Veðrið - 01.09.1978, Side 19
Hafísvið Grœnland 23. apríl 1981 (veðurlunglamyndmynd).
Það er mikils virði að geta brugðist skjótt við varasömum tiltektum náttúr-
unnar, þegar þær gerast óvænt. Þá er vitanlega mikill kostur að vera við öllu
búinn.
Besti viðbúnaðurinn er þó þekking á náttúrufyrirbærinu, þannig að vand-
ræðin komi mönnum ckki í opna skjöldu. Við aukna þekkingu yrðu fyrr-
nefndar „tiltektir náttúrunnar" að vísu áfram varasamar, en þær gerðust ekki
jafnóvænt.
Hafísinn hefur veriö kallaður vágestur og Islendingar hafa haft fulla ástæðu
til að forvitnast nánar unt eðli hans og ferðir i námunda við landiö. Það var þvi
spor í rétta ált er stofnuð var hafísrannsóknadeild við X'eðurstofu íslands ckki
alls fyrir löngu. Tilraun til aðþckkja þennan vágest okkar er því gerð með því að
hafa deild þessa starfandi i „stjórnkerfinu" (samgönguráðunevtinu).
Dcildin sér um skýrslur unt hafís við strendur Islands frá ári til árs og hefur
yfirsýn yfir hafísinn hverju sinni á hafsvæðinu milli íslands, Grænlands og Jan
Mayen, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Landhelgisgæslunni, skipum,
veðurtunglamyndum o. fl.
Deildin vinnur enn frernur að auknunt rannsóknum og tekur þátt í alþjóð-
legu samstarfi á sviði hafísrannsókna, bæði austur um haf og vestur. Innan-
VEÐRIÐ -- 55