Vikan - 15.09.1960, Síða 17
i ' ^
»181
'
; < i
Sumarkfólar
Hér sjáið þið nokkra sumarkjóla, enda þótt langt sé
liðið á sumarið. Þeir eru allir mjög einfaldir og smekk-
legir, og takið eftir því að kaflarnir i þeiin köflóttu eru
stærri en tíðkast hefur. Einnig virðist mjög vinsælt að
liafa skraut i hárinu, t. d. blóm eða skartgripi, svo eru
flétlur líka mikið að komast í tízku.
<] Tveir sérstaklega smart kjólar og einfaldir, en það er einT
mitt það sem gerir þá sérstaka.
I. Skemmtilegur kjóll og dopp-
óttur, ekki köflóttur. Mjög
hentugur fyrir þær, sem auka
vilja barminn, fyrir utan það,
að snið þetta er alltaf fallegt
og kvenlegt.
V '
Skcmmlilcgir
hnappar
Þið kaupið ykkur venjulega
ódýra hnappa af þeirri stærð
sem þið þurfið og hafið þá fjór-
gataða. Svo saumið þið yfir all-
an hnappinn með grófum silki-
tvinna, fyrst í ferkant frá holu
til holu, og siðan frá þeim
saumi yfir allan hnappinn.
Kosturinn við þetta, fyrir utan
peningasparnað, er sá, að nú
getið þið fengið nákvæmlega
þann lit sem þið viljið.
<1 Hér eru svo tveir dálítið
haustlegri en hinir. Kjóllinn
er dökkblár og rendurnar
hvítar og ljósgrænar, mjög
skemmtileg litasamsetning.
Dragtin er aftur á móti rauð-
og hvítköflótt með hvítum
ermauppslögum og mjög
þægileg í íslenzkri sumar-
veðráttu.
Látlaus kjóll, en mjög góður [>
fyrir þær, _sem minna vilja
gera úr barminum.
VIKAN
I 17