Veðrið - 01.09.1978, Page 25
Það þarf að athuga samspil veðurþáttanna. Aðferðin sent við notum til þess
er sú að við skilgreinum snjóflóðastuðul, R, sem línulega summu ntargra
veðurþátta. Það er,
R = a1x, + a2x2+ ................... +anxn>
þar sent x-in tákna veðurþættina og a-in eru margfeldisstuðlar, útreiknaðir
með þaö fyrir augum að fjarlægðin milli meðaltala R fyrir snjóflóðadaga og
snjóflóðalausa daga sé sem mest. Mitt á milli þessara meðaltala er þá mark-
gildi, Ro, þess eðlis að ef R sem reiknað er út frá veðurathugunum einhvern
ákveðinn dag er stærra en Ro, þá flokkast sá dagur sem snjóflóðadagur, en sé R
minna en Ro, þá flokkast dagurinn sent snjóflóðalaus dagur. Mynd 2 sýnir
tilfelli þar sent einungis tveir veðurþættir eru notaðir.
Sumir veðurþáttanna reynast aðeins valda óverulegum mun á meðaltölum
R fyrir snjóflóðadaga og snjóflóðalausa daga og cru því gagnslausir fvrir
snjóflóðastuðulinn, en fjórir þættir reynast í þessu tilfelli markverðir og byggist
stuðullinn eingöngu á þeim. Formúla stuðulsins sem við höfurn þannig reiknað
fyrir Olafsfjarðarmúla er,
R = - 0.12034X, + 0.22756X,,+ 0.05111X3+ 0.02168X4
þar sent X, er dagsmeðalhiti (°C), X2 er breyting á dagsmeðalhita frá degi á
undan (°C), X3 er 48 stunda úrkonta (mm) og X4 er summa úrkomu í formi
slyddu og snjókontu í undangengnum úrkomukafla (nim). Allir þættir ntældir
á Reyðará.
Markgildið, Ro, er 0.606, og flokkun samkvæmt þessum stuðni er tölfræði-
lega marktæk. Þannig á nú að vera hægt að flokka hvern dag fvrir sig i
snjóflóðadag eða snjóflóðalausan dag út frá mælingum þessara fjögurra veð-
urþátta. Fyrir veturna 1975—1980 flokkar stuðullinn 690 snjóflóðadaga rétt
og 720 snjóflóðalausra daga.
Áður en við förum að nota þennan stuðul við mat á snjóflóðahættu er rétt að
athuga tvennt. I fyrsta lagi vitum við að snjóflóðaveður þarf að geisa nokkurn
tíma áður en snjóflóð taka að falla. Það er því líklegt að stuðullinn sé nokkuð
bráður, þ. e. flokki ranglega a. nt. k. næsta dag á undan raunverulegum snjó-
flóðadegi. I öðru iagi eru snjóflóð stundum síðbúin, þ. e. þau verða ekki fyrr en
veðrið er gengið niður. I báðum tilfellum væri til bóta að stuðullinn myndi fyrri
gildi sín, a. m. k. gildið frá deginum áður, en gleymdi þeim ekki jafnóðum.
Einn möguleiki þess að gefa snjóflóðastuðlinum þannig minni er að breyta
honum í R*. þar sem
R*=l/2(Rt+R't_,),
það er, meðaltal gildis R umræddan dag og gildis slíks meðaltals frá deginum á
undan. Þctta dregur úr daglegunt sveiflum hans og virðist auka áreiðanleik
hans.
Til að athuga notagildi stuðulsins reiknum við dagleg gildi ltans fyrir tímabil
VEÐRIÐ --- 61