Veðrið - 01.09.1978, Qupperneq 9
1 afla 2. Tíðni veðurlags yfir Bretlandseyjum í mars 1785.l)
Veðurlag Tíðni
Dagafjöldi % Meðal % 1868-1967
Vestan (V) 0 0 23
Norð-vestan (NV) '/2 2 4
Norðan (N) 95/e 32 8
Austan(A) 65/s 22 11
Sunnan(S) 0 0 10
Hæðaveður (H) 135/e 44 25
Lægðaveður (L) 0 0 16
Bæði í mið-Englandi og mið-Evrópu var þetta kaldasti marsmánuöur sem
vitað er um, annars vegar 5°C undir meðallagi og hinsvegar 6°C. Hann var
einnig þurr i Englandi og féll inn í langan þurrkakafla sem stóð frá þvi síðla
vetrar og þar til snemma sumars. Kaflar úr skýrslum tveggja athugunarmanna
gefa okkur lýsingar frá fyrstu hendi á þessu óvenjulega ástandi í Englandi og
Evrópu.
„Mars hefur verið mjög kaldur mánuður og gróður seint á ferð, frost hvern
morgun, oft töluvert og i skugga allan daginn, nærri engin merki um vorið enn.
Oft snjómugga en mjög lítil.“
Thomas Barker
Lyndon, Rutland
Athugun með tilliti til landbúnaðar:
„Elstu menn muna ekki dæmi um viðlíka kaldan mars, og svo er sagt, að svo
óvenjukalt veður sem við nú upplifum hafi ekki verið í heila öld.
Náttúran er, í lok mánaðar, ennþá algjörlega dauð og virðist ætla að vera svo
áfram unt nokkurn næsta tíma.“
Hiti mánaðarins: „Kaldari en dæmi eru um og þurrari.“
Ríkjandi vindátt: „Norð-austan.“
Meyer fils
Mulhausen, Alsace
Hvernig var veðrið á Islandi á þessum tíma? Við getum fundið meðalhitann
fyrir Lambhús út frá daglegum mælingum. T.d. er meðalhitinn 3.4°C, nærri
2°C hærri en samsvarandi meðaltal áranna 1931 — 60 í Reykjavík og meðal
hámarkshitinn er 5.6°C í mars 1785, 1°C hærri en samsvarandi meðal há-
markshiti áranna 1931 —60.2>Hámark mánaðarins var 10.3°C að Lambhúsum
24. mars 1785.
1) Lamb, 1972. 2) Jón Eyþórsson og Hlynur Sigtryggsson, 1971
VEÐRIÐ ---45