Vikan


Vikan - 15.09.1960, Page 26

Vikan - 15.09.1960, Page 26
Carabella »g“ llax Factor Sigrún Gizzurardóttir var komin heim til sín austur að Akurey í Landeyjum, en Vikan gerði sér lítið fyrir og heimsótti hana þangað og hafði meðferðis vcrð- launin. Hér er Sigrún með hrífuna úti á engjum og verðlaunin í hendinni. <1 Ágústa hlaut þau verðlaun- in, sem eftirsóknarverðust þóttu: Hún var kjörin Sumarstúlka Vikunnar 1960 með yfirgnæfandi meiri- hluta. Auk þess fær hún alklæðnað frá verzl. Eygló og skó frá Iðnaðardeild SÍS. Ágústa vildi heldur bíða til haustsins, þar til Eygló kæmi með haust- tízkuna á markaðinn — þá rctlar hún að taka út verð- launin og ef til vill sjáum við seinna mynd af því. Þessar myndir eru af afhendingu verðlauna fyrir þáíltöku i keppninni um litiiinn „Sumarstúlka Vikunnarl960“. Eins og að ofan segir, bíður Ágústa eflir liausttízkunni, en Hólm- fríður Egilsdóttir var um þessar mundir í Kaupmannahöfn, svo ekki var liægt að ná í liana, en hún fær sin verðlaun að sjálfsögðu, þegar hún kemur Iieim. Keppnin vakli mikla athygli og síðan hefur blaðinu horizt fjöldi áhendinga um stúlkur í keppni að sumri. Ef tii vill förum við þá aftur á kreik, Jiegar vorar að nýju. Myndin til vinstri að neðan: Ólafur Magnússon, forstjóri Nærfata- gerðarinnar AIK, kvað sér það mikinn heiður að leggja af mörkum kassa með dýrindis Carabella náttfötum eftir nýjustu tízku — einn handa hverri dömu. Hér afhendir hann Sigrúnu Kristjánsdóttur verðlaunin. Max Factor snyrtivörur eru heimsþekktar og þær gátu ekki hugsað sér neitt betra af því tagi. Verzl. Remedía útbjó fallegan gjafakassa handa hverri og hér afhendir ungfrú Ilildigunnur Dungal Sigrúnu Ragnars, fegurðardrottningu íslands 1960. kassa með snyrtiviirum frá Max Factor.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.