Veðrið - 01.04.1967, Qupperneq 11

Veðrið - 01.04.1967, Qupperneq 11
2. mynd. Tvivetnismagn úrkomu A RjiípnahœÖ. 3. mynd. Tvivetnis- magn úrkomu í Vegatungu. Urkoma. Friedman mældi mánaðarleg úrkomusýnishorn frá Rjúpnahæð, svo sem áður er getið. Ná mælingar lians yfir tímabilið janúar 1958 til apríl 1961. Eðlisfræði- stofnun Háskólans tók síðan við þessum mælingum og hefur mælt mánaðarleg úrkomusýnishorn frá september 1960 til desember 1965. Auk þess hafa mánaðar- leg úrkomusýnishorn frá Vegatungu verið mæld fyrir tímabilið janúar 1963 til desember 1964. Úrkomusýnishornum er safnað þannig, að allri úrkomu, sem fellur í viðkom- andi regnmæli á einum mánuði, er safnað saman á flösku. Af þessu meðalsýnis- horni er síðan tekinn einliver hluti til mælingar. Mynd 2 sýnir tvívetnisinnihald mánaðarlegra úrkomusýnishorna frá Rjúpna- hæð og auk þess mánaðarlegt úrkomumagn. Gildin ná yfir allt átta ára tíma- bilið, sem mælingar taka til, og er ]rá slitrótta línan mælingar framkvæmdar af Friedman, en heildregna línan mælingar framkvæmdar við Eðlisfræðistofnun Háskólans. Mánaðarlegar sveiflur í tvívetnisinnihaldi eru mjög stórar eða allt að 40%o frá meðaltali, og meðalfrávik er um það bil 13%e. Að öðru leyti er mjög erfitt að sjá nokkuð reglubundið, só lilið á myndina í heild. í einstaka tilfellum gæti svo virzt sem mikið úrkomumagn svaraði til lægra tvívetnisinni- halds í vatninu og auk þess, að tvívetnisinnihaldið sé lægst í desember, en hækki síðan ört fyrstu mánuði ársins. Þetta er þó hvergi nærri ljóst. Mynd 3 sýnir svo samsvarandi gildi fyrir tveggja ára úrkomu frá Vegatungu. Beint samhengi er ekki sýnilegt milli þessara tveggja staða, en mánaðarlegar sveiflur virðast þó vera nokkurn veginn svipaðar að stærð. Mynd 4 sýnir meðal tvívetnisinnihald hvers mánaðar að Rjúpnahæð. Allt söfnunartímabilið er átta ár, svo að hvert gildi, sýnt sem hringur á myndinni, er meðaltal átta mánaða. Meðalfrávik er táknað með lóðréttum strikum. Neðri hluti myndarinnar sýnir svo meðalúrkomumagn mánaðanna, sem nnn á dag. Línan, sem dregin er í gegnum tvívetnisgildin og er meðaltal liverra þriggja punkta, sýnir, að þarna er um smávegis árssveiflu að ræða með háu tvívetnis- innihaldi seinni hluta vetrar og á vorin, en lágu tvívetnisinnihaldi í árslok. — 1 1 VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.