Vikan


Vikan - 15.09.1960, Blaðsíða 14

Vikan - 15.09.1960, Blaðsíða 14
hfír uttílitufMíi Ætlar að eiga íimm börn! Við gerðum okkur ferð í verzlunina örnólf á Snorrabrautinni, ekki til að kaupa okkur vinber eða eitthvað svoleiðis, heldur til að hitta Theo- dóru Þórðardóttur, Hún var til i að segja við okkur nokkur orð, svo við létum dæluna ganga. Hefurðu unnið hérna í sumar? Já, annars er ég að hætta. Jæja, þú hlakkar til þess er það ekki? Jú, þó maður fái auðvitað leið á því að vera iðjulaus. Hvað gerirðu annars, svona þegar þú átt frí, ekkert sérstakt tómstundastarf ? Nei, ég bara skemmti mér, og svo les ég, já Vikuna meðal annars, og : tundu.m spila ég á gítar. Hvað lestu aðallega i .Vikunni? Fyrst stjörnuspána, svo smásögurnar og hitt með tímanum. Þú spilar segirðu, syngurðu þá með? Já, en bara fýrir sjálfa mig. Hvernig ferðu svo að því að skemmta þér? Fer á böll t. d., mér finnst gaman að dansa. Og svo eru bíóin, maður er alltaf á bíó. Finnst þér nú allt í lagi með skemmtanalífið, ekkert sem er ábótavant? Jú, mér finnst að það ætti að vera mikið meira af klúbbum t. d. jazzklúbbar. Það var einn í Framsóknarhúsinu í vetur, ég fór þangað oft, og út á hann var aðeins eitt að setja, það hefðu mátt vera skemmtiatriði með og svo endilega söngvari í einhverjum af lögunum. Og í sam- bandi við skemmtanir, þá er ég mikið á móti vini. Það er leiðinlegt að dansa við fulla stráka, mér finnst að þeir sem drekka gætu verið einhvers- staðar út af fyrir sig, eða bara drukkið heima hjá sér. Hver er uppáhaldshljómsveitin þín? Ja, mér finnst Disco skemmtilegastir og af ís- lenzkum söngvurum held ég mest upp á Harald G. Haralds. Svo er líka Svavar ágætur. Ferðu í skóla í vetur? Já, ég fer i Verzlunarskólann. Ætlarðu að taka verzlunarpróf ? Nei, ég ætla að verða stúdent. Alveg ákveðin? Já. En ef ástin skerst i leikinn? Það er alveg sama, ég ætla ekki að binda mig fyrr en ég er búin. En ætlarðu þá að læra eitthvað í háskólanum, eða bara gifta þig? Ætli ág gifti mig ekki, ég er búin að ákveða að eiga fimm börn, svo það er víst ekki um annað að ræða. i Bara fimm börn já, þú ert bjartsýn. Já, og sá elzti á að vera rauðhærður og frekn- óttur. Er tilvonandi eiginmaður kannski rauðhærður? Nei, hann er það nú ekki, en það verður ein- hvern veginn að biessasf. Hvað ætlarðu að gera næsta sumar? Ætli ég fari ekki út, ég er að safna mér fyrir því. Svo langar mig lika að verða flugfreyja, minnsta kosti einhvern tíma. Til hvaða lands ætlarðu þá næsta sumar? Ameríku, mig hefur ailtaf iangað þangað. Hlustarðu á Kanann? Já, alltaf þegar ég get. Gætirðu hugsað pér að búa erlendis? Nei, ekki nema pabbi og mamma kæmu með. Nú, eiginmaðurir i mundi þá ekki losna við tengdamömmu ? Nei, líklega ekki, segir hún og brosir, og það er auðséð á brosinu a? hún er ekki bara að hugsa um tengdamömmu. Ertu nokkuð að h: ;sa um fegurðarsamkeppn- ina? Nei, alls ekki. 1 hvað eyðirðu mest peningum? Ja, ég veit það ekKi, föt t. d., annars er svo erfitt að fá góð föt hérna. Saumarðu nokkuð sjálf? Nei, en ég er farin aö hafa áhyggjur af því, það kemur sér alltal vel að geta saumað. Segðu okkur svo að lokum, ertu ánægð með Hfið? i jfjfla Nei, ekki alltaf, ekki nærri alltaf. Það eldist af þér, segjum við spekingslega. Og kveðjum svo þessa ungu blómadrottningu. DÆGURLOG Peter Kraus hefur marga undanfarna mánuði verið langvinsælasti dægurlagasöngvari i Þýzka- landi sérstaklega meðal unglinganna, sem tilbiðja hann eins og guð. Þó að Peter sé enn innan við tvítugt hefur hann leikið i nokkrum kvikmynd- um og sungið inn á fjöldamargar hljómplötur. Hér er ein nýleg, 45 snúninga plata með fjórum lögum, „Rendezvous mit Peter“. TEXTINN MUSTAFA Nú viljum kveða kátan brag um karl, sem fór í ferðalag. Á skipi kokkur kom hann Tyrklands tii á knæpu settist þar við spil. „Ja Mustafa, ja Mustafa" allir sungu „ja Mustafa“ en hvað það þýddi hann ei vissi neitt en heyrði bara þetta eitt. Ég settist niður og ofan húfu tók óðar til mín þjónninn kom með heljarstóra bók: Flestir heyra ekki Sacha Distel nefndan, án þess að setja hann í samband við Brigitte Bardot. En Distel hefur sýnt, að hann getur komið sér vel áfram, án þess að nota hina heimsfrægu þokkadís sér til framdáttar. Sacha lærði snamma að spila á gítar og fimmtán ára stofnaði hann sína eigin jazzhljómsveit. Hann er nú talinn færasti gítarleikari sem Frakkar hafa átt, síðan Django Reinhardt lézt. Og þar að auki er hann mjög vinsæll dægurlagasöngvari. Fyrir nokkrum árum bjó hann i New York og þá söng liann inn á nokkrar plötur, sem strax „slógu í gegn“. E'in þeirra hét „Brigitte" og rann auðvitað út eins og heitar lummur. En þekktasta lag, sem bann hefur sungið inn á hljómplötu heitir „Scoubidou“, en það söng hann inn löngu eftir að Bardot-ævintýrið tók enda. „Ja Mustafa, ja Mustafa" allir sungu „Ja Mustafa" en hvað' það þýddi hann ei vissi neitt og sagði bara þetta eitt: Ég reigði mig og „Mustafa" ég sagði og með það þjónninn fór á augabragði og fiónið kom með fíl í eftirdragi að íorða mér ég sætti iagi. Nú viljum kveða kátan brag um karl sem fór í ferðalag. Á skipi kokkur kom hann Tyrklands til á knæpu settist þar við spil. „Ja Mustafa, ja-Mustafa“ allir sungu „Ja Mustafa“ en hvað það þýddi hann ei vissi neitt því sagði bara þetta eitt: Svo sá ég mey, sem ein var úti að ganga að yrða á hana fór mig strax að langa. Ég hneigði mig og „Mustafa" ég sagði en mærin þaut í burtu á augabragði. Hann flúði burt og fór svo heim til sin að fara út i lönd er ekkert grín. En „Mustafa" hann ekki ennþá kann þó allir skilji þetta nema hann. „Ja Mustafa, ja Mustafa" allir þar sungu „Ja Mustafa" en hvað það þýddi hann ei vissi neitt og sagði bara þetta eitt: Mustafa. I ► 14 V I K A N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.