Veðrið - 01.04.1967, Page 3

Veðrið - 01.04.1967, Page 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 75.00 1. HEFTI 1967 12. ÁRGANGUR RITNEFND: JÓNAS JAKOBSSON FLOSI H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞÓRSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SÍMI 15131 Ur ýmsum áttum „Veðrið“ og Jón Eyþórsson. l>cu;i tímarit er nú komið á tólfta árið, og hefur í mörg ár haft nokkuð tryggan lesendahóp, þótt ekki sé hann sérlega stór. Þetta er sæmilegur aldur miðað við ævi margra íslenzkra tímarita, sem farið hafa af stað á síðustu áratugum. Rit- nefnd frá Félagi íslenzkra veðurfræðinga hefur annazt um útgáfuna, en Geir Ólafsson deildar- stjóri hefur séð um útbreiðslu og innheimtu af mestu prýði. Ritstjóri hefur enginn verið skráður, en óhætt mun þó að ljóstra því upp, að Jón Ey- þórsson hefur vcrið lifið og sálin í útgáfu þcssa rits og er það enn, þó að hann hafi nú beðizt undan að vera í ritnefnd. En af þessari sömu ástæðu er það, að við höf- um eiginlega ekki lengið færi á að birta hér mynd af Jóni fyrr en núna. Um leið skal eftir venju um höfunda í Veðrinu sagt lítið eitt frá uppruna hans og störfum, því enda þótt maðurinn sé þjóðkunnur, væri illa samandi að gera honum hér lægra undir höfði en öðrum, að þessu leyti. Fæddur er Jón að Þingeyrum, því gamla höfuðbóli, 27. janúar 1895. Fullu nafni lieitir hann Jón Pétur, þó að postulanafninu ltinu síðara flíki hann ekki hversdagslega. Foreldrar hans voru Eyþór Árni Benediktsson bóndi að Hamri á Bakásum í Austur-Húnavatnssýslu, og kona hans Björg Jósefína Sigurðardóttir. Gagnfræðaprófi lauk hann frá Akureyri 1914, en varð stúdent frá Menntaskóla Reykjavíkur 1917. Árið 1919 lauk hann fyrsta hluta náttúruftæðaprófs í Kaup- mannahöfn, en varð cand. mag. við Oslóarháskóla 1923. Á þessum árum var Noregur forystuland í veðurfræði, og merkustu tíðindin í jteim fræðum voru VEÐRIÐ --- 3

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.