiö (22. mai—21. júní): Vikan virðist ætla að verða fremur tilbreytingalítil, þótt ekki verði hún samt leiðinieg. Varaztu mikil peningaútlát í vikunni Atvik frá fyrri viku verður til jiess að Þú breytir áætlunum þínum talsvert — og er það vel. Líkur á stuttu ferðalagi einhvern tima í vikunni. Vinur þinn er í vanda staddur, reyndu að verða honum að liði. KrabljamerkiÖ (22. júní—23. júlí); Þetta verður vika mikilla framfara. Þú munt hljóta mikið hrós fyrir unnið verk, en varast skaltu að kikna ekki undir því lofi. Það er hætt við að þú látir um of stjórnast af duttlungum félaga þinna. Þú verður að reyna að hugsa sjálfstæ.tt, annars verður þú alltaf háður öðrum. Á vinnu- stað kemur fyrir dálítið einkennilegt atvik, jafnvel dularfullt, og verður þú við það riðinn. Ljónsmerkið (24. júlí —23. ág.): Þú munt verða að taka mikilvæga ákvörðun i vikunni. Hætt er við að félagar þínir verði ekki fyllilega á sama máli og þú hvað þessa ákvörðun snertir, en í þetta sinn hefur þú einn rétt fyrir þér. Þú skalt reyna að fylgja þeirri áætlun, sem þú gerðir í vikunni sem leið. Þú munt lifa ein- stakiega notalegu lífi um helgina, og eftir strit vikunnar verður sú livild þér brýn nauðsyn. Heillatala 4. Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þú munt eignast nýja kunningja í vikunni, og enda þótt þessir nýju vinir þínir hverfi von bráðar af sjónarsviðinu, muntu verða reynslunni ríkari, er Þeir fara. Konur komast í einhver vandræði út af hjartans málum. Stjörn- urnar ráðleggja öllum að gera nákvæmar áætlanir um næstu viku og flana ekki að neinu. Heiilalitur blátt eða blágrænt. Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Það gripur þig eitthvert eirðarleysi í vikunni, og þú munt ekki sigrast. á Þvi nema með því að reyna að aðhafast sem mest. Þú skalt ekki takast á hendur neitt, sem vafa- samt virðist, því ellegar gætir þú lent i hinu versta klandri. Láttu Það ekki á þig fá Þótt ástvinur þinn sé dálítið kuldalegur þessa dagana. Þetta líður frá von bráðar. DrelcamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Heimilisvandamál mun krefjast skjótrar úrlausnar í vikunni, og getur þú einn orðið til þess að koma öllu á réttan kjöl. Ef þú gætir ekki tungu þinnar, getur þú hæglega orð;ð þér til skammar í fjölmenni. Fimmtudagurinn er mikilvægasti dagurinn fyrir æskufólk. Hinsvegar er helgin rosknu fólki til heilla. Heillalitur bleikt. Bogmaðurinn (23. nóv.—21. des.): Ýmiss konar smá atvik munu verða til Þess að þú lítur tilveruna nýj- ur.i augum. Þú munt fyllast bjartsýni á tilveruna, þótt orsakir þess. séu ekki beinlínis ljósar. Araor verður talsvert á fet'ðinni, og í þetta sinn bregzt hann þér ekki. Maður í opinberri stöðu verður til þess að forða þér frá glappaskoti. Þú hefur komið lieldur tlla fram við emn íélaga þinna. Bættu úr þvi hið skjótasta. Geitarmerkiö (22. des.~-20. jan ): Þú skalt vinna CpMíSi'i vinnu þína af vandvirkni og nostursemi í vikunni og varast einkum að stofna fjármunum annarra í voða. Þú skalt ekki taka neinar mikilvægar ákvarð- ’ ~ anir í vikunni, sizt af öllu ef endalokin virðast tví- sýn. Þú munt freistast til að gera dálitið, sem þú nmnt sjá eftir síðar. Þér verður sýndur einlægur vináttuvottur um helgina. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Þér munu bjóðast ótal tækifæri í vikunni, og nú ríður á að þú beitir skarpskyggni þinni og veljir úr þau arðvæn- legustu. Konur ættu að gæta tungu sinnar, til þess að komast hjá óþörfum deilum. Þú munt verða fyrir áhrifum af næstum ókunnum manni, líklega útlendingi. Sunnu- dagurinn er giftu fólki til íaikilla heilla, en ógiftu gæti sá dag- ur orðið varhugaverður. Heillatala 9. Fiskamerkiö (20. feb—20. marz); Liklega munu hjartans mál eiga allan hug Þinn í vikunni, og er það gott og blessað, nema hvað þú skalt varast að láta það ekki bitna á öðrum, einkum þó vinnufélögum þínum. Þú munt eignast nýjan vin um eða eftir helgina. Dragðu ekki lengur að skrifa bréfið, sem þú skuldar vini þínum. Þér verður komið einkennílegá á óvart um helgina. § öVi &

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.