Veðrið - 01.04.1967, Qupperneq 30

Veðrið - 01.04.1967, Qupperneq 30
þann tíma gengu lægðir austur um góðan spöl suður at landinu, svo að austlæg átt og fremur stöðugt veður hélzt í liálfa aðra viku. Fyrri hluta janúar í ár hreyfðust lægðir hver af annarri norðaustur Græn- landshaf. Hitasveiflur urðu nokkrar, en fengst af barst þó mjög hlýtt loft til fandsins sunnan af hafi. Nægði það til, að hitinn varð nærri tveim stigum hærri við jörð en meðaliagið er, rúmum þrem stigum hærri en það í eins kílómetra hæð og nær háffri fimmtu gráðu liærri í tveggja kílómetra liæð. Það lijálpaði auk þess til, að aldrei kom kuldakast seinni hluta mánaðarins. Lægðir héldu sig jrá nokkuð langt suður og suðvestur af landinu, svo að vindur var alltaf austan- stæður. Loftið, sem barst að landinu, var ættað austan frá Norðurlöndum og suðaustan frá Norðursjó. f febrúar var hitinn rétt við meðailag í eins kílómetra hæð og ofar, en við jörð var rúmu stigi lilýrra en venjulega. Snjór var mcð minnsta móti og sjaldan iogn í mánuðinum. Kæling loftsins næst jörðu liefur því verið minni en er að jafnaði á þessum árstima, og af þeim sökum var tiltölulega hlýrra við jörð en í meðallagi, jnátt fyrir að loftið ofar væri ekki hlýrra en venjulega. Fyrri helming mánaðarins var vindur oftast á sunnan eða vestan, Jjví að læ-gðir gengu norðáustur Grænlandshaf og þaðan til austurs fyrir norðan land. Um miðjan mánuðinn breyttist tíðin. Lægðarsvæði myndaðist suður af landinu og austlæg átt varð ríkjandi og hitinn héfzt litið breytlur. Þegar hálf vika var til loka mán- aðarins, færðist lægðarsvæðið austur fyrir landið og olli norðanátt með kulda- kasti. Eftir mánaðamótin liéldu kuldarnir áfram. Varð marzmánuður fjórum til fimm stigum kaldari en meðaltalið frá árunum J954—'63. Vindur var oftast á norðan eða norðaustan, j>\í að liæð var jafnan yfir Grænlandi, en lægðir stað- næmdust oftast suðaustur af landinu eða yfir hafinu milli Noregs og íslands, eftir að liafa farið liratt til austurs yfir landið eða skammt fyrir sunnan það. Þegar jrær nálguðust Reykjanes, snerist vindur um stund til suðausturs, og sjást jiess glöggt merki á liitaritunum, þvi að þá hefur hlýnað snögglega en kólnað jafnskjótt aftur. Kaldast varð páskahretið eins og sjá má, en páskadagur var 26. marz. Þetta Iiret stóð líka alllengi, nógu lengi til að bera jakahrafl og spangir úr hafísjaðrinum upp að annesjum norðan lands. Þetta íshrafl hvarf úr augsýn skömmu eftir lok mánaðarins, enda var norðanáttinni jrá lokið og hlýrra veður í aðsigi. Hefði ísbreiðan austur af strönd Norðaustur-Grænlands náð jafnlangt til hafs og húri gerði á útmánuðum 1965, er enginn vafi á, að hafís hefði orðið hér landfastur nú eins og þá. Árið 1966. Þetta ár var kaldasta árið, sem komið liefur, síðan hitaathuganir þessar byrjuðu með árinu 1954. Eru það vetrarmánuðirnir, sem því vakla, en þeir voru allir kaldari en í meðallagi. Sumarmánuðirnir, júní til september, voru liins vegar við meðallag eða rétt fyrir ofan það. Einkennishitinn var —1.15 stig, sem er 0.74 30 VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.